Kjöt og kaffi hækka mikið í verði en konfektið minna

800 gramma Nóa Siríus konfekt­kassi er allt að 26 pró­sent dýr­ari fyrir þessi jól en í fyrra. KEA hangilæri er allt að 40 pró­sentum dýr­ara. Það kostar almennt tölu­vert fleiri krónur að kaupa hinn dæmi­gerða mat fyrir jólin nú en á síð­asta ári.

Verð á kjöti, þurrvöru og dósamat og brauð- og kornvöru hækkar mest.
Verð á kjöti, þurr­vöru og dósa­mat og brauð- og korn­vöru hækkar mest. Mynd: Icelandic Lamb

Nánast hvert sem litið er hefur verð á hinum dæmi­gerða jóla­mat hækkað á milli ára. Í flestum til­fellum er um miklar verð­hækk­anir að ræða sam­kvæmt nýrri könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. 80 pró­sent var­anna sem valdar voru til könn­un­ar­innar var hærra nú en í fyrra en tæp­lega 20 pró­sent þeirra voru ódýr­ari. Í 16 pró­sent til­fella hækk­aði verð á bil­inu 0-5 pró­sent, í 19 pró­sent til­fella um 5-10 pró­sent og í 18 pró­sent til­fella um 10-15 pró­sent. Miklar verð­hækk­anir voru í öllum vöru­flokkum en verð á kjöti, kaffi, brauð- og korn­vöru og þurr­vöru og dósa­mat hækk­aði mest. Verð á mjólk­ur­vöru hækk­aði einnig mikið.

[adspot]

Verð hækk­aði mest hjá Heimkaup og næst mest í Iceland en hátt hlut­fall vara í þessum versl­unum hækk­aði mikið í verði milli ára. Verð á jóla­mat hækk­aði hins vegar minnst í Kjör­búð­inni, Nettó og Fjarð­ar­kaupum en þær versl­anir voru með hæsta hlut­fall vara sem lækk­aði í verði og hækk­aði minnst í verði.

Í Bónus og Krónunni hækk­aði stærstur hluti vara í verði á bil­inu 5-10 pró­sent eða 29 pró­sent vara í Bónus og 28 pró­sent í Krónunni. Svipað hlut­fall vara hækk­aði um 10-15 pró­sent í verði. Í báðum versl­unum hækk­aði verð yfir 15 pró­sent í 18 pró­sent til­fella og yfir 20 pró­sent í 9 pró­sent til­fella.

Verð á kjöti, þurrvöru og dósamat og brauð- og kornvöru hækkar mest

Miklar verð­hækk­anir eru í öllum vöru­flokkum en verð á kjöti hækkar mest milli ára. Í 39 pró­sent til­fella hækkar verð á kjöti um 20-30 pró­sent og í 11 pró­sent til­vika um 30-40 pró­sent. Sem dæmi má nefna 27-33 pró­sent verð­hækkun á SS birkireyktum hangi­kjöts­fram­parti í fjórum af fimm versl­unum sem varan fékkst í. Þá hækkar verð á léttreyktum KEA lamba­hrygg um 25-26 pró­sent í fimm versl­unum og verð á KEA hangilæri minnst um 4,8 pró­sent en á bil­inu 18-41 pró­sent í öðrum versl­unum.

Verð á brauði og korn­vöru hækkar oft mikið milli ára og sama má segja um verð á þurr­vöru og dósa­mat. Sem dæmi má nefna 12-27 pró­sent verð­hækk­anir á brúnni Myllu jóla­tertu með kremi og 6,5-22 pró­sent verð­hækk­anir á Myllu heim­il­is­brauði. Þá hækkar verð á Ora grænum baunum á bil­inu 14-29 pró­sent. Verð á mjólk­ur­vöru hækkar einnig almennt mikið eða í 74 pró­sent til­fella um 5-20 pró­sent.

Verð á drykkj­ar­vöru þ.e. gosi og safa hækkar hvað minnst en það sama gildir ekki um verð á kaffi sem hækkar í 50 pró­sent til­vika á bil­inu 15-30 pró­sent.

[adspot]

Konfekt og sæl­gæti hækkar einnig minna í verði en flestir aðrir vöru­flokkar en hækkar þó í sumum til­fellum. Þannig hækkar verð á 800 gr. Nóa Siríus inn­pökk­uðum konfekt­kassa t.d. um 12-26,5 pró­sent í sex versl­unum og verð á 2 kg dós af Quality Street um 15-26 pró­sent í fjórum versl­unum. Grænmeti og ávextir er sá vöru­flokkur sem verð lækk­aði oft­ast í en að sama skapi sá vöru­flokkur sem hvað mestar verð­hækk­anir voru í en miklar sveiflur geta verið í verði á græn­meti og ávöxtum.

Könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ byggir á sam­an­burði á verðum í versl­unum 15. des­em­ber 2021 og 13. des­em­ber 2022. ASÍ áréttar að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versl­un­unum og geta til­boðs­verð haft áhrif á verð­breyt­ingar ein­stakra vara. Könnunin var gerð á sama tíma í eft­ir­töldum versl­unum: Nettó, Bónus, Krónunni, Fjarð­ar­kaupum, Iceland, Hagkaup, Kjör­búð­inni og á Heimkaup.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár