Blöskrar framsetning forsætisráðherra í málum hælisleitenda

Þing­maður Pírata gefur ekki mikið fyrir þær upp­lýs­ingar sem koma fram í stöðu­upp­færslu for­sæt­is­ráð­herra varð­andi mál hæl­is­leit­enda á Íslandi.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: Samsett mynd

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, seg­ist blöskra fram­setn­ing Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í málum hæl­is­leit­enda – en Katrín birti stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hún sagði að Vinstri græn legðu áherslu á að taka á móti fleira fólki á flótta og væri það mark­mið sett fram í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar. Um þessi mál væri sjaldan fjallað nema þegar ein­stök mál eru rædd. Mik­il­vægt væri að skoða hver þró­unin hefði verið á und­an­förnum árum þegar rætt væri um stefnu stjórn­valda í þessum efnum.

Þór­hildur Sunna tjáði sig um málið á Facebook gær og gerði athuga­semd við færslu Katrínar. Þar segir hún að eina fram­lag VG til flótta­manna­mála sé ítrekuð fram­lagn­ing frum­varps sem ætlað sé að stór­skaða rétt­indi flótta­manna og auð­velda brott­flutn­ing þeirra. Þrisvar sinnum hafi þing­mann VG sam­þykkt stjórn­ar­frum­varp þessa efnis sem þau í stjórn­ar­and­stöð­unni hefðu þurft að leggja mikla vinnu í að stoppa í hvert sinn.

„Þú segir mik­il­vægt að láta umræð­una ekki snú­ast um tölur á blaði en nefnir svo ekk­ert nema töl­fræði til þess að verj­ast gagn­rýni á það hvernig þig komuð fram við fjögur lif­andi og mennsk börn og for­eldra þeirra.

Þú veist jafn vel og ég Katrín að fjöldi kjós­enda kaus þig og þinn flokk vegna þess að þau trúðu að þú hefðir sam­kennd með fólki og myndir ekki skýla þér á bak við töl­fræði þegar á reyndi fyrir börn af holdi og blóði. Þessi póstur þinn sannar því miður enn og aftur hið gagn­stæða,” skrifar Þór­hildur Sunna.

Það eina sem hægt er að gera er að halda áfram – skref fyrir skref að stefna í rétta átt

Katrín sagði á Facebook-síðu sinni í gær að fjöldi fólks á flótta á heims­vísu hefði meira en tvö­fald­ast á tíu árum og því hefði fylgt mikið umrót hvar­vetna þegar kemur að mál­efnum þeirra. „Frammi fyrir jafn risa­vöxnum áskor­unum og lofts­lags­vánni og fjölgun fólks á flótta (sem ekki eru ótengd mál­efni) er auð­velt að fyll­ast van­mátt­ar­til­finn­ingu en það hjálpar okkur ekki neitt. Það eina sem hægt er að gera er að halda áfram, skref fyrir skref að stefna í rétta átt.“

Þá benti hún á að Ursula Von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, hefði sagt frá því í fyrra­dag að ráð­ist yrði í breyt­ingar á hæl­is­kerfi sam­bands­ins, meðal ann­ars með því að afnema Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina og inn­leiða í stað hennar nýtt sam­evr­ópskt mót­töku­kerfi fyrir flótta­fólk. Ursula kall­aði eftir því að Evrópa ynni saman að því að bregð­ast við flótta­manna­vand­anum. Það er mik­il­vægt að taka eigi þetta kerfi til end­ur­skoð­unar og von­andi næst sam­staða um breyt­ingar sem munu bæta stöðu fólks á flótta og þar mun Ísland leggja sitt af mörkum,“ skrif­aði Katrín.

For­sæt­is­ráð­herr­ann birti graf með færsl­unni og sagði: „Af málum sem er lokið á þessu ári hjá þeim sem sótt hafa um vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi hafa rúm 60 pró­sent umsókna verið sam­þykkt. Það eru 368 ein­stak­lingar, fjöl­skyldur og börn sem hafa hlotið vernd hér á þessu ári. Ef ein­göngu er horft til þeirra mála sem hafa fengið efn­is­með­ferð þá hafa 79 pró­sent umsókna verið sam­þykkt. Umsóknum hefur fjölgað mjög á und­an­förnum árum en 2019 var fékkst nið­ur­staða í 1123 málum. Í fyrra fengu 376 ein­stak­lingar vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi sem var 33 pró­sent afgreiddra umsókna sam­an­borið við 10 pró­sent árið 2017.

Þar með er þó ekki öll sagan sögð en þessi töl­fræði á ein­ungis við um mál sem lokið er hjá Útlend­inga­stofnun. Mál sem fara á borð kæru­nefndar útlend­inga­mála eru því ekki hér með­talin, en með þeim hækkar fjöldi þeirra sem hlotið hafa vernd tölu­vert. Til að mynda hlaut 531 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd hér á landi í fyrra þegar horft er bæði á mál hjá Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd­inni,“ segir í færslu for­sæt­is­ráð­herr­ans að lokum.

Verður að gæta þess að láta umræðuna ekki snúast um tölur á blaði

Katrín sagði enn fremur að þessi mál sner­ust auð­vitað um fólk og því yrði að gæta þess að láta umræð­una ekki snú­ast um tölur á blaði. „Þessar tölur geta þó sagt okkur hvort við séu á réttri leið, hvort að þau skref sem við höfum tekið séu að skila árangri fyrir fólk. Hvort við séum að taka á móti fleira fólki á flótta eins og við ein­settum okkur þegar stjórn­ar­sátt­mál­inn var settur saman á árinu 2017.

Tölu­verðar breyt­ingar hafa orðið á bæði reglu­verk­inu og fram­kvæmd þess hér á Íslandi síð­ast­liðin ár, meðal ann­ars með nýjum þverpóli­tískum útlend­inga­lögum sem sam­þykkt voru 2016. Þó að fram­kvæmdin hafi batnað er eigi að síður nauð­syn­legt að hún sæti sífelldri end­ur­skoðun. Umræða síð­ustu daga sýnir að ríkur vilji er í sam­fé­lag­inu til að gera betur í þessum málum og það er verk­efnið fram undan,“ skrif­aði hún.

Hefur ekkert með stefnu VG að gera

Þórunn Ólafs­dóttir, stofn­andi sam­tak­anna Akkeri, gerir athuga­semd undir færslu Katrínar og segir það eig­in­lega ekk­ert annað en ósmekk­legt að VG ætli að hreykja sér af því að hér hafi fleiri fengið vernd und­an­farin miss­eri. Það hafi allt með breytta sam­setn­ingu umsækj­enda og ekk­ert með stefnu VG að gera.

„Stjórn­völd eru skuld­bundin til að taka til með­ferðar umsóknir um alþjóð­lega vernd og það að hreykja sér af því að gera einmitt það er svo­lítið eins og að klappa sér sér­stak­lega á bakið fyrir að reka skóla­kerfi eða annað sem við teljum álíka sjálf­sagt,“ skrifar hún.

Á meðan séu fjögur börn og for­eldrar þeirra log­andi hrædd í felum fyrir stjórn­völdum og „fjöldi barna sem eng­inn veit að eru til hafa líka verið flutt úr landi í skjóli nætur á ykkar vakt“.

Þórunn segir að Katrín hafi valið þá leið að afvega­leiða umræðu um nafn­greind börn með því að henda fram tölum – það séu harð­neskju­stjórn­mál. „Ég bjóst við meiru af þér Katrín og það er virki­lega sárt að horfa upp á þessa atburða­rás.“

Von um mannúðlegri útlendingastefnu má síns lítils

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokkar og fyrr­ver­andi þing­maður VG, hefur einnig gagn­rýnt fyrr­nefnt frum­varp. „Síðustu daga hefur berg­málað um allt stjórn­ar­heim­ilið að mann­úð­leg­asta kerfið fyrir hæl­is­leit­endur sé að vera bara nógu fljót að synja þeim. Stjórn­ar­flokk­arnir eru í því allir orðnir samdauna Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrif­aði þing­mað­ur­inn á Facebook í gær.

Hann bendir á að þrír dóms­mála­ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ítrekað lagt fram „sama hræði­lega frum­varpið sem snýst um að draga veru­lega úr vernd hæl­is­leit­enda, allt í nafni skil­virkni kerf­is­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nefni­lega með skýra sýn á mála­flokk­inn þótt flokk­arnir hafi gef­ist upp á að ná sam­eig­in­legri sýn í stjórn­ar­sátt­mála.“

Von um mann­úð­legri útlend­inga­stefnu megi síns lít­ils meðan þessi staða ríkir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár