Íslendingar drekka sjaldnar en aðrir Norðurlandabúar

Áfengi er sjaldnar drukkið á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum, en óhóf­leg drykkja er tíð­ari hér.

Áfengis er sjaldnar neytt á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum, en óhóf­leg drykkja er hins vegar nokkuð tíð­ari hér á landi. Þetta eru nið­ur­stöður evr­ópskrar heilsu­fars­rann­sóknar, sem Hag­stofan tók þátt í.

Ísland er með sjö­unda lægsta hlut­fallið sem drekkur að minnsta kosti einu sinni í viku eða oftar, rétt rúm­lega 20 pró­sent. Hæsta hlut­fallið er í Bret­landi, 52,5 pró­sent.

Af Norð­ur­lönd­unum er hlut­fallið hæst í Danmörku, rúm­lega 51 pró­sent. Næst kemur Svíþjóð með tæp­lega 40 prós­net og Finnland með rúm­lega 39 pró­sent. Noregur er með tæp­lega 33 pró­sent hlut­fall þeirra sem drekka að minnsta kosti einu sinni í viku eða oftar.

Þegar litið er til þeirra sem drekka áfengi dag­lega er hlut­fallið á Íslandi 0,6 pró­sent. Það er næst­lægsta hlut­fallið sem mælist, en hæst er hlut­fallið í Portúgal, þar sem 24 pró­sent drekka dag­lega. Hlutfall þeirra sem drekka dag­lega er lágt á Norð­ur­lönd­unum, fyrir utan Danmörku, þar sem rúm­lega ell­efu pró­sent drekka dag­lega.

Tæplega 40 prósent drekka í hverjum mánuði

39 pró­sent Íslend­inga drekka einu sinni í mán­uði eða oftar, sam­kvæmt rann­sókn­inni, sem er annað hæsta hlut­fallið í Evrópu. Hæst er hlut­fallið í Noregi, rúm­lega 49 pró­sent. Hlutfall Íslend­inga sem drekka sjaldnar en einu sinni í mán­uði er líka fremur hátt, 22 pró­sent. „Þessar nið­ur­stöður benda til þess að tíðni drykkju sé hóf­leg á Íslandi í sam­an­burði við aðrar Evr­ópu­þjóðir og í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin. Það segir þó ekk­ert til um magn áfengis sem er neytt,“ segir Hag­stofan.

Hlutfall óhóf­legrar drykkju er 42 pró­sent á Íslandi, sem er það fjórða lægsta í Evrópu. Lægsta hlut­fall óhóf­legrar drykkju er í Danmörku, 27,5 pró­sent, en í Finn­landi (37%) og Þýska­landi (40%) er einnig lægra hlut­fall en á Íslandi. Óhófleg drykkja er skil­greind sem neysla á 60 grömmum af hreinum vín­anda í einni setu. Það jafn­gildir þremur stórum bjórum eða fimm vín­glösum.

Ísland er hins vegar með annað hæsta hlut­fall þeirra sem neyta þetta mik­ils magns af áfengi sjaldnar en einu sinni í mán­uði, og fjórða hæsta hlut­fallið sem drekkur þetta magn nokkrum sinnum í mán­uði. Tæplega 32 pró­sent drekka svona mikið sjaldnar en einu sinni í mán­uði og 24 pró­sent nokkrum sinnum í mán­uði. Rúmlega tvö pró­sent drekka óhóf­lega í hverri viku, sem er vel undir með­al­tali ESB, sem er rúm­lega fimm pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár