Umdeildar flengingar í Frakklandi

Eitt sinn varð ég vitni að óskemmti­legum atburði á leik­velli í París. Faðir sló barnið sitt utan undir. Fólk brást ókvæða við og gerði mann­inum það ljóst að þetta væri ekki liðið. Hann var flæmdur í burtu af reiðum hús­mæðrum og gekk móðg­aður út af leik­vell­inum með barn sitt, nið­ur­lægt og grát­andi.

Atvikið sat lengi í mér. Það er vont að verða vitni að ofbeldi, en um leið fannst mér gott að sjá fólk bregð­ast svona afdrátt­ar­laust við. Maður á nefni­lega alltaf að skipta sér af ofbeldi — í hvers konar mynd. Frakkar geta oft verið óþol­andi afskipta­samir þegar kemur að börnum, en ég held að það sé í grunn­inn vænt­um­þykja gagn­vart börnum. Það sé mik­il­vægt að skipta sér af, jafn­vel móðga fólk og trufla þegar vel­ferð barna er ann­ars vegar.

[quote font="0" align="right"]Um helm­ingur fleng­inga í Frakk­landi eru á börnum undir tveggja ára aldri sem hafa engar fos­endur til þess að skilja merk­ing­una eða til­gang athafn­ar­innar – þau tengja ekki orsök og afleið­ingu og skilja því ekki hvers vegna þau eru lamin.[/quote]

Ég ræddi síðan þetta atvik við nokkra franska kunn­ingja mína sem fannst öllum fyr­ir­lit­legt að slá börnin sín utan undir. Hins vegar voru nokkrir á þeirri skoðun (sem virð­ist reyndar ansi útbreidd í Frakk­landi) að það sé í lagi að flengja börn – svona létt á boss­ann – ef þau eru óþekk. Þetta finnst mér skrýtið. Ég var ekki flengdur af for­eldrum mínum og flengi ekki börnin mín. Og nú er spurt: Má flengja börn? Hefur það eitt­hvert upp­eld­is­legt gildi? Þetta hefur verið til umræðu upp á síðkastið í frönskum fjöl­miðlum og fleng­ingar barna er mikið álita­mál í Frakk­landi.

Flenging er ofbeldi


Mann­réttinda­ráð Evr­ópu­sam­bands­ins sendi frönskum yfir­völdum kvört­un­ar­bréf í vik­unni þar sem Frakkar voru hrein­lega skamm­aðir fyrir að sjá í gegnum fingur sér með fleng­ingar á börnum. Bent var á að frönsk lög væru óskýr þegar kæmi að lík­am­legum refs­ingum gagn­vart börnum —í raun væri ekk­ert sem bann­aði það. Þessi opin­bera kvörtun hefur komið af stað mik­illi umræðu um fleng­ingar; hvort þær séu til góðs eða ills. Sitt sýn­ist hverjum en flestir sér­fræð­ingar mæla ekki með því og tala um að nú sé kom­inn tími til þess að upp­ræta þessa tíma­skekkju og þetta ofbeldi.

Um helm­ingur fleng­inga í Frakk­landi eru á börnum undir tveggja ára aldri sem hafa engar fos­endur til þess að skilja merk­ing­una eða til­gang athafn­ar­innar – þau tengja ekki orsök og afleið­ingu og skilja því ekki hvers vegna þau eru lamin. Það eina sem þau læra er ofbeldi segir Oliver Maurel, fyrr­ver­andi kenn­ari sem berst gegn ofbeldi gegn börnum. Hann segir fleng­ingar ekki hafa neitt upp­eld­is­legt gildi. Samt sé ótrú­legur fjöldi Frakka enn að flengja börnin sín. Flestir séu auð­vitað í hjarta sínu á móti ofbeldi – en tala um léttar og skað­lausar fleng­ingar. Hins vegar túlka börn verkn­að­inn sem nið­ur­lægj­andi ofbeldi. Þegar ofbeldi er ann­ars vegar þá er fárán­legt að tala um eitt­hvert afstæði eða blæ­brigða­mun. Ofbeldi er alltaf ofbeldi.

Hvað á að gera við börn sem aldrei hlýða?


Barna­geð­læknar hafa lýst yfir fyr­ir­litn­ingu sinni á fleng­ingum og segja það mjög var­huga­vert og hættu­legt að aga börn með ofbeldi. Flenging sé í raun og veru merki um stjórn­leysi for­eldra. Umbun og refs­ing séu sjálf­sögð stjórn­tæki í barna­upp­eldi – en fleng­ingar séu rugl­andi, óljós og nið­ur­lægj­andi athöfn. Þetta er hin almenna nið­ur­staða franskra geð­lækna.

[quote font="0" align="right"]Rann­sóknir sýna að 88 pró­sent þeirra sem beittir voru ofbeldi í æsku beita svip­uðum aðferðum síðar á ævinni.[/quote]

Þeir sem hafa stigið fram og varið fleng­ingar þræta stað­fast­lega fyrir það að léttar fleng­ingar séu ofbeldi. Í raun er enn stór hluti frönsku þjóð­ar­innar á því að léttar fleng­ingar geri ekki börnum illt. Þær séu sjálf­sögð og ein­föld refs­ing þegar börn fari yfir strikið. Flenging sé ekki undir neinum kring­um­stæðum lík­am­legt ofbeldi. Einn af þeim sem hafa stigið fram og varið fleng­ingar er Maurice Berger geð­læknir. Hann segir:

„Létt högg eru ekki nið­ur­lægj­andi; fleng­ingar geta verið góðar í hófi, ekki of fastar og ekki of lausar. Þetta eru sterk og skýr skila­boð. Þetta er ekki ofbeldi miðað við margt annað sem börn þurfa að þola dags dag­lega.“

[caption id="attachment_19128" align="alignnone" width="635"] Eiffel-turn­inn í París.[/caption]

 

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni


Rann­sóknir sýna að 88 pró­sent þeirra sem beittir voru ofbeldi í æsku beita svip­uðum aðferðum síðar á ævinni. Þótt létt fleng­ing á bossa telj­ist ekki gróft ofbeldi getur slíkt samt kennt við­kom­andi ein­stak­lingi að að slík hegðun sé í lagi; fleng­ingar inn­ræti barn­inu hegðun sem geti síðar meir haft hættu­legar afleið­ingar.

„Við eigum ekki að kenna börnum ofbeldi. Punktur. Það getur verið stór­vara­samt. Forðumst allt ofbeldi í barna­upp­eldi,“

segir Elizabeth Gershoff, barna­sál­fræð­ingur. Margar rann­sóknir sýna fram á sterk tengsl milli fleng­inga, lík­ama­legra refs­inga barna og kyn­ferð­is­legs ofbeldis. Kanadísk rann­sókn leiddi ljós að kyn­ferð­is­legt ofbeldi gagn­vart börnum teng­ist í 75 til­vikum af hund­rað ein­hvers konar lík­am­legum refs­ingum. Undir það falla fleng­ingar.

Skýrari lög


Af þessum sökum hafa risið upp hópar í Frakk­landi sem telja lík­am­legar refs­ingar og fleng­ingar á börnum vera stórt sam­fé­lags­legt vanda­mál sem brýnt sé að upp­ræta með skýr­ari laga­setn­ingu. Tal um blæ­brigða­mun — að létt högg séu í lagi — sé bæði sið­laust og stór­vara­samt. Það sé hlut­verk sam­fé­lags­ins og yfir­valda að vernda börn og búa þeim öruggt umhverfi og skjól. Með því að minnka ofbeldi í hvers konar mynd stuðlum við að örugg­ara og betra sam­fé­lagi. Það sé í raun algjör hneisa og tíma­skekkja að ekki sé búið að setja skýr lög um fleng­ingar barna í Frakk­landi. Kvörtun mann­réttinda­ráðs Evrópu sé hneyksli fyrir þjóð sem vill vera í for­ystu þegar kemur að mann­rétt­indum.

Rétt er að taka það skýrt fram að allar lík­am­legar refs­ingar eru löngu aflagðar í frönskum skólum og algjör­lega bann­aðar. Annars staðar, eins og á heim­ilum, eru lík­am­legar refs­ingar barna í raun ennþá leyfi­legar. Þú mátt ekki lemja nágranna þinn en þú mátt lemja börnin hans. Að þessu leyti njóta börn minni mann­rétt­inda en full­orðið fólk. Lögin verða að vera skýr­ari og afdrátt­ar­laus­ari – segja þeir sem ganga fram og vilja taf­ar­lausar laga­breyt­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár