Ættu landsréttardómarar að skrá hagsmuni sína nánar?

Þing­maður Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra hvort til­efni væri til þess, í ljósi þess að Lands­réttur kveður upp flesta end­an­lega dóma nú til dags, að lands­rétt­ar­dóm­arar birti ítar­legri hags­muna­skrán­ingu, eins og hæsta­rétt­ar­dóm­arar hafa gert frá 2017.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því árið 2017 hefur verið hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands á vef dóm­stóls­ins. Það var eins og margir eflaust muna, út af „soldlu“, eins og stundum er sagt, en undir lok árs 2016 var fjallað um hluta­bréfa­eign hæsta­rétt­ar­dóm­ara í fjöl­miðlum.

Þá umfjöllun kall­aði Skúli Magn­ús­son fyrr­ver­andi for­maður Dóm­ara­fé­lags­ins og nú umboðs­maður Alþingis eitt sinn „þaul­skipu­lagða aðgerð“ til að koma höggi á trú­verð­ug­leika íslenskra dóm­stóla. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2020 að tap eins dóm­ara af hluta­bréfa­eign í Lands­banka Íslands í hrun­inu hefði verið svo veru­legt að draga hefði mátt í efa óhlut­drægni hans og hefur end­ur­upp­töku­nefnd fall­ist á end­ur­upp­töku nokk­urra mála sem tengj­ast hrun­inu vegna hluta­bréfa­eignar dóm­ara í föllnu bönk­unum.

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata spurði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra að því, í skrif­legri fyr­ir­spurn því hvort hann teldi ástæðu til þess að dóm­arar við Lands­rétt birtu sam­bæri­legar upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl sín og hæsta­rétt­ar­dóm­arar gera í dag, þar sem Lands­réttur hafi frá stofnun árið 2018 haft loka­orðið í flestum dóms­málum sem inn á borð dóm­stóla koma.

Í svari við fyr­ir­spurn þing­manns­ins kemur fram að ráð­herra hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort rétt sé að birta frek­ari upp­lýs­ingar um hags­muni lands­rétt­ar­dóm­ara. Í svari ráð­herra segir að við ákvörðun um hvaða upp­lýs­ingar dóm­urum sé skylt að birta opin­ber­lega veg­ist „ann­ars vegar á sjón­ar­mið um aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum um dóm­ara og hins vegar frið­helgi einka­lífs og per­sónu­vernd þeirra sem gegna emb­ætti dóm­ara“ og að mik­il­vægt sé fundið sé hæfi­legt jafn­vægi í þeim efnum.

Ráðherra bendir svo einnig á það í svari sínu að lögum sam­kvæmt setji nefnd um dóm­ara­störf reglur um hvers konar auka­störf, eign­ar­hald í hluta­fé­lögum, eða þátt­taka í starfi ann­arra félaga og sam­taka geti sam­rýmst emb­ætt­is­störfum dóm­ara.

Bendir ráð­herra jafn­framt á að það eru í gildi reglur frá 2017 þess efni að aðilar dóms­mála eigi rétt á að fá upp­lýs­ingar um auka­störf dóm­ara sem fara með mál þeirra, sem og eign­ar­hald í félögum eða atvinnu­fyr­ir­tækjum, ef nefnd um dóm­ara­störf telji til­efni til þess.

„Með öðrum orðum þá á aðili dóms­máls rétt á að fá upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl dóm­ara til að gæta hags­muna sinna, umfram það sem leiðir af skyldu til að birta slíkar upp­lýs­ingar opin­ber­lega,“ segir í svari ráð­herra.

Engar reglur knýja fram hagsmunaskráningu hæstaréttardómara

Andrés Ingi spurði dóms­mála­ráð­herra einnig að því á hvaða laga­grund­velli birt­ing á upp­lýs­ingum um hags­muna­tengsl hæsta­rétt­ar­dóm­ara væri byggð. Svarið er það, að engin sér­stök krafa er um það í lögum að hæsta­rétt­ar­dóm­arar birti hags­muni sína með þeim hætti sem þeir hafa gert und­an­farin ár.

Dóms­mála­ráðu­neytið afl­aði upp­lýs­inga frá Hæsta­rétti Íslands um þetta og fékk þau svör að dóm­arar við Hæsta­rétt hafi að eigin frum­kvæði ákveðið að birta meiri upp­lýs­ingar á vef rétt­ar­ins en lög gera kröfur um, en sam­kvæmt reglum sem settar voru árið 2018 á að birta opin­ber­lega upp­lýs­ingar um fyrri störf dóm­ara og þau auka­störf sem dóm­ari gegnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár