Bækur eru eins konar kjörheimili texta

Bókin Brim Hvít Sýn, sam­an­tekt til­rauna mynd­list­ar­kon­unnar Jónu Hlífar með marg­vís­legt sam­spil texta og mynd­listar, er vænta­leg. Safnað er fyrir útgáf­unni á Karolina fund.

Mynd­list­ar­konan Jóna Hlíf er löngu orðin kunn fyrir verk sín, ekki síst áherslu sína á efni­við­inn sem hún vinnur með, mótun hans, tær­ingu, veðrun og aðrar umbreyt­ingar. Textar hafa ætíð verið stór hluti af mynd­list hennar: gam­al­kunnug orð í nýju sam­hengi; and­stæð orð sem teflt er saman; orða­leikir, heim­speki­legar pæl­ingar um merk­ingu orða; stafir sem skúlp­t­úrar, ljóð­ræn texta­brot.

Nú er vænt­an­leg bókin Brim Hvít Sýn þar sem verður að finna sam­an­tekt á afrakstri til­rauna hennar með marg­vís­legt sam­spil texta og mynd­listar: um 100 ljós­myndir af verkum auk sýn­ing­ar­texta og umfjöll­unar um verkin. Rit­stjóri er Auður Aðal­steins­dóttir og segir hún að þegar úr svo umfangs­miklu höf­und­ar­verki sé að moða þurfi að ákveða meg­in­á­herslur og velja út frá því svo að úr verði bók með afmark­aðri heild­ar­sýn og þema.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Í gegnum árin hefur Jóna Hlíf ekki aðeins haldið til haga verkum og textum tengdum sýn­ingum sínum heldur einnig umfjöllun um verkin. Hún hefur um nokk­urt skeið velt því fyrir sér hvort hér gæti verið komið efni í heila bók og þegar ég frétti af því stakk ég strax upp á að hún gæti gefið slíka bók út hjá útgáfu­fyr­ir­tæk­inu mínu, Ástríki ehf, sem ég rek ásamt Ástu Gísla­dóttur. Við höfum reyndar unnið að ýmsum verk­efnum með Jónu Hlíf í gegnum tíð­ina, meðal ann­ars tekið að okkur að þýða og lesa yfir texta Störu, tíma­riti Sambands íslenskra mynd­list­ar­manna, sem hún rit­stýrði á þeim tíma. Við erum því vanar að vinna saman allar þrjár og það ríkir bæði traust og vin­átta í þessu verk­efni sem öðrum. Það hefur síðan verið gef­andi og áhuga­vert að fara með Jónu Hlíf í gegnum höf­und­ar­verkið hennar og kafa í ein­staka þætti – en aðeins erf­ið­ara auð­vitað að vinsa úr, því bókin er ekki heild­ar­yf­ir­lit heldur hefur ákveðið meg­in­þema.“

Segðu okkur frá þessu þema?

„Jóna Hlíf hefur unnið mikið með texta í mynd­list­inni sinni, á ótrú­lega fjöl­breyttan hátt, og eins og kemur fram í við­tali sem ég tók við hana og er meðal efnis í bók­inni þá eru bækur eins konar kjör­heim­ili texta. Það lá því beint við að koma texta­verk­unum hennar út í bók­ar­formi og halda með því áfram þess­ari skap­andi vinnu í kringum text­ana; skapa enn eitt og nýtt verk upp úr öllum texta­verk­unum. Það má því segja að sam­spil mynd­listar og texta sé meg­in­þemað en inn í það flétt­ast svo aðrir sterkir þræðir í mynd­list Jónu Hlífar, til dæmis ímynda­sköpun og sjálfsí­mynd, for­gengi­leiki efnis og orða, teng­ing okkar við nátt­úr­una, með orðum og myndum, og kannski ekki síst öll póli­tíkin og sögu­lega sam­hengið bak við texta og fram­setn­ingu þeirra.“

[adspot]Auður end­ur­tekur að Jóna Hlíf á við texta á mis­mun­andi vegu í verkum sínum. „Hún sker stafi út úr jafn ólíku efni og pappír eða kopar, reisir þá upp eins og skúlp­t­úra, myndar með þeim skugga eða end­ur­varp úr vatni og lætur þá jafn­vel loga. Í kringum sýn­ingar sínar semur hún texta, oft í náinni sam­vinnu við eig­in­mann sinn Hjálmar Stefán Brynj­ólfs­son, og sum verka hennar eru ein­fald­lega texti á vegg. Orðin sem stafirnir mynda eru gjarnan sett í óvænt sam­hengi með fram­setn­ing­unni og sam­spili við önnur orð eða myndir. Og svo hefur Jóna Hlíf líka gert bók­verk og notað til­vitn­anir úr alls konar textum sem við tengjum vana­lega ekki við mynd­list: sögu­legum heim­ildum, laga­textum og veð­ur­fars­lýs­ingum, svo dæmi séu nefnd. Í raun virð­ast mögu­leik­arnir óþrjót­andi og enda þótt Jóna Hlíf eigi langan feril að baki er ljóst að hún á enn eftir að kanna margt í þessum efnum.“

Hvers vegna völduð þið að gefa þessa bók út núna?

„Eins og áður kom fram mun Jóna Hlíf halda áfram að þró­ast sem lista­maður og skapa þótt hún hafi ákveðið að nú væri komið að þeim punkti á ferl­inum að gott væri að staldra aðeins við og líta til baka á allt það sem hún hefur þegar lagt af mörkum. Í víð­ara sam­hengi held ég að þessi bók hafi einmitt mikið erindi bæði sem heim­ild og sem fram­lag í list­um­ræð­una sem fram fer núna. Það er nefni­lega afar mik­il­vægt að halda sam­tíma­list og sam­tíma­lista­mönnum á lofti, að efla umfjöllun og umræðu um þá og beina

þannig reglu­lega kast­ljós­inu að því sem lista­menn eru að gera hér og nú.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár