Hægt að túlka mál á 48 tímum í stað 48 mánaða

Í við­kvæmum málum er oft tek­ist á um túlkun útlend­inga­laga, eins og mál 12 og 14 ára drengja frá Palest­ínu, þeirra Sameer Omran og Yazan Kaware. Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, er með LLM-próf í mann­rétt­indum frá Kaþólska háskól­anum í Leuven. Hún telur Útlend­inga­stofnun ekki vera að beita lög­unum rétt.

Þing­mað­ur­inn Arndís Anna er beðin um álit á mál­inu hins 12 ára Sameer Omran, sem nú á að vísa aftur til Grikk­lands – ásamt hinum fjórtán ára Yazan Kaware frænda hans – eftir átta mán­aða dvöl hjá fóst­ur­for­eldrum á Íslandi. Hún byrjar á að vísa í 36. grein útlend­inga­laga sem fjallar um efn­is­með­ferð umsóknar um alþjóð­lega vernd. En þar segir að taka skuli umsókn um alþjóð­lega vernd til efn­is­með­ferðar ef útlend­ing­ur­inn hefur slík sér­stök tengsl við landið að nær­tæk­ast sé að hann fái hér vernd eða ef sér­stakar ástæður mæla ann­ars með því.

„Ég hef ekki hitt þá mann­eskju enn þá innan stjórn­kerfis eða utan þess sem telur þessa nið­ur­stöðu ekki vera ranga út frá lög­unum. En lögin eru mats­kennd. Og því miður virð­ist Útlend­inga­stofnun hafa til­hneig­ingu til að beita þeim þannig að hún lætur kerfið njóta vafans frekar en ein­stak­ling­ana og lítur svo á að hags­munir …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár