„Sökudólgurinn í þessu verkefni er veiran, ekki fólkið“

Upp­lýs­inga­fundur almanna­varna var í höndum þrí­eyk­is­ins Ölmu, Víðis og Þórólfs í dag. Víðir gerði smit­skömm að umræðu­efni í loka­orðum sínum á fund­inum.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á fundi dagsins
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á fundi dags­ins Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn, gerði smit­skömm að umræðu­efni í loka­orðum sínum á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna fyrr í dag. „Söku­dólg­ur­inn í þessu verk­efni er veiran, ekki fólkið. Það ætlar sér eng­inn að veikj­ast, það ætlar sér eng­inn að smita aðra og bar­áttan sem við stöndum í er við veiruna en hún á ekki að standa á milli okkar allra,“ sagði Víðir á fund­inum.

Hann nýtti einnig tæki­færið til að minna á ein­stak­lings­bundnar smit­varnir. Ef fólk er með ein­kenni, þó þau séu ekki nema smá­vægi­leg, ætti það að fara í sýna­töku og halda sig heima við. Hann sagði að fólk ætti hvorki að heils­ast með handa­bandi eða faðm­ast. Þá beindi hann þeim til­mælum til fólks í áhættu­hópum að forð­ast mann­fjölda.

„Við þurfum að vera umburð­ar­lynd, við þurfum að vera skiln­ings­rík, við þurfum að vera góð hvert við annað. Þetta verk­efni verður áfram í okkar höndum,“ voru loka­orð Víðs á fund­inum í dag en ásamt honum fóru Alma D. Möller, land­læknir og Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir yfir stöðu mála.

Fá smit í samfélaginu eins og er

Þórólfur hóf fund­inn á að fara yfir tölu­leg gögn. Í gær voru um 1.200 sýni tekin á landa­mær­unum en alls komu 3.800 far­þegar til lands­ins. Af þeim sýnum bíður eitt eftir mótefna­mæl­ingu. Frá 15. Júní hafa tæp­lega 100 þús­und far­þegar komið til lands­ins og um 63 þús­und sýni verið tekin á landa­mær­unum. Úr landamæra­skimun hafa alls 25 ein­stak­lingar greinst með COVID-19 og af þeim voru tíu ein­stak­lingar búsettir á Íslandi.

Varðandi inn­an­lands­smit þá greindust sjö smit­aðir í gær. 58 virk smit eru í sam­fé­lag­inu og 454 í sótt­kví. Íslensk erfða­grein­ing hefur ski­mað um 1900 ein­stak­linga í sínum skimunum sem hófust 29. júlí. Tveir hafa greinst jákvæðir í þeim skimunum. Það segir Þórólfur benda til þess að fá smit séu í sam­fé­lag­inu eins og töl­urnar líta út núna.

Minnir fólk á að virða heimkomusmitgát

Alma minnti á að hertar tak­mark­anir eru ekki settar á af ástæðu­lausu. „Nú þegar veiran er aftur komin á kreik og við höfum öll þurft að taka okkur á og sæta þessum hertu ráð­stöf­unum, þá er hollt að við minnum okkur á hvers vegna við erum að þessu. Það er af því að þessi veira er skæð. Við höfum séð erlendis hvers hún er megnug ef að lítið er að gert. Þar hefur fjöldi fólks veikst þannig að heil­brigð­is­kerfið hafi ekki undan,“ sagði Alma.

Hún sagði skimanir á landa­mærum hafa tek­ist vel en þó væri eitt og annað sem þyrfti að herða á. Hún sagði það mjög mik­il­vægt að fólk haldi sig algjör­lega til hlés þar til að nei­kvætt svar úr sýna­töku hefur borist með sms skila­boðum eða þangað til að 24 klukku­stundir eru liðnar frá sýna­töku. „Við biðlum til allra, meðal ann­ars aðila í ferða­þjón­ustu að þessi mik­il­væga regla er virt.“

Þá bað hún fólk sem er á leið í heim­komusmit­gát um að virða reglur úrræð­is­ins í hví­vetna, leið­bein­ingar um heim­komusmit­gát megi finna á land­la­eknir.is og covid.is. „Þar viljum við sér­stak­lega biðla til atvinnu­rek­enda að heim­komusmit­gátin sé virt. Það er ekki fyrr en seinna sýnið er komið nei­kvætt að heim­komusmit­gát lýkur,“ sagði Alma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár