Tæplega 5000 skráðu sig úr þjóðkirkjunni í fyrra

Meðlimum í íslensku þjóð­kirkj­unni heldur áfram að fækka, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar um trú­fé­laga­skrán­ingu. Nú eru 71,6% íslensku þjóð­ar­innar skráð í þjóð­kirkj­una, en hlut­fallið var 84% fyrir tíu árum síðan.

Fækkunin milli ára nam 4805 ein­stak­lingum á sama tíma og Íslend­ingum fjölg­aði um 3429.

Tæplega 46 þús­und manns eru sam­tals skráðir í trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lög sem hafa ekki fengið leyfi ráð­herra eða standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga. Þetta eru um fjögur þús­und ein­stak­lingum meira en í byrjun síð­asta árs, þegar tæp­lega 42 þús­und manns voru skráð þannig.

[adspot]

Stærsta trú­fé­lagið utan þjóð­kirkj­unnar er kaþ­ólska kirkjan, sem tæp­lega 12.500 manns eru skráð í. Tæp 10 þús­und eru skráð í Frí­kirkj­una í Reykja­vík.

Í byrjun árs voru 3087 ein­stak­lingar skráðir í Zúista, en í byrjun árs­ins í fyrra voru skráðir með­limir þar fjórir tals­ins. Um þús­und þess­ara ein­stak­linga komu frá þjóð­kirkj­unni. Zúistar vilja að ríkið felli úr gildi lög sem veitia trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum for­rétt­indi eða fjár­styrki umfram önnur félög, og vill að gagna­grunn­ur­inn um trú­fé­laga­skrán­ingar verði lagður af. Þeir hafa lofað að end­ur­greiða með­limum það fé sem félagið fær frá rík­inu, en það hefur taf­ist. Gert er ráð fyrir að end­ur­greitt verði á seinni hluta þessa árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár