Mengun 50 sinnum yfir heilsuverndarmörkum nyrst í Kína

Orku­fram­leiðsla með kola­bruna til hús­hit­unar eykst á vet­urnar í Kína.

Fólk setur grímur fyrir vit sín til að vernda sig gegn menguninni.
Fólk setur grímur fyrir vit sín til að vernda sig gegn meng­un­inni. Mynd: EPA

Það er svarta­þoka í stærstu borgum í norð­an­verðu Kína. Um er að ræða stæka meng­un­ar­móðu sem, sam­kvæmt við­miðum Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, getur gert loft­gæðin allt að 50 sinnum verri en talið er vera heilsu­spill­andi.

Sífeld loft­mengun í Kína er vana­lega verst á vet­urnar þegar kola­brennsla nær hámarki til þess að fram­leiða orku til hús­hit­unar, svo dæmi sé tekið. Þessi mikla mengun hefur verið tengd mörg­hund­ruð þús­und ótíma­bærum dauðs­föllum og verið sögð ein ástæða óánægju í garð komm­ún­ista­flokks­ins sem öllu ræður í Kína. Í mynd­band­inu frá Reuters-frétta­stof­unni hér að neðan má sjá hversu þykk meng­un­ar­móðan er.

Reuters: Mengunarteppi yfir borgum Kína

Í borg­inni Changchun búa um átta millj­ónir manna en þar hefur meng­un­ar­móðan verið svo þykk að magn svifryks mæld­ist 860 míkrógrömm á hvern rúmmeter. Alþjóða­heil­brið­is­stofn­unin segir að sól­ar­hrings­með­al­tal yfir 25 míkrógrömmum sé heilsu­spill­andi fyrir fólk. Til sam­an­burðar þá var magn svifryks í Reykja­vík, nánar til­tekið við Grens­ás­veg 3,05 míkrógrömm á rúmmeter, í hádeg­inu í dag.

[adspot]

Fréttir bár­ust af því fyrr í þessum mán­uði að Kína hafi brennt 17 pró­sent meira af kolum en stjórn­völd þar í landi höfðu áður gefið upp. Það þýðir að Kín­verjar losa nærri millj­arð tonna meira af koltví­oxíði út í and­rúms­loftið en áður var reiknað með. Kína hefur tekið fram úr Banda­ríkj­unum sem stærsta meng­un­ar­land heims og situr nú fast á toppi list­ans, með nærri tvö­falt meiri útblástur.

Á mynd­band­inu hér að neðan má sjá gögn Geim­ferða­stofn­unar Banda­ríkj­anna, NASA, um upp­runa kolefnis í and­rúms­lofti jarðar. Gagnanna var aflað frá ágúst 2006 til apríl 2007. Síðan þá hefur útblástur Kína auk­ist gríð­ar­lega. Einungis tveimur árum síðar blés Kína nærri átta millj­örðum tonna af koltví­oxíði, miðað við nærri sex millj­arða tonna árið 2006. Fylgist með hvíta reyknum sem mynd­ast við strendur Kína.


Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna hefst 30. nóv­em­ber í París. Þar er mark­miðið að kom­ast að lagaa­lega bind­andi sam­komu­lagi um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár