Munu hafna öllum samningum sem hindra frjálsa för til Bretlands

Evr­ópu­þing­menn munu hafna öllum umleit­unum Breta um að stöðva frjálsa för Evr­ópu­sam­bands­borg­ara til Bret­lands á meðan verið er að semja um Brexit.

Evr­ópu­þingið mun hafna öllum samn­ingum um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, ef í þeim eru ákvæði sem koma í veg fyrir að íbúar ESB-ríkja sem flytj­ast til Bret­lands á næstu tveimur árum njóti sömu rétt­inda í land­inu og aðrir.

Evr­ópu­þing­menn eru sagðir hafa miklar áhyggjur af fréttum þess efnis að bresk stjórn­völd vilji að fráls för fólks verði stöðvuð frá og með morg­un­deg­inum, en þá verður form­lega til­kynnt um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Frjáls för fólks er ein grund­vall­ar­stoðin í Evr­ópu­sam­vinn­unni, en hún er jafn­framt ein helsta ástæða óánægju Breta með sam­bandið.

Málið var rætt á fundi Michel Barnier, aðal­samn­inga­manns ESB í Brexit-málum, og Evr­ópu­þing­manna í gær­kvöldi, að því er Guardian greinir frá. Í kjöl­farið var því bætt við kröfur Evr­ópu­þings­ins að engar breyt­ingar verði gerðar á rétt­indum borg­ara Evr­ópu­sam­bands­ins sem koma til Bret­lands á næstu tveimur árum, en það er tím­inn sem á að taka að ganga frá Brexit-sam­komu­lagi, þótt flestum sé ljóst að sá tímara­mmi muni ekki halda.

Ítrekað hefur verið greint frá því að stjórn­völd í Bret­landi telji að frá og með morg­un­deg­inum eigi að gera breyt­ingar á rétt­indum inn­flytj­enda frá öðrum Evr­ópu­sam­bands­ríkjum, þrátt fyrir að opin­ber­lega hafi verið sagt að það sé mál sem muni koma í ljós í samn­inga­við­ræð­unum um útgöng­una. Stjórn­völd eru sögð hafa áhyggjur af því að mik­ill fjöldi fólks frá öðrum Evr­ópu­sam­bands­ríkjum muni flytj­ast til Bret­lands skömmu áður en samn­inga­við­ræðum á að ljúka eftir tvö ár.

Evr­ópu­þingið mun krefj­ast þess að allir borg­arar Evr­ópu­sam­bands­ins muni njóta sömu rétt­inda á meðan Bretland er enn með­limur í sam­band­inu. Bretland sé enn aðild­ar­ríki að ESB og sem slíkt beri það skyldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár