Þórdís Kolbrún sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Öll atkvæði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafa verið talin. Haraldur Bene­dikts­son, sem leiddi list­ann í síð­ustu kosn­ingum, lenti í öðru sæti en hann sagði nýverið að hann hygð­ist ekki þiggja annað sætið ef það yrði nið­ur­staðan.

Þórdís Kolbrún hafði betur í oddvitaslagnum í Norðvesturkjördæmi.
Þórdís Kolbrún hafði betur í odd­vitaslagnum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun leiða lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Þórdís Kolbrún hlaut alls 1.347 atkvæði í 1. sætið. Alls greiddu 2.289 atkvæði í próf­kjör­inu og voru gild atkvæði 2.232 tals­ins.

Kosn­ingin í fyrsta sæti var nokkuð afger­andi en bar­áttan um odd­vita­sætið stóð á milli Þórdísar Kol­brúnar og Haraldar Bene­dikts­sonar sem leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum. Haraldur hlaut alls 786 atkvæði í fyrsta sætið. Haraldur end­aði í öðru sæti í próf­kjör­inu með sam­tals 1.061 atkvæði í 1.-2. sæti.

Oddvitaslagur með sanni

Nokkur titr­ingur hefur verið í kringum próf­kjörs­bar­áttu odd­vit­ans og vara­for­manns­ins. Til að mynda ákvað Halldór Jónsson að segja sig frá for­manns­stöðu í kjör­dæm­is­ráði flokks­ins eftir að Þórdís Kolbrún ákvað að fara gegn Haraldi og sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu. Halldór skrif­aði bréf til for­ystu flokks­ins þar sem sagði meðal ann­ars að Þór­dís Kol­brún hefði að hans mati ekki sett fram ríkar mál­efna­legar ástæður fyrir því að skora odd­vita flokks­ins í kjör­dæm­inu á hólm en um málið var fjallað í Skessu­horni.

Haraldur sagði í vik­unni í við­tali við Bæjarins besta að hann hygð­ist ekki taka annað sæti á lista, fari það svo að hann tap­aði í bar­átt­unni um odd­vita­sætið. Þessir úrslita­kostir féllu í grýttan jarð­veg hjá sam­flokks­konum Haraldar, þeim var líkt við hót­anir í garð sam­flokks­fólks í kjör­dæm­inu og Haraldur auk þess sagður frekur, líkt og fjallað er um í umfjöllun Vísis. En nið­ur­staðan er annað sætið fyrir Harald og því er allt útlit fyrir að hann muni ekki setj­ast á þing eftir kom­andi kosn­ingar.

Teitur Björn gæti verið á leið á þing á ný

Í þriðja sæti var Teitur Björn Ein­ars­son með alls 1.190 atkvæði í 1.-3. sæti. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur í dag tvo kjör­dæma­kjörna þing­menn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og ef Teitur Björn hoppar upp í annað sætið í stað Haraldar gæti hann því verið á leið á þing á ný. Teitur sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árin 2016 til 2017. Á kjör­tíma­bil­inu sem senn fer að ljúka hefur Teitur Björn verið vara­þing­maður flokks­ins. Áður hafði hann meðal ann­ars starfað sem aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, árin 2014 til 2016, í ráð­herra­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar.

Sigríður Elín Sig­urð­ar­dóttir end­aði í fjórða sæti í próf­kjör­inu með alls 879 atkvæði í 1.-4. sæti. Sigríður er 21 árs sjúkra­flutn­inga­kona og nemi, búsett á Akranesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár