Mynd: EPA

Harmsaga Hart-eyju

Einu sinni hét hún Hjarta­eyja. En svo féll einn stafur niður og nafnið Hart-eyja fest­ist við hana. Þetta er að minnsta kosti ein kenn­ingin um nafnið á eyj­unni sem á sér svo átak­an­lega sögu að flestir íbúar New York vilja ekki vita að hún sé til.

Langur og djúpur skurður. Tugir kista úr krossviði liggja hver ofan á annarri í tveimur sam­hliða röðum. Skurð­ur­inn var graf­inn með stórri gröfu en yfir kist­urnar moka menn í hvítum hlífð­ar­fatn­aði með grímur. Álengdar standa svart­klæddir menn, einnig með grímur fyrir vit­unum, og fylgj­ast með aðgerðum.

Velkomin á Hart-eyju. Eyju fyrir utan Bronx-hverfið í New York-borg þar sem fátækir hafa verið lagðir til hinstu hvílu í nafn­lausum gröfum frá því um miðja nítj­ándu öld. Þar hvíla einnig þeir sem eng­inn vitj­aði eftir and­látið. Og líka þeir sem urðu fórn­ar­lömb far­sótta á borð við spænsku veik­ina. Meira en ein milljón Banda­ríkja­manna hefur verið jarð­sett þarna og oft­ast í fjölda­gröfum. Síðustu árin hefur greftr­unum á eyj­unni reyndar fækkað og þær verið innan við 1.500 á ári.

Athyglin hefur nú beinst að þessu svæði á ný því til greina kemur að jarða þar fórn­ar­lömb far­ald­urs COVID-19, þau sem ekki er vitjað í lík­húsum borg­ar­innar innan tveggja vikna frá and­láti.

Í byrjun mán­að­ar­ins fóru að birt­ast í fjöl­miðlum vest­an­hafs loft­myndir af því sem lýst er hér í upp­hafi. Hvít­klæddum og svart­klæddum mönnum við opna fjölda­gröf. Borg­ar­yf­ir­völd í New York neit­uðu að þar væri verið að jarða þá sem lát­ist hefðu vegna far­sótt­ar­innar sem nú geisar en nokkru síðar við­ur­kenndu þau að til greina komi að gera það.

Líkhúsin í New York eru að verða yfir­full og flutn­inga­bílum með stórum frysti­gámum er lagt fyrir utan sjúkra­húsin. Sjúkra­tjöld eru í tuga­tali við spít­al­ana. Þau má meðal ann­ars sjá í almenn­ings­garð­inum Central Park. Margir deyja svo heima.

Íbúar New York, borg­ar­innar sem aldrei sefur, hafa orðið harka­lega úti í far­aldr­inum. Í rík­inu hafa fleiri greinst með kór­ónu­veiruna en í öðrum löndum heims­ins utan Banda­ríkj­anna. Og yfir 8.600 hafa dáið vegna COVID-19 að því er fram kemur í New York Times. Um 2.000 hinna látnu eru íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila og í gær lét­ust yfir 2.000 manns í rík­inu á einum sól­ar­hring. Á Hart-eyju hefur verið mokað yfir um 25 lík­kistur dag­lega að und­an­förnu í stað sama fjölda á viku áður.

Eyjan utan við Bronx á sér langa og oft á tíðum skugga­lega og átak­an­lega sögu. Hún hefur í ára­tugi heyrt undir fang­els­is­mála­yf­ir­völd New York-borgar og fangar af Rikers-eyju hafa haft það starf að taka grafir. Það hefur ekki alltaf þótt mann­eskju­leg með­ferð. Og fang­arnir hafa ekki allir viljað þá vinnu. Áður fyrr gátu þeir ekki skor­ast undan því. Gerðu þeir það var þeim refsað með ein­angr­un­ar­vist. En núna eru þeir sagðir hafa val. Og lýsa dvöl sinni á Hart-eyju jafn­vel með eft­ir­sjá. Þar hafi ríkt friður þrátt fyrir að vinnan hafi ekki verið upp­lífg­andi.

Fyrir land­nám Evr­ópu­búa bjó fólk af Siwanoy-þjóð­inni, frum­byggjum Norður-Ameríku, á eyj­unni. Árið 1654 keypti enski lækn­ir­inn Thomas Pell hana og var hún í eigu Pell-fjöl­skyld­unnar í yfir hund­rað ár. Hún var áfram í einka­eigu í ára­tugi eftir það og í byrjun nítj­ándu aldar var hún þekkt fyrir grófar hnefa­leika­keppnir sem þús­undir áhorf­enda sóttu í hvert sinn.

Á Hart-eyju standa enn mörg hús sem hafa í gegnum tíðina þjónað margvíslegri starfsemi. Þar var eitt sinn geðveikrahæli fyrir konur.
Á Hart-eyju standa enn mörg hús sem hafa í gegnum tíð­ina þjónað marg­vís­legri starf­semi. Þar var eitt sinn geð­veikra­hæli fyrir konur.

Í byrjun sjö­unda ára­tugar nítj­ándu aldar var komið upp þjálf­un­ar­búðum fyrir her­menn á eyj­unni og næstu árin voru yfir 50 þús­und her­menn þjálfaðir þar. Hús voru byggð, m.a. her­manna­skálar og bóka­safn.

Á sama tíma voru þar reistar búðir fyrir stríðs­fanga þræla­stríðs­ins. Rúmlega 3.400 her­menn Suð­ur­ríkja­sam­bands­ins voru þar í haldi. Fyrstu graf­irnar sem teknar voru á eyj­unni eftir að Siwanoy-fólkið yfir­gaf hana voru fyrir tutt­ugu her­menn sam­bands­stjórn­ar­innar í þræla­stríð­inu.

Árið 1868 keypti New York-borg stærsta hluta eyj­unnar og fljót­lega var farið að jarða þar fátækt fólk og þá sem áttu engan að.

Hart-eyja hefur gegnt mörgum öðrum hlut­verkum. Árið 1870 var þar ein­angr­un­ar­stöð vegna far­ald­urs gulu­sóttar. Á svip­uðum tíma voru þar einnig geð­veikra­hæli fyrir konur, The Pavilion, og berkla­hæli.

Hart-eyja er fremst á myndinni.
Hart-eyja er fremst á mynd­inni.

Í lok nítj­ándu aldar var þar opnað drengja­heim­ili og einnig fang­elsi fyrir full­orðna karl­menn. Bæði voru rekin í ára­tugi með hléum.

Á þriðja ára­tug síð­ustu aldar voru uppi hug­myndir um að opna skemmti­garð á Hart-eyju fyrir svarta íbúa Man­hattan. Á þeim tíma var svörtum bannað að ferð­ast með ferjum til ann­arra skemmti­garða borg­ar­innar. Hluti eyj­unnar var þá enn í einka­eigu en borg­ar­yf­ir­völdum fannst ekki við­eig­andi að hafa skemmti­garð í nágrenni fang­elsis og geð­sjúkra­húss og tóku því rest­ina af eyj­unni eign­ar­námi.

Kjarnaflaugar og utangarðsfólk

Í síð­ari heims­styrj­öld­inni var fang­elsið á Hart-eyju flutt á aðra eyju, Rikers, þar sem það er enn í dag. Í stað­inn var þar opnað heim­ili fyrir utan­garðs­fólk og síðar með­ferð­ar­hæli fyrir áfeng­is­sjúka og enn síðar stofnun fyrir eit­ur­lyfjafíkla. Aftur áttu þó fangar eftir að dvelja þar á ýmsum tímum.

Hart-eyja gegndi enn fleiri hlut­verkum í gegnum tíð­ina. Þar voru meðal ann­ars gerð neð­an­jarð­ar­byrgi fyrir kjarnaflaugar sem voru starf­rækt þar til um miðjan átt­unda ára­tug síð­ustu aldar.

Hér hefur verið stiklað á stóru um þau mörgu hlut­verk sem Hart-eyja hefur þjónað. Enn standa þar margar þeirra bygg­inga sem áður hýstu sjúka og þurf­andi. Þær eru flestar í nið­ur­níðslu.

Fangar hafa í marga áratugi verið látnir grafa kisturnar á Hart-eyju. Myndin er tekin fyrir miðja síðustu öld.
Fangar hafa í marga ára­tugi verið látnir grafa kist­urnar á Hart-eyju. Myndin er tekin fyrir miðja síð­ustu öld.

Allan tím­ann hefur fólk verið fært þar til grafar. Fyrst var nyrsti og syðsti oddi eyj­unnar lagður undir kirkju­garða. Garð­arnir eru kall­aðir „potter‘s fields“ á ensku – fátækt­ar­graf­reitir á íslensku – og eru þeir stærstu sinnar teg­undar í heim­inum. Síðustu ára­tugi hafa meðal ann­ars mörg ung­börn verið grafin þar og börn sem fæðst hafa and­vana. Úr slíkum greftr­unum hefur dregið veru­lega síð­ustu ár eftir að sér­stakur sjóður var settur á stofn til að standa straum af kostn­aði for­eldra sem ekki hafa efni á jarð­setn­ingu barna sinna.

Kist­urnar eru grafnar í stórum skurðum, fimm kistum barna er raðað hver ofan á aðra og þremur kistum full­orð­inna. Kist­urnar eru merktar með núm­eri og aldri þess látna. Stundum stendur á kist­unum hvar líkin fund­ust. Í skrá hjá dán­ar­dóms­stjóra eru svo frek­ari upp­lýs­ingar, ef þær eru til­tækar, fingraför og síð­ustu ár DNA-sýni. Ef ætt­ingjar eða aðrir aðstand­endur gefa sig svo fram eru jarð­neskar leifar hinna látnu færðar í aðra kirkju­garða. Á hverju ári eru tugir kista grafnar upp af þessum sökum.

Enginn hefur verið jarð­sung­inn með við­höfn á Hart-eyju frá því um miðja síð­ustu öld. Og svo óheppi­lega vildi til á átt­unda ára­tugnum að stór hluti gagna um þá sem þar hvíla tap­að­ist í elds­voða.

En það eru fleiri en fátækir og vanda­lausir sem hvíla á eyj­unni. Í skæðum far­sóttum hafa fjölda­grafir verið teknar. Er HIV-far­ald­ur­inn geis­aði á níunda ára­tugnum voru lík fyrstu sjúk­ling­anna sem lét­ust grafin hvert í sinni gröf­inni. Fang­arnir sem sáu um verkið voru klæddir varn­ar­bún­aði.

Er í ljós kom að engin hætta var á að smit­ast af HIV af lík­unum var farið að grafa þau í fjölda­gröf. Þúsundir fórn­ar­lamba HIV hafa síðan þá verið grafin þar. Árið 2008, er sér­lega slæmur far­aldur inflú­ensu geis­aði, voru margir hinna látnu einnig fluttir til Hart-eyju.

Kisturnar eru merktar með nöfnum hinna látnu ef vitað er hver þau eru. Myndin er tekin á níunda áratug síðustu aldar.
Kist­urnar eru merktar með nöfnum hinna látnu ef vitað er hver þau eru. Myndin er tekin á níunda ára­tug síð­ustu aldar.

Hart-eyja hefur verið lokuð almenn­ingi í ára­tugi. Þangað fá aðeins fáir að koma. Það var ekki fyrr en árið 2015 að ætt­ingjum og öðrum aðstand­endum þeirra sem grafnir eru á eyj­unni var heim­ilt að koma þangað eina helgi í mán­uði en aðeins fimm­tíu sam­tals í hvert sinn.

Núna er búið að grafa stóra skurði á Hart-eyju og setja í þá margar kistur. Það er ekki ljóst hvort að um sé að ræða fólk sem dáið hefur vegna COVID-19 en borg­ar­yf­ir­völd segja að til þess geti vissu­lega komið.

Gríðarlegt álag vegna COVID-19

Um 150 manns deyja dag­lega í New York-borg undir venju­legum kring­um­stæðum. Sá fjöldi hefur marg­fald­ast vegna far­ald­urs kór­ónu­veirunnar og álag á lík­hús og útfar­ar­stofur sömu­leiðis. Hermenn hafa verið fengnir til þess að aka um borg­ina og sækja lík þeirra sem deyja heima.

Það eru hins vegar ekki fangar sem munu grafa kist­urnar á Hart-eyju á næst­unni. Borg­ar­yf­ir­völd til­kynntu fyrr í vik­unni að verk­takar hefðu verið ráðnir til verks­ins. Skýr­ingin er sú að meira en 275 fangar á Rikers-eyju hafa greinst með kór­ónu­veirusmit og hætta er á frek­ari útbreiðslu.

Í hugum margra New York-búa eru fjölda­graf­irnar smán­ar­blettur í sögu borg­ar­innar. Aðrir segja að í far­öldrum sé nauð­syn­legt að nýta þetta úrræði, að minnsta kosti tíma­bundið.

Samtök voru stofnuð fyrir nokkrum árum sér­stak­lega til að berj­ast fyrir því að opna eyj­una fyrir almenn­ingi og gera gögn um þá sem þar eru grafnir aðgengi­legri. Formaður heil­brigð­is­nefndar New York-borgar, Mark Levine, segir að mögu­lega sé hægt að breyta ásýnd eyj­unnar svo að eitt­hvað gott taki við af langri og sárs­auka­fullri sögu hennar. „Ef margir eiga ein­hvern nákom­inn sem hvílir þar þá getum við gert gott úr þessu,“ segir Levine. Kirkju­garðar þjappi fólki saman. „Hart-eyja er varla til í hugum New York-búa. Þetta gæti orðið augna­blikið þar sem borgin áttar sig loks á því að við höfum þarna graf­reit og það er okkar allra að breyta rétt gagn­vart þeim sem þar hvíla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár