Katrín skilar umboðinu til forsetans á eftir

Formanni Vinstri grænna mistókst að mynda rík­is­stjórn eftir að hafa fengið afhent stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á fimmtu­dag.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, mun skila for­seta Íslands stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu á fundi þeirra sem hefst klukkan 17 á eftir.

Á mbl.is segir Katrín að for­set­inn hafi gefið sér svig­rúm til að fara yfir stöð­una, leita ráð­rúms í sínu bak­landi og heyra í öðru fólki. “ Ég mun hins veg­ar fara til hans á Bessa­staði klukk­an fimm og skila þessu umboði í ljósi þess að ég hef eng­an ann­an meiri­hluta í hendi.

Katrín sagði það ekki hafa komið sér á óvart að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi slitið stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum sem stóðu yfir við Vinstri græn, Sam­fylk­ingu og Pírata. Þeir hafi alla tíð hafa haft áhyggjur af þeim nauma meiri­hluta sem rík­is­stjórnin hefði haft, en hún hefði haft 32 af 63 þing­mönnum. „Það kem­ur ekk­ert mér á óvart leng­ur. Við viss­um öll að þetta væri ekki auð­veld staða eft­ir kosn­ing­ar. Það er bara þannig sem maður nálg­ast þetta.“

Flestir við­mæl­endur Kjarnans búast við því að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fái næstur stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð.

Samfylkingin vildi allan tímann styrkja samstarfið með Viðreisn

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tjáði sig um stjórn­ar­slitin í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Þar segir hann að nið­ur­staðan hafi verið von­brigði. „iðræð­urnar voru góðar og allir flokkar lögðu sig fram um að ná saman um þau brýnu verk­efni sem bíða; efla heil­brigð­is­kerfið, sækja fram á mennta­svið­inu, byggja upp inn­viði og skapa hér rétt­lát­ara sam­fé­lag. Við vorum farin að sjá til lands í því verk­efni. Allan tím­ann vildi Sam­fylk­ingin styrkja slíkt sam­starf með Viðreisn. Því höfn­uðu Framsókn og þess vegna er það óskilj­an­legt að hún noti tæpan meiri­hluta sem rök fyrir slitum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár