Ásmundur Einar: „Það liggur í raun ekkert á að kjósa“

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist vilja að rík­is­stjórnin klári „mik­il­væg verk­efni sem liggja fyrir áður en boðað verður til kosn­inga.“ Hann sé eng­inn áhuga­maður um að flýta kosn­ingum til þings­ins nema þessum mik­il­vægu verk­efnum sé lokið áður. „Það liggur í raun ekk­ert á að kjósa en stjórn­ar­and­staðan hefur hins vegar lagt ríka áherslu á að kjósa helst strax.“ Þetta kemur fram í pistli hans á Eyjunni.

Pistill­inn fjallar um Dýra­fjarð­ar­göng, sem Ásmundur Einar segir að standi til að bjóða út í haust og hefja fram­kvæmdir á næsta ári. Kosn­ingar fyrr hafi hins vegar áhrif á þetta.

Sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2015 til 2018 gerir ráð fyrir að ráð­ist verði í göngin á næsta ári. „Áður en kosn­ingum verður flýtt þá skulum við klára að afgreiða sam­göngu­á­ætlun sem mælt var fyrir í síð­ustu viku,“ skrifar Ásmundur Einar og heldur áfram með fjár­lögin. „Áður en kosn­ingum verður flýtt þá skulum við klára að afgreiða fjár­lög fyrir árið 2017 og tryggja þannig fjár­magn til verk­efn­is­ins á næsta ári.“

Ásmundur Einar hefur áður talað fyrir því að ekki verði kosið í haust og sagði á fundi fyrir vestan í vik­unni að rík­is­stjórnin hefði umboð fram í apríl 2017. For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar, Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son, hafa þó talað með öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár