Konungur skipaskurðanna 150 ára

Þótt flestir tengi nafnið Súes við skipa­skurð eru þeir færri sem þekkja sögu þessa lengsta skipa­skurðar í heimi. Nú eru 150 ár síðan hann var opn­aður.

Súes-skurðurinn árið 1869
Súes-skurð­ur­inn árið 1869 Mynd: Wiki Commons

Árið 1798 stóð Napóleon Bónap­arte, sem þá var for­ingi í franska hernum, í ströngu í Egypta­landi þar sem hann átti í stríði við Breta. Egypta­land var bresk nýlenda og Bretar voru á þessum tíma ein helsta ógn Frakka. Egypta­lands­för Napól­e­ons reynd­ist engin frægð­ar­för en þegar Napóleon kom til Frakk­lands var honum fagnað sem þjóð­hetju.

Á meðan Napóleon var að kljást við Breta sendi hann hóp sér­fræð­inga til að kanna mögu­leika þess að grafa skurð sem myndi tengja Rauða­hafið við Mið­jarð­ar­hafið. Sér­fræð­ing­arnir komust að þeirri nið­ur­stöðu að yfir­borð Rauða­hafs­ins væri að minnsta kosti níu metrum hærra en yfir­borð Mið­jarð­ar­hafs­ins. Skurður sem tengdi saman höfin tvö myndi valda því að sjór úr Rauða haf­inu myndi flæða yfir hið víð­feðma óseyra­svæði Níl­ar­fljóts við Mið­jarð­ar­hafið (strand­lína svæð­is­ins er um 240 km) og valda þar gríð­ar­legum skemmdum. Óseyr­arnar eru mik­il­vægt rækt­un­ar­land og nið­ur­staða sér­fræð­ing­anna varð til þess að Napóleon féll frá öllum hug­myndum um skipa­skurð­inn.

Nýjar mælingar 1847

Ekki var langt liðið á nítj­ándu öld­ina þegar umræður um hugs­an­legan skipa­skurð hófust enda höfðu ýmsir efast um mæl­ingar sér­fræð­inga Napól­e­ons. Á árunum eftir 1840 fóru fram ítar­legar mæl­ingar sem leiddu í ljós að hæð­ar­munur á yfir­borði Rauða­hafs­ins og Mið­jarð­ar­hafs­ins var nán­ast eng­inn. Skriður komst þó ekki fyrir alvöru á málið fyrr en árið 1854. Þá sömdu Frakkar undir stjórn Ferdin­and de Lesseps, fyrr­ver­andi diplómats í frönsku utan­rík­is­þjón­ust­unni, við land­stjóra Egypta um stofnun félags sem fengi nafnið Suez Canal Company. Félaginu yrði falið að standa fyrir lagn­ingu skipa­skurðar milli Rauða­hafs­ins og Mið­jarð­ar­hafs­ins.

Breskir ráða­menn voru mjög and­snúnir lagn­ingu skurð­ar­ins, töldu þessar fyr­ir­ætl­anir lið í því að veikja yfir­ráð Breta á heims­höf­unum. Þegar Suez Canal Company, sem var form­lega stofnað 1858, aug­lýsti hlutafé í félag­inu til sölu köll­uðu bresk dag­blöð það „sví­virði­lega til­raun til að svíkja fé út úr heið­ar­legu fólki.“ Bretar áttu síðar eftir að átta sig á mik­il­vægi skipa­skurð­ar­ins og keyptu árið árið 1875 rúm­lega 40 pró­senta hlut Egypta. Frakkar áttu eftir sem áður meiri­hluta í félag­inu.

Framkvæmdir tóku næstum áratug

Árið 1861, að loknum margs­konar und­ir­bún­ingi, hófst vinna við lagn­ingu skurð­ar­ins. Þótt stór­virkar vinnu­vélar nútím­ans væru ekki komnar til sög­unnar voru þó til ýmis­konar tæki, gröfur og kranar. Slík tæki voru þó ekki notuð í upp­hafi, hakar, skóflur og hjól­börur voru þau tæki sem tug­þús­undir Egypta, sem haldið var í nauð­ung­ar­vinnu, þurftu að not­ast við. Verkinu mið­aði lítið og árið 1863 bönn­uðu egypsk stjórn­völd nauð­ung­ar­vinnu. Suez Canal Company sá fram á, ef halda ætti verk­inu áfram, að grípa yrði til stór­tæk­ari aðferða, þar sem stór­virkar vélar kæmu í stað handa­fls. Verkinu lauk árið 1869 og skurð­ur­inn var form­lega tek­inn í notkun 17. nóv­em­ber það ár.

Ein og hálf milljón manna og 75 millj­ónir rúmmetra af sandi Margir hafa skrifað um Súes-skurð­inn á liðnum árum, meðal þeirra er Daninn Hans F. Burchart, fyrr­ver­andi pró­fessor. Bók hans „Histor­ien om Suez-kana­len“ rekur sögu skipa­skurð­ar­ins, frá upp­hafi til dags­ins í dag. Til marks um stærð verk­efn­is­ins má nefna að fjar­lægja þurfti um 75 millj­ónir rúmmetra sands, það jafn­gildir 3.5 millj­ónum vöru­bíls­hlassa nútím­ans, ekki kemur fram í bók­inni hvað það jafn­gildi mörgum hjól­böru­hlössum!

Samtals vann um það bil ein og hálf milljón manna við lagn­ingu skurð­ar­ins. Ekki sneru þeir allir lif­andi heim því í áður­nefndri bók kemur fram að sam­tals hafi um 120 þús­und manns lát­ist meðan á fram­kvæmdum stóð. Það er gríð­ar­lega há tala og Hans F. Burcharth segir í bók sinni að ástæð­urnar hafi verið slys, sjúk­dómar (til dæmis kól­era) og ömur­legar aðstæður, ekki síst nær­ing­ar­skortur.

Einstefnuskurður

Súes-skurð­ur­inn var upp­haf­lega ekki breið­ari en svo að skip gátu ekki mæst, nema á sér­stökum útskotum. Sigl­ingin gegnum skurð­inn tók í upp­hafi um það bil 40 klukku­stundir, örfá skip fóru í gegn á degi hverjum og sigl­inga­hrað­inn mjög tak­mark­aður til að hindra að öldu­kast frá skipum fram­kall­aði hrun úr sand­bökkum skurð­ar­ins. Dýptin var ein­ungis um 8 metrar og breiddin hvergi meiri en um það bil 60 metrar. Smám saman var unnið að breikkun og dýpkun og um 1960 gátu að jafn­aði 46 til 48 skip farið um skurð­inn á degi hverjum.

Nasser og þjóðnýtingin

Þann 26. júlí árið 1956 til­kynnti Nasser for­seti Egypta­lands að frá og með þeim degi væri Súes-skurð­ur­inn þjóð­ar­eign Egypta. Bretar og Frakkar, eig­endur skurð­ar­ins (Suez Canal Company) brugð­ust ókvæða við og herir beggja landa, ásamt her Ísraels réð­ust til atlögu gegn Egypta­landi síðar það ár. Banda­ríkja­menn og Rússar voru mjög ósáttir við fram­ferði Breta, Frakka og Ísraela sem drógu heri sína til baka og Súes-skurð­ur­inn hefur síðan verið undir stjórn Egypta sem greiddu umtals­verðar bætur vegna yfir­tök­unnar. Nasser styrkti mjög stöðu sína og varð nú hinn ókrýndi for­ingi Arabaríkj­anna. Í kjöl­far þess­ara atburða var Súes-skurð­ur­inn lok­aður frá í októ­ber 1956 fram í mars 1957.

Sex daga stríðið, Súes-skurðurinn og guli flotinn

Í maí 1967 skip­aði Nasser, sem var for­seti Egypta­lands frá 1956 til dauða­dags 1970, frið­ar­gæslu­liði Sam­ein­uðu þjóð­anna á Sínaí-skaga að hafa sig á brott. Honum höfðu borist fregnir af því að Ísraelar hygð­ust ráð­ast á Egypta­land. Enn er deilt um atburða­rás­ina sem varð til þess að 5. júní réð­ust Ísraelar á egypska flug­her­inn.Sex daga stríðið, Súes skurð­ur­inn og guli flot­inn

Átökin stóðu í sex daga og lauk með sigri Ísraela. Saga þess­ara stríðs­á­taka verður ekki rakin hér, um stríðið hafa verið skrif­aðar margar bækur, en átökin ollu því að Súes skurð­ur­inn var lok­aður fyrir umferð í heil átta ár, frá 5. júní 1967 til 10. júní 1975. Egyptar höfðu lokað inn­sigl­ing­unum beggja vegna skurð­ar­ins með því að sökkva þar skipum og koma fyrir tund­ur­duflum.

Fimmtán flutn­inga­skip voru á stóru stöðu­vatni (Great Bitter Lake) nokkurn veg­inn á miðjum skurð­inum. Þessi skip komust hvorki lönd né strönd, í bók­staf­legri merk­ingu í heil átta ár. Allan tím­ann var hluti áhafna skip­anna um borð, þrjá mán­uði í senn. Skipin voru kölluð „Guli flot­inn“ sökum sands­ins sem safn­að­ist á þau. Þegar skurð­ur­inn var opn­aður á ný gátu ein­ungis tvö skip­anna, bæði þýsk, siglt af stað fyrir eigin vél­ar­afli.

Súes-skurðurinn í dag

Þessi 193 kíló­metra langi skurður var nán­ast bylt­ing í sigl­ingum milli Asíu og Evrópu þegar hann var opn­aður árið 1869. Sigl­inga­leiðin stytt­ist um rúm­lega 8 þús­und kíló­metra. Á þeim 150 árum sem liðin eru frá opnun hans hafa orðið miklar breyt­ingar á flestum sviðum, ekki síst sam­göngum á sjó. Nú fara dag­lega 100 skip um skurð­inn, en þótt hann hafi verið breikk­aður og dýpk­aður að hluta er hann of mjór og grunnur fyrir risatank­skip sam­tím­ans, sem verða sífellt stærri. Árið 2014 kynnti stjórn skurð­ar­ins (Egypt‘s Suez Canal Aut­hority) áætlun um breikkun skurð­ar­ins sem jafn­framt yrði dýpk­aður. Þeim fram­kvæmdum á að ljúka árið 2023 en fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­fé­lags Súes-skurð­ar­ins sagði nýlega í blaða­við­tali að þar yrði ekki látið staðar numið „Súes verður í fram­tíð­inni jafn mik­il­væg sam­gönguæð og hann hefur verið frá upp­hafi,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

Auguste Bartholdi og styttan

Árið 1865, þegar sýnt þótti að Súes-skurð­ur­inn yrði að veru­leika, kynnti franski mynd­höggv­ar­inn Frédéric–Auguste Bart­holdi egypskum stjórn­völdum, og Ferdin­and de Lesseps yfir­manni fram­kvæmd­anna, hug­mynd sína um mynda­styttu sem reist skyldi við Mið­jarð­ar­haf­senda skurð­ar­ins. Hugmynd lista­manns­ins var að styttan skyldi vera um það bil 30 metra hátt kven­líkneski (móðir lista­manns­ins var fyr­ir­mynd and­lits­ins) klætt að egypskum hætti, með kyndil í hendi. Kynd­ill­inn skyldi jafn­framt vera sigl­inga­viti.

Ekki fékk þessi hug­mynd náð fyrir augum ráða­manna en lista­mað­ur­inn gafst ekki upp og svo fór að árið 1886 var styttan, lítið eitt hærri og á háum stöpli, reist við inn­sigl­ing­una til New York. Styttan var gjöf Frakka til Banda­ríkja­manna. Á ensku heitir hún form­lega „Liberty Enlighten­ing the World“ en ætíð kölluð „The Statue of Liberty“ frels­is­styttan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár