Staðan í Evrópu „viðvörunarskot“ til heimsbyggðarinnar

Evrópa er enn og aftur „mið­dep­ill“ COVID-far­ald­urs­ins, segir Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin. Til­fellum sýktra fjölgar hratt víða í álf­unni og inn­lögnum og dauðs­föllum sömu­leiðis.

Smitum fjölgar ört í Þýskalandi.
Smitum fjölgar ört í Þýska­landi. Mynd: EPA

Evrópa þarf að búa sig undir að hálf milljón dauðs­falla vegna COVID-19 muni eiga sér stað þar til í febr­úar. Þetta sagði Hans Kluge, yfir­maður Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar í Evrópu, á blaða­manna­fundi í gær. Hann telur skýr­ing­una á upp­sveiflu far­ald­urs­ins í álf­unni þá að of fáir hafi enn verið bólu­settir. „Við verðum að breyta nálgun okkar,“ sagði hann, „úr því að bregð­ast við bylgjum í að koma í veg fyrir að þær eigi sér stað.“

Hlutfall bólu­settra er enn mjög mis­jafnt eftir löndum í Evrópu. Um 80 pró­sent Spán­verja eru t.d. þegar búnir að fá tvær sprautur og því full­bólu­settir en í Frakk­landi og í Þýska­landi er hlut­fallið 66-68 pró­sent. Það er svo enn lægra í öðrum löndum, m.a. í Austur-Evrópu. Þá eru aðeins 32 pró­sent Rússa full­ból­settir.

[adspot]

Í dag greindust 37 þús­und ný til­felli í Þýska­landi og hafa þau aldrei verið fleiri á einum degi. Nýgengi smita er um 170. Heil­brigð­is­yf­ir­völd ótt­ast að þessi fjórða bylgja far­ald­urs­ins í land­inu eigi eftir að draga marga til dauða og að álag á sjúkra­húsin verði gríð­ar­legt. 154 dauðs­föll vegna COVID-19 voru skráð síð­asta sól­ar­hring­inn. Á jafn­löngum tíma fyrir viku voru þau 120. „Ef við grípum ekki til fyr­ir­byggj­andi aðgerða núna þá mun þessi fjórða bylgja valda enn meiri þján­ingum,“ hefur BBC eftir Lothar Wieler sem fer fyrir þýsku Smit­sjúk­dóma­stofn­un­inni, RKI. Hann bendir á að þrjár millj­ónir Þjóð­verja eldri en sex­tíu ára hafi ekki enn verið bólu­settar.

Hættuástand í Rússlandi og Úkraínu

Það er hins vegar í Rúss­landi þar sem yfir­stand­andi bylgja er að hafa afdrifa­rík­ustu afleið­ing­arnar. Dauðs­föllum fjölgar hratt og á síð­ustu sjö dögum hafa yfir 8.100 lát­ist vegna COVID-19. Í Úkraínu er ástandið einnig mjög alvar­legt og þar hafa um 3.800 dauðs­föll vegna sjúk­dóms­ins orðið á einni viku. Í báðum þessum ríkjum er bólu­setn­ing­ar­hlut­fall lágt.

[links]Í Rúmeníu og Ung­verja­landi er bylgjan einnig að hafa skelfi­legar afleið­ingar. Þar hefur fjöldi smita tvö­fald­ast á nokkrum dögum og á síð­asta sól­ar­hring hafa 590 dauðs­föll vegna COVID verið skráð í Rúmeníu.

Í Danmörku og Noregi hefur smitum einnig fjölgað hratt. Þau voru yfir 1.500 í dag en um 500 fyrir viku síðan í Noregi.

Tilfellum fjölgað um 55 prósent á fjórðum vikum

Í Hollandi er bylgjan, þrátt fyrir hátt bólu­setn­ing­ar­hlut­fall þjóð­ar­innar, að stór­auka álag á sjúkra­hús. Inn­lögnum vegna sjúk­dóms­ins fjölg­aði um 30 pró­sent á einni viku. Stjórn­völd ætla að setja grímu­skyldu á að nýju sem og fjar­lægð­ar­mörk á ýmsum stöðum.

Kluge sagði bylgj­una sem nú er að rísa í mörgum Evr­ópu­löndum einnig eiga rætur í því að stjórn­völd hafi aflétt sótt­varna­að­gerðum. Í sumum ríkjum hafa þær verið afnumdar alfarið.

Á blaða­manna­fund­inum kom fram að til­fellum af COVID-19 hefði fjölgað um 55 pró­sent í Evrópu á aðeins fjórum vikum „þrátt fyrir að nóg sé til af bólu­efni og öðrum verk­færum,“ sagði Maria Van Kerkhove á fund­inum sem fer fyrir tækni­legum úrlausnum vegna far­ald­urs­ins hjá WHO í Evrópu. Lækn­ir­inn Mike Ryan segir að það sem Evrópa sé nú að ganga í gegnum sé „við­vör­un­ar­skot fyrir heims­byggð­ina“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár