Broddflugan Bob Dylan

Bob Dylan hlýtur Nóbels­verð­launin í bók­menntum þetta árið fyrir áhrifa­mikla texta sína. Hann hefur ekki sent frá sér neina yfir­lýs­ingu og er að fara spila á tón­leikum í kvöld. Ferill hans er með ólík­indum.

Árið er 1963. Robert Zimmerman, öðru nafni Bob Dylan, sendi þá frá sér plöt­una Times They Are Changing, sem var hans þriðja í röð­inni. Hann var 22 ára þegar platan kom út, og hafði í fartesk­inu sker­andi beitta texta og ein­staka hæfi­leika. Þeir voru aug­ljósir og höfðu raunar verið frá því hann kom fyrst fram sem ung­lingur.

Inn að beini

Textar ristu inn að beini hjá vald­höf­unum, þjöpp­uðu kyn­slóð­unum saman sem risu upp víða í Banda­ríkj­unum, þar sem kyn­þátta­hyggja og klofn­ingur vegna Víetnam­stríðs­ins og aðdrag­anda þess, hafði mikil áhrif á sam­fé­lags­gerð­ina.

Á þessum tíma mynd­aði Dylan sterk og djúp­stæð tengsl við banda­rískan tíð­ar­anda og fólk úr öllum stéttum, um öll Banda­ríkin. Þau tengsl áttu svo eftir að ber­ast út fyrir ríkin og um heim allan.

Það nötr­aði og skalf í húsum vald­haf­anna þegar hann steig á svið með gít­ar­inn, ein­stæðan söng og texta sem sögðu sögur sem fólk tengdi við. Hann skap­aði sinn eigin stíl, var sannur frum­kvöð­ull á sviði þjóð­laga­listar sem fylgt hefur Banda­ríkj­unum alla tíð.

Stóð með svörtum mitt í hatrinu

Sér­stak­lega náði Dylan að hreyfa við rétt­inda­bar­áttu svartra með lögum sínum og flutn­ingi, mann­rétt­inda­bar­áttu vítt og breitt, auk þess að skapa far­veg – nán­ast einn síns liðs – fyrir sam­taka­mátt lista­manna þegar stríðs­rekstri Banda­ríkj­anna í Víetnam var mót­mælt. Á árunum frá 1963 og fram yfir 1975 þá var hann svo áhrifa­mik­ill, að fá dæmi eru fyrir því nokkru sinni að tón­list­ar­maður hafi náð að mynda slík tengsl við landa sína og áheyr­endur.

Í morg­un­þætti útvarps­stöðvar hér á Seattle-svæð­inu í morgun voru Nóbels­verð­laun Bob Dylan mál mál­anna, og var þá fer­ill hans rifj­aður upp. Tilkynnt var um það í Stokk­hólmi í morgun að verð­launin færu til Dylan þetta árið. Rökin sem einkum var vísað til, voru textar hans sem höfðu mikil áhrif á banda­ríkska þjóð­laga­senu og sam­fé­lagið allt. 

The New Yorker segir í pistli af þessu til­efni að nú eigi fólk að njóta þess­ara tíma­móta með því að hlusta.

Dylan hefur engin við­töl veitt, og gerir það sárasjaldan, en hann er með tón­leika í Las Vegas í kvöld. Engin yfir­lýs­ing hefur enn borist frá honum vegna verð­laun­anna. Hann hefur alltaf farið sínar eigin leiðir. Stundum valdið deilum og farið á móti straumnum, en eng­inn getur efasta um sjálf­stæði hans sem lista­manns.

Erfitt að átta sig á áhrifunum

Sam­tíð­ar­menn hans sögðu ómögu­legt fyrir yngra fólk í dag að átta sig á því hvernig Dylan hefði hreyft við fólki á miklum umrót­ar­tímum í Banda­ríkj­unum.

Ný sam­fé­lags­gerð var að tekin að mót­ast eftir Kreppuna miklu og seinna stríð, og ógn­vekj­andi kyn­þátta­hatur, stríðs­rekstur og djúp­stæðar deilur höfðu aug­ljós áhrif á hann sem lista­mann. Nokkrum mán­uðum eftir að Times They Are Changing kom út var John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seti skot­inn, 23. nóv­em­ber 1963, í Dallas.

Tveimur árum seinna sendi hann frá sér sitt vin­sælasta lag, Like a Rolling Stone, sem kom út árið 1965. Ferill hans tók að teikn­ast upp inn í umrótið og var sum part hluti af því.

Stríðs­rekst­ur­inn í Víetnam hert­ist í kjöl­far dauða Kennedys og þjóðin var í sárum. Til­gangs­leysi stríðs­ins og ótti almenn­ings var umfjöll­un­ar­efni lista­manna, ekki síst ungs fólks í New York, þangað sem Dylan flutti til að fylgja ferli sínum betur eftir ríf­lega tví­tugur. Þar næstum áþreif­an­legur sköp­un­ar­kraftur á þessum tíma.

Á árunum 1960 til 1980 urðu lög hans að eins konar þjóð­söngvum bar­áttu­fólks um öll Banda­ríkin. Svartir náðu sér­stak­lega tengslum við Dylan-lögin. Eftir að Martin Luther King var drep­inn í Memphis, 4. apríl 1968, ómuðu lög Dylans oftar en ekki undir mót­mælum.

Eitt af hans fræg­ari lögum, Hurricane, sem Dylan samdi með Jacques Levy, kom út árið 1975. Lagið var bar­áttu­lag fyrir boxar­ann Rubin „Hurricane“ Carter, sem mátti þola kyn­þátta­for­dóma og marg­vís­legt órétt­læti allan sinn feril. Denzel Washington lék Hurricane í sam­nefndri kvik­mynd sem kom út árið 1999.

Flutti hugsanir sínar

Dylan hefur sjálfur fjallað um þennan tíma í bók sinni, Chronicles Volume One, og segir í þeim að hann hafi aldrei haft það bak við eyrað að hann væri í ein­hverri bar­áttu. Hann sagð­ist hafa reynt að orða hugs­anir sínar og flytja þær eins og hann teldi best. Það væri allt og sumt.

Dylan hefur verið á tón­leika­túr svo til allan sinn feril, og spil­aði á tón­leikum um allan heim. Hann þykir sér­lund­aður og á það til að halda tón­leika sem gestir eiga erfitt með að átta sig á.

Þessi brodd­fluga tón­list­ar­heims­ins – og nú bók­mennt­anna – skilur eftir sig dýpri spor í banda­rísku þjóð­lífi en flestir ef ekki allir núlif­andi Banda­ríkja­menn. Síðasti Banda­ríkja­mað­ur­inn til að vinna verð­launin var Toni Morrison árið 1993.

Þegar til­kynnt var um að verð­launin færu til Bob Dylan, spurðu blaða­menn hvers vegna tón­list­ar­maður væri að fá bók­mennta­verð­launin. „Times They Are Changing“ var svarið.

Dylan, sem nú er 75 ára gam­all, hefur ekki sagt sitt síð­asta. Hann hefur sent frá sér 37 stúd­íó­plötur, 11 tón­leika­plötur, 58 smá­skífur og fjöld­ann allan af safn­plötum. Afköstin hafa verið með ólík­indum á ferli sem spannar nú 55 ár.

Það er tákn­rænt að til­kynnt um að Nóbels­verð­launin hafi fallið í hans skaut, á meðan hann var að und­ir­búa sig fyrir tón­leika. Hann er eig­in­lega alltaf í þeim aðstæðum: Að fara spila á tón­leikum.

Kannski hljóma þessar línur hér að neðan. Beittari og kjarn­yrt­ari verða text­arnir ekki.

Times They Are Changing

Come gather 'round people where ever you roam And admit that the waters around you have grown And accept it that soon you'll be drenched to the bone If your time to you is worth savin' Then you better start swimmin' or you'll sink like a stone, For the times they are a' changin'!

Come writers and critics who prophesy with your pen And keep your eyes wide the chance won't come again And don't speak too soon for the wheel's still in spin And there's no tellin' who that it's namin' For the loser now will be later to win For the times they are a' changin'!

Come senators, congressmen please heed the call Don't stand in the doorway don't block up the hall For he that gets hurt will be he who has stalled There's a battle outside and it's ragin' It'll soon shake your windows and rattle your walls For the times they are a' changin'!

Come mothers and fathers throughout the land And don't criticize what you can't understand Your sons and your daughters are beyond your command Your old road is rapidly agin' Please get out of the new one if you can't lend your hand For the times they are a' changin'!

The line it is drawn the curse it is cast The slow one now will later be fast As the present now will later be past The order is rapidly fadin' And the first one now will later be last For the times they are a' changin'!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár