Helena Stefánsdóttir
Helena Stef­áns­dóttir Helena Stef­áns­dóttir flýgur senn til Hollywood og afsannar kannski að svo­kall­aðar list­rænar myndir eigi ekki erindi þangað. Mynd: Golli

Listrænn leikstjóri á leið til Hollywood

Helena Stef­ánsdóttir frumsýndi nýlega kvik­myndina Natatorium – heitið merkir sundhöll eða inni­sundlaug. Natatorium er fyrsta kvik­myndin hennar í fullri lengd en Helena bæði skrifaði handrit og leik­stýrði myndinni.

Natatorium var heims­frumsýnd á kvikmynda­hátíðinni í Rotterdam og hefur jafnframt verið valin inn á South by Southwest hátíðina í Banda­ríkjunum. Í mjög góðri umsögn Hollywood Reporter segir að myndin sé bæði glæsileg og skrýtin en um leið altæk saga um þögn í sjálfs­vörn og ótta. Drama með listrænu yfir­bragði og anda hryllings.

„Ég var búin að skrifa handrit að stuttmynd um hálf­systkini sem verða smá skotin í hvort öðru. Svo, smám saman, fannst mér eins og það þyrfti að vera stærri saga, en ekki stuttmynd. Þá sá ég fyrir mér mynd af þessum málsverði – þar sem allir eru glaðir á yfir­borðinu en undir niðri kraumar allt. Og þau neita að horfast í augu við það sem kraumar undir eða geta það ekki,“ segir Helena og nefnir því næst að hún hafi jafnframt lesið smásögu eftir vinkonu sína, að nafni Celeste Ramos, sem heitir Swim.

…
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár