Fylgið hrunið og formaðurinn í réttarsalnum

Þessa dag­ana standa yfir rétt­ar­höld í máli for­manns Danska þjóð­ar­flokks­ins vegna svindls og mis­nokt­unar á fjár­munum. Fyrir rúmu ári var for­mað­ur­inn fund­inn sekur í sama máli en sá dómur var ógiltur vegna ummæla á Facebook, sem dóm­ar­inn tók undir.

Kristian Thulesen Dahl og Pia Kjaersgaard hafa bæði gegnt formennsku í Danska þjóðarflokknum.
Kristian Thulesen Dahl og Pia Kja­ers­gaard hafa bæði gegnt for­mennsku í Danska þjóð­ar­flokknum. Mynd: EPA

Í 27 ára sögu Danska þjóð­ar­flokks­ins, DF, hafa skipst á skin og skúrir. Stofn­end­urnir voru fjórir þing­menn sem verið höfðu í Fram­fara­flokki Mogens Glistrup, en þar hafði allt logað í ill­deilum. Pia Kjærs­gaard var í for­ystu fyrir hópnum sem klauf sig úr Fram­fara­flokknum og hún varð fyrsti for­maður DF og gegndi því emb­ætti til árs­ins 2012. Flokk­ur­inn bauð fyrst fram árið 1998 og fékk þá 13 þing­menn. Eftir þing­kosn­ing­arnar 2001 var DF orð­inn þriðji stærsti flokkur lands­ins með 22 þing­menn. Í kosn­ing­unum 2007 jók flokk­ur­inn enn fylgi sitt, fékk þá 25 þing­menn. Tapaði svo 3 árið 2011. Árið 2012 tók Kristian Thulesen Dahl við for­mennsk­unni og fylgi flokks­ins tók kipp. Í kosn­ing­unum 2015 fékk DF 37 þing­menn og var þá næst stærsti flokkur lands­ins. Stjórn undir for­ystu Helle Thorning- Schmidt leið­toga jafn­að­ar­manna féll í kosn­ing­unum.

Sögðu flokkinn ekki tilbúinn

Margir bjugg­ust við að í ljósi þessa góða árang­urs myndi DF taka þátt í rík­is­stjórn undir for­ystu Venstre og Lars Løkke Rasmus­sen. Löng hefð er fyrir minni­hluta­stjórnum í Danmörku og eftir kosn­ing­arnar 2015 höfðu Venstre og yfir­lýstir stuðn­ings­flokkar ein­ungis 53 þing­sæti. Með þátt­töku DF hefði stjórnin og stuðn­ings­flokkar fengið 90 þing­sæti, eins sætis meiri­hluta á þing­inu, en þar sitja 179. Forysta DF taldi flokk­inn ekki til­bú­inn til stjórn­ar­setu og þar að auki hefði flokk­ur­inn meiri áhrif utan stjórnar en innan, gæti með öðrum orðum ráðið því sem hann vildi „úr aft­ur­sæt­inu“. Stjórn­mála­skýrendur töldu þessa afstöðu geta komið flokknum í koll. „Snúa kjós­endur ekki á end­anum baki við flokki sem skortir metnað, eða vill axla ábyrgð, nema úr áður­nefndu aft­ur­sæti“. Sem kom á dag­inn í kosn­ing­unum 2019.

Reiðarslag

Úrslit kosn­ing­anna 5. júní 2019 voru sann­kallað reið­ar­slag fyrir DF. Flokk­ur­inn tap­aði 21 þing­manni af þeim 37 sem flokk­ur­inn fékk 2015, og hafði nú 16. Stjórn­mála­skýrendur töldu áður­nefnda afstöðu til stjórn­ar­setu og harða stefnu flokks­ins í mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda skýra fylgis­tapið. Pia Kjærs­gaard, fyrr­ver­andi for­maður, hafði sömu­leiðis talað í niðr­andi tóni um umhverf­is­sinna, kall­aði þá lofts­lags­flón, klimatosser. Farið var að hitna undir for­mann­inum, Kristian Thulesen Dahl og raddir um nauð­syn þess að skipta um leið­toga urðu háværar. Einkum talað um einn mann, Morten Messerschmidt.

Réttarhöldin 2021

Eins og getið var um í upp­hafi þessa pistils eru rétt­ar­höldin sem nú standa yfir end­ur­tekn­ing á rétt­ar­höldum sem fram fóru á síð­asta ári (2021). Þá var Morten Messerschmidt fund­inn sekur um svindl og mis­notkun fjár úr sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins en hann sat á Evr­ópu­þing­inu frá 2009 til 2019. Um það mál var fjallað ítar­lega í pistli hér í Kjarn­anum í ágúst 2021 og hluti hans nú end­ur­birtur hér, skáletr­aður.

Við kosn­ingar til Evr­ópu­þings­ins árið 2009 fékk Morten Messerschmidt 284 þús­und atkvæði, aðeins einu sinni hafði fram­bjóð­andi fengið fleiri atkvæði. Í Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum 2014 bætti hann um betur og fékk 466 þús­und atkvæði. Morten Messerschmidt hefur alla tíð verið mjög gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bandið og margoft talað fyrir því að það verði leyst upp. Fyrir þing­kosn­ing­arnar í Danmörku árið 2019 hafði Morten Messerschmidt ákveðið að söðla um, hætta á Evr­ópu­þing­inu og bjóða sig fram fyrir DF á Norður Sjálandi. Hann hlaut mjög góða kosn­ingu og varð jafn­framt vara­for­maður DF.

Meld og Feld

Árið 2015 varð Morten Messerschmidt for­maður félags­ins Meld. Meld (sem ekki starfar lengur) var félag þing­manna flokka sem full­trúa áttu á Evr­ópu­þing­inu, flokka sem voru gagn­rýnir á störf og til­veru Evr­ópu­sam­bands­ins. Feld var sjóður tengdur Meld og sá um að úthluta styrkjum til verk­efna. Meld og Feld nutu styrkja frá Evr­ópu­sam­band­inu en styrk­ina mátti ein­ungis nota til verk­efna sem tengd­ust ESB, en ekki til verk­efna tengdum ein­stökum flokkum, til dæmis í heima­landi við­kom­andi flokks. Ekki til kosn­inga­und­ir­bún­ings eða sam­koma á vegum ein­stakra flokka.

Rikke Karlsson og reikningarnir

Í októ­ber 2015 sagði Rikke Karlsson þing­maður á Evr­ópu­þing­inu sig úr DF. Hún hafði árang­urs­laust óskað eftir því við Morten Messerschmidt að fá afhent yfir­lit reikn­inga Meld sem hún átti sæti í. Hún sak­aði Morten Messerschmidt um að hafa óhreint mjöl í poka­horn­inu úr því hann vildi ekki afhenda umrædda reikn­inga. Morten Messerschmidt gerði lítið úr þessu og hædd­ist að Rikke Karlsson

Í nóv­em­ber 2015 ákvað Evr­ópu­sam­bandið að Meld og Feld skyldu leyst upp og þau skyldu jafn­framt end­ur­greiða pen­inga sem not­aðir hefðu verið til að greiða árlegt sum­ar­ferða­lag DF um Danmörku.

Í við­tali við danska fjöl­miðla í maí 2016 neit­aði Morten Messerschmidt að hafa mis­farið með fé úr sjóðum ESB og sagð­ist vera fórn­ar­lamb ofsókna and­stæð­inga sinna.

Þremur dögum eftir áður­nefnt við­tal ákvað for­sætis­nefnd Evr­ópu­þings­ins að Meld og Feld (sjóðir þeirra höfðu verið frystir) skyldu end­ur­greiða jafn­gildi 60 millj­óna íslenskra króna sem hefði verið varið til verk­efna sem ekki sam­ræmd­ust reglum, t.d. kosn­inga­bar­áttu. 1. ágúst 2016 greindi Ekstra­bla­det frá því að Rikke Karlsson, ásamt Jørn Dohrman hefðu verið kosin í stjórn í Meld og Feld, þótt þau væru ekki á staðnum og und­ir­skriftir þeirra á papp­írum frá fund­inum væru fals­aðar. Sama dag kærði Rikke Karlsson Morten Messerschmidt til lög­reglu fyrir skjala­fals.

Rannsóknarskýrslan

Í sept­em­ber árið 2019 skil­aði eft­ir­lits­stofn­unin OLAF (starfar á vegum fram­kvæmda­stjórnar ESB) skýrslu sinni um Meld og Feld. Í skýrsl­unni kemur fram að fé Meld og Feld hafi verið notað með ólög­legum hætti, upp­hæðin næmi að minnsta kosti jafn­gildi 86 millj­ónum íslenskra króna. Þessi skýrsla leiddi til þess að lög­reglu og ákæru­valdi í heima­löndum þeirra félaga sem áttu aðild að Meld og Feld var falin áfram­hald­andi rann­sókn. Í Danmörku leiddi sú rann­sókn til ákæru á hendur Morten Messerschmidt. Danska þingið hafði þá sam­þykkt að svipta hann þing­helgi.

6 mánaða fangelsi

Þann 1. ágúst í fyrra dæmdi bæj­ar­réttur í Lyngby (neðsta dóm­stig af þremur) Morten Messerschmidt í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi. Morten Messerschmidt áfrýj­aði en krafð­ist þess jafn­framt að dóm­ur­inn yrði ógiltur vegna ummæla sem dóm­ar­inn í mál­inu hafði „lækað“ á Facebook og Morten Messerschmidt taldi sýna óvild í sinn garð. Eystri- Lands­réttur ógilti fyrri nið­ur­stöðu og málið skyldi end­ur­flutt, fyrir bæj­ar­rétti á Frið­riks­bergi.

Formaður og algjört fylgishrun

Morten Messerschmidt var kjör­inn for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins 23. jan­úar sl. Mikil óein­ing hefur ríkt innan flokks­ins og fjöl­margir, þar á meðal fyrr­ver­andi for­maður og for­maður þing­flokks­ins, hafa sagt skilið við flokk­inn. Sumir þeirra gengu til liðs við flokk Inger Støjberg, Dan­marks­demokra­terne.

Þing­kosn­ingar fóru fram í Danmörku 1. nóv­em­ber sl. Kannanir höfðu bent til að DF undir for­ystu Morten Messerschmidt hlyti slæma útreið. Jafnvel talið að svo gæti farið að flokk­ur­inn þurrk­að­ist út, fengi engan þing­mann kjör­inn. Samkvæmt dönsku kosn­inga­lög­unum verða flokkar að fá minnst tvö pró­sent atkvæða til að ná inn en fyr­ir­komu­lagið er þannig að nái flokkur þessum tveimur pró­sentum fær hann fjóra þing­menn. Í kosn­ing­unum 1. nóv­em­ber fékk DF fimm þing­menn og er algjör­lega áhrifa­laus í þing­inu. Meðal fimm­menn­ing­anna sem náðu kjöri eru for­mað­ur­inn Morten Messerschmidt og Pia Kjærs­gaard stofn­andi flokks­ins.

Réttarhöldin endurtekin

Þegar ljóst var að Morten Messerschmidt hafði verið kjör­inn á þing í nýaf­stöðnum kosn­ingum þurfti danska þingið að taka afstöðu til spurn­ing­ar­innar um þing­helgi. Þingið sam­þykkti að afnema þing­helg­ina og rétt­ar­höldin hófust sl. fimmtu­dag, 24. nóv­em­ber. Þótt um eins­konar end­ur­tekn­ingu á rétt­ar­höld­unum á síð­asta ári sé að ræða er málið allt flutt frá grunni og Morten Messerschmidt sagði við upp­haf rétt­ar­hald­anna að nú kæmi ýmis­legt nýtt fram sem styddi sinn mál­stað. Sem sé að pen­ing­arnir umdeildu hefðu verið nýttir í ráð­stefnu á vegum Evr­ópu­þings­ins en ekki til að standa straum af sum­ar­þingi DF. Gert er ráð fyrir að dómur falli fyrir jól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár