Áhugaverðustu ferðamannastaðir landsins á gagnvirku korti

Ferða­mála­stofa opn­aði nýlega fyrir viða­mikin gagna­grunn yfir þá staði sem hafa mest aðdrátt­ar­afl á Íslandi. Alls var upp­lýs­ingum safnað um yfir 2.500 staði á öllu land­inu í verk­efni sem hefur staðið í fjögur ár, eða síðan Alþingi sam­þykkti Ferða­mála­á­ætlun til 2020 í júní 2011.

Auðvelt er að týna sér í korti, sem byggir á gagna­grunn­inum, og finna leyndar perlur á lands­byggð­inni en fólk í heima­byggðum var fengið til að til­nefna staði og leiðir og meta út frá fyr­ir­fram ákveðnum við­miðum. Við hvern punkt má lesa um áfanga­stað­inn, hvað þar er að finna og jafn­vel fá leið­ar­lýs­ingu þangað.

Aðspurður segir Elías Bj. Gíslason, for­stöðu­maður Ferða­mála­stofu á Akureyri, að þetta séu að ein­hverju leyti staðir sem vott­aðir hafa verið af heima­mönnum. „Það eru líka alltaf ein­hver svæði sem eru umdeild. Þarna eru til dæmis ekki staðir sem eru innan mik­ils þétt­býlis,“ segir hann. Það er þó umdeilt hvernig skal skil­greina þétt­býli. Enginn punktur er þess vegna í miðbæ Reykja­víkur, en Gróttu­viti og kenni­leiti í Viðey eru til dæmis merkt.

Nær allir stað­irnir sem til­nefndir voru röt­uðu á þetta kort sem skoða má í sér­stakri korta­sjá á vefnum. Birtingu upp­lýs­inga um ein­hverja staði var frestað vegna þess að þeir þykja of við­kvæmir fyrir mik­illi ágengni og þarfn­ast frek­ari und­ir­bún­ings.

Í skýrslu um verk­efnið sem gefin var út sam­hliða opnun korts­ins á vefnum segir að verk­efn­inu hafi verið ætlað að „kort­leggja auð­lindir ferða­þjón­ust­unnar“ eins og það er orðað. Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa nú heild­stæðan gagna­grunn að leita í þegar þeir flytja ferða­menn um landið í þeirri von að heim­sækja áhuga­verða staði. Punkt­arnir á kort­inu er þess vegna merktir rauðir ef þeir telj­ast sér­stak­lega áhuga­verðir en gulir ef þeir hafa miðl­ungs aðdrátt­ar­afl.

Elías segir að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki geti hag­nýtt sér þessar upp­lýs­ingar til að áætla hvar tæki­færi séu að finna. Hugsunin í upp­hafi hafi verið að þarna væri hægt að raða saman upp­lýs­ingum um staði og þjón­ustu og áttað sig á hugs­an­legum tæki­færum í ferða­þjón­ustu, eða ógnum.

Gögnin gagn­ast ekki aðeins ferða­þjón­ust­unni eða áhuga­sömum ferða­löngum því þau hafa þegar verið fengin fag­hópi vegna Ramma­á­ætl­unar 3, Landsnet notar þessi gögn í umhverf­is­mati fyrir kerf­is­á­ætlun til árs­ins 2024 og mat virkj­un­ar­kosta Lands­virkj­unar veltur meðal ann­ars á þessum gagna­grunni.

„Þetta verk­efni þró­að­ist í raun og veru á meðan á því stóð. Hugsunin var fyrst að fara af stað með þetta fyrir skipu­lags­vinnu og þróun á nýjum vörum fyrir ferða­þjón­ust­una,“ segir Elías. „En þetta er ekki síst hugsað fyrir sveit­ar­fé­lög og aðra til að nýta við skipu­lags­vinnu.“

[caption id="attachment_34830" align="alignnone" width="1000"] Borg­ar­fjörður er sögu­svið margra íslend­inga­sagna.[/caption]

Auk þessa almenna korts söf­uð­ust upp­lýs­ingar í annan gagna­grunn fyrir sögu­svið Íslend­inga­sagna. Í því safni má smella á kenni­leiti og lesa brot úr þeim íslend­inga­sögum þar sem stað­ur­inn kemur fyrir.

Í þess­ari vinnu voru ekki aðeins teknar saman upp­lýs­ingar yfir staði sem þegar hefur verið safnað upp­lýs­ingum um heldur gögnum og heim­ildum safnað um fleiri staði sem ekki voru til í gagna­grunni Vega­gerð­ar­innar eða Land­mæl­inga Íslands. Sem dæmi hefur korta- og almennum upp­lýs­ingum verið safnað um áhuga­verðan gróður, áhuga­vert dýra­líf, berja­lönd, frið­lýstar rústir og annað í þeim dúr.

Skoða má bæði kortin á vefnum en þau eru hýst hjá Alta, fyr­ir­tæk­inu sem ann­að­ist fram­kvæmd verk­efn­is­ins síðan síð­asta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár