Vill Ísland ekki ungt fólk?

Ungt fólk á Íslandi á minna af eignum nú en fyrir ára­tug. Það hefur dreg­ist aftur úr í ráð­stöf­un­ar­tekjum, finnur ekki störf við hæfi á Íslandi, bætur til þess hafa lækkað og vel­ferð­ar­kerfið er lak­ara en í nágranna­lönd­unum. Er skrýtið að ungt fólk flytji?

Hagstofa Íslands birti í gær tölur úr lífs­kjara­rann­sókn sinni um dreif­ingu ráð­stöf­un­ar­tekna á milli áranna 2014 og 2015. Helstu tíð­indi hennar eru þau að ungt fólk, á aldr­inum 25-34 ára, hefur dreg­ist aftur úr öðrum hópum á und­an­förnum ára­tug og hlut­fall tekna þeirra af mið­gildi ráð­stöf­un­ar­tekna er nú 95,3 pró­sent. Það þýðir á ein­földu máli að ungt fólk hefur lægri laun en það hafði áður.

Þetta var enn ein fréttin um hag­tölur eða rann­sóknir sem bendir til verri stöðu ungs fólks á Íslandi. Á und­an­förnum árum hafa verið lagðar fram tölur um færri atvinnu­tæki­færi, minni eign­ar­myndun, lægri laun, skerta þjón­ustu og síð­ast en ekki síst stór­tækan hús­næð­is­vanda þessa hóps sem hefur leitt til þess að hann virð­ist vera að leita tæki­fær­anna ann­ars staðar frekar en hér­lendis.

Íslendingar fara, útlendingar koma

Þessar aðstæður hafa nú ratað inn í fram­tíð­ar­spár. í vik­unni birti Hagstofa Íslands mann­fjölda­spá sína til árs­ins 2065. Samkvæmt henni mun íbúum á Íslandi fjölga um þriðj­ung næstu hálfu öld­ina og verða 442 þús­und árið 2065. Í spánni er hins vegar gert ráð fyrir því að fjölg­unin verði aðal­lega vegna erlendra inn­flytj­enda. Samkvæmt henni munu fleiri Íslend­ingar áfram flytja frá land­inu en þeir sem snúa aftur til baka til þess. Spáin greinir ekki hvaða ald­urs­hópar það eru sem munu flytja burt og Hag­stofan heldur ekki utan um tölur um hvernig speki­leki, hvaða starfs­reynsla eða menntun er hjá þeim ein­stak­lingum sem flytja, hverfur úr hag­kerf­inu. Um það hefur þó tölu­vert verið fjallað í fjöl­miðlum og umræðu á und­an­förnum miss­erum. Í nóv­em­ber í fyrra greindi Morg­un­blaðið frá því að 3.210 Íslend­ingar hefðu flutt frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða 1.130 fleiri en fluttu til þess.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hafnaði því að óeðlilega margir ungir Íslendingar væru að flytja til annarra landa. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafn­aði því að óeðli­lega margir ungir Íslend­ingar væru að flytja til ann­arra landa. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Í grein blaðs­ins var rætt við Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands. Hann sagði að það virt­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara á ferð­inni en vana­lega og að vís­bend­ingar væru um að margt háskóla­fólk flytti úr landi. Bat­inn á vinnu­mark­aði, sem átt hefði sér stað á und­an­förnum árum, hefði ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti. Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofn­un, sagði svip­aða sögu við Morg­un­blað­ið. Vís­bend­ingar væru um að margir finni ekki atvinnu sem henti námi þeirra og bak­grunni.

Flytja þrátt fyrir efnahagslegan uppgang

Þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og aðstoð­ar­menn hans héldu því fram í opin­berri umræðu að það væri rangt að fjöldi brott­fluttra væri óeðli­lega mik­ill. Fólk væri ekki að flýja Sigmund Davíð.

For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi gerði málið m.a. að umtals­efni í ára­móta­grein sinni í Morg­un­blað­inu og sagði hlut­fall brott­fluttra undir 40 ára á árinu 2015 lágt í sam­an­burði við liðin ár og ára­tugi. Það væri afmark­aður en hávær hópur fólks, sem ætti erfitt að sætta sig við góðar fréttir, sem héldi hinu gagn­stæða fram. Jákvæð þróun veki hjá hópnum gremju, hún sé litin horn­auga og tor­tryggð á allan mögu­legan hátt. Þetta sé sá hópur fólks sem getur ekki sætt sig við að jákvæðir hlutir ger­ist ef þeir ger­ast ekki í krafti hinnar einu „réttu“ hug­mynda­fræði.

Í byrjun jan­úar 2016 birti Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) grein­ingu á brott- og aðflutn­ingi til Íslands síð­ustu 50 árin. Þar kom fram að þrátt fyrir bætt efna­hags­leg skil­yrði hefur brott­flutn­ing­u ­ís­lenskra rík­is­borg­ara frá Íslandi auk­ist á und­an­förnum tveimur árum. Fleiri Íslend­ing­ar flytja frá land­inu en flytja til þess. Frá árinu 1961 hafa verið átta tíma­bil þar sem brott­flutn­ingur á hverju ári hefur verið yfir með­al­tali áranna 1961 til­ 2015. Sjö þeirra tíma­bila hafa verið í tengslum við öfgar í efna­hags­líf­i ­þjóð­ar­innar á borð við brott­hvarf síld­ar­inn­ar, mikla verð­bólgu eða hátt atvinnu­leysi. Eina tíma­bilið af þessum átta sem sker sig úr er 2014 til 2015 þar sem eng­ar hefð­bundnar efna­hags­legar for­sendur eru fyrir auknum brott­flutn­ingi. Fólk flutti frá Íslandi þrátt fyrir efna­hags­legan upp­gang.

Ekki verið að skapa réttu störfin

En hvað veldur? Þrjár megin ástæður virð­ast vera fyrir því að ungt fólk finnur sig knúið til að leita tæki­fær­anna ann­ars staðar. Fyrst ber að nefna atvinnu­mál.

Í jan­úar 2016 birti VR skýrslu þar sem rýnt var í nettó aðflutn­ing hingað til lands og sjónum beint að því sem kallað er falið atvinnu­leysi. Í skýrsl­unni kom fram að fjöldi þeirra sem eru með háskóla­menntun en eru án atvinnu hafi auk­ist um 275 pró­sent á tíu árum.

Þessi þróun end­ur­spegl­ast í tölum Vinnu­mála­stofn­unar um menntun atvinnu­lausra. Á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2005 var fjöldi atvinnu­lausra með háskóla­menntun 10,6 pró­sent af heild­ar­fjölda atvinnu­lausra. Á sama tíma 2015 var hlut­fallið 25,2 pró­sent. „Ef lítið fram­boð verður af verð­mætum störfum á Íslandi á næstu árum er það mikið áhyggju­efni og gæti stuðlað að frek­ari brott­flutn­ingi þrátt fyrir gott ástand í efna­hags­líf­in­u,” sagði í skýrslu VR.

Á sama tíma og lítið fram­boð er á verð­mætum störfum hafa aldrei fleiri lagt stund á háskóla­nám. Ár hvert er slegið nýtt met í fjölda útskrif­aðra, sem eru vel á fjórða þús­und ár hvert.

Í lok maí birti Stjórn­stöð ferða­mála nýja könnun þar sem fram kom að rúm­lega tíu pró­sent starfs­manna á íslenskum vinnu­mark­aði starfa í ferða­þjón­ustu. Um 22 ­þús­und manns að vinna að jafn­aði í ferða­þjón­ustu á þessu ári. Um 40 pró­sent þeirra koma erlendis frá vegna þess að ekki er til vinnu­afl á Íslandi til að vinna störf­in. Alls verða erlend­ir ­starfs­menn grein­ar­innar um sex þús­und á þessu ári. Ef afleidd störf þeirra sem ­starfa í geirum sem hafa meg­in­þorra tekna sinna af ferða­mönnum eru talin með­ hækkar þessi tala um nokkur þús­und. Þá er ótalið t.d. allur sá fjöld­i út­lend­inga sem fluttir eru til lands­ins til að vinna við allar þær miklu fram­kvæmd­ir ­sem eru í gangi, og snú­ast að mestu um að þjón­usta ferða­þjón­ust­una með­ hót­el­bygg­ing­um.

Að lang­mestu leyti er um að ræða lág­launa­störf að ræða sem krefj­ast ekki mennt­un­ar. Verka­manna­störf, ræst­ing­ar, sölu- og afgreiðslu­störf, ­fólks­flutn­ingar eða allskyns störf í eld­húsi. Nán­ast öll ný störf sem verða til á Ísland­i eru af þessum toga.

Þetta eru ekki störfin sem Íslend­ingar eru að sækj­ast eftir.

Lægri bætur og minni velferð

Í öðru lagi setur ungt fólk vel­ferð­ar­mál fyrir sig. Það er auð­vitað, sökum ald­urs síns, lang­lík­leg­asti ald­urs­hópur lands­ins hverju sinni til að vera að koma sér upp fjöl­skyldu og þarf því að sækja mun meiri þjón­ustu í heil­brigðis- og mennta­kerfið en aðrir ald­urs­hópar sem enn eru á vinnu­mark­aði.

Í lið­inni viku var birt ný vel­ferð­ar­vísi­tala The Social Progress Imper­ative (SPI). Hún horfir til ann­arra þátta en lands­fram­leiðslu til að mæla vel­ferð í þjóð­fé­lögum. Þ.e. lífs­gæði sem mæl­ast ekki í tekju­öflun. Samkvæmt henni féll Ísland um sex sæti á milli ára og situr nú í tíunda sæti list­ans. Ísland er nú neðst allra Norð­ur­land­anna á list­anum. Vísi­talan sem um ræðir raðar ríkjum á lista eftir frammi­stöðu þeirra í 53 mis­mun­andi þátt­um. Á meðal þeirra þátta sem litið er til eru gæði mennt­un­ar, heil­brigð­is­þjón­usta, umburð­ar­lyndi og tæki­færi í sam­fé­lög­um.

Sama dag var birt frétt á heima­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga árið 2016. Þar kom fram að almennar vaxta­bætur sem skuld­settir íbúða­eig­endur fá greiddar vegna vaxta­gjalda íbúða­lána sinna, hafi lækkað um 25,7 pró­sent á milli ára og þeim fjöl­skyldum sem fá þær bætur greiddur fækkar um 21,3 pró­sent. Ástæða þessa var sögð betri eign­ar­staða heim­ila lands­ins. Líkt og vikið verður að síðar þá skilar sú bætta eign­ar­staða sér nær ekk­ert til fólks undir fer­tugu.

Þá lækk­uðu heild­ar­greiðslur barna­bóta úr tíu millj­örðum króna í 9,3 millj­arða króna. Ástæða þessa eru sagðar að laun hafi hækkað meira en tekju­við­mið­un­ar­fjár­hæðir og því skerð­ast greiðslur barna­bóta til fleiri ein­stak­ling­ar.

Eftir hrun voru hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði skertar veru­lega. Ef þær hefðu ekki verið skertar, og hefðu fylgt verð­lags­þróun, þá væru þær tæp­lega 820 þús­und krónur í dag. Þess í stað nema greiðsl­urnar nú 370 þús­und krónum á mán­uði að hámarki.

Í liðinni viku var birt ný velferðarvísitala The Social Progress Imperative (SPI). Hún horfir til annarra þátta en landsframleiðslu til að mæla velferð í þjóðfélögum. Þ.e. lífsgæði sem mælast ekki í tekjuöflun. Samkvæmt henni féll Ísland um sex sæti á milli ára og situr nú í tíunda sæti listans.
Í lið­inni viku var birt ný vel­ferð­ar­vísi­tala The Social Progress Imper­ative (SPI). Hún horfir til ann­arra þátta en lands­fram­leiðslu til að mæla vel­ferð í þjóð­fé­lögum. Þ.e. lífs­gæði sem mæl­ast ekki í tekju­öflun. Samkvæmt henni féll Ísland um sex sæti á milli ára og situr nú í tíunda sæti list­ans.

Þessi þróun hefur haft veru­leg áhrif á töku fæð­ing­ar­or­lofs, sér­stak­lega hjá feðrum. Þegar þakið var hæst árið 2008 voru umsóknir feðra um fæð­ing­ar­or­lof 90% af umsóknum mæðra. Árið 2014 var þetta hlut­fall komið niður í 80%. Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof og þeir sem taka fæð­ing­ar­or­lof gera það í mun færri daga en þegar mest var. Árið 2008 var með­al­daga­fjöld­inn í fæð­ing­ar­or­lofi feðra 103 dag­ar, en sam­kvæmt bráða­birgða­tölum fyrir 2015 var með­al­daga­fjöld­inn kom­inn niður í 74 daga.

Húsnæðisvandi og engin eiginfjármyndun

Þriðja atriðið sem ungt fólk setur fyrir sig teng­ist hús­næði, eða skorti á því. Staðan hér­lendis er sú að aukn­ing ferða­manna hefur gert það að verkum að á fjórða þús­und íbúða hið minnsta eru ekki lengur aðgengi­legar Íslend­ingum vegna þess að þær eru í útleigu til ferða­manna. Samhliða hefur allt of lítið verið byggt og því er staðan á mark­aðnum sú að eft­ir­spurn er miklu meiri en fram­boð. Samhliða hefur hús­næð­is­verð hækkað hratt og leigu­verð sömu­leiðis. Spár gera ráð fyrir því að í lok árs 2018 hafi íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 65 pró­sent lands­manna búa, tvö­fald­ast frá árinu 2011. Það þýðir t.d. að íbúð sem kost­aði 25 millj­ónir króna þá mun kosta 50 millj­ónir króna eftir tvö og hálft ár.

Þessi þróun hefur skilið ungt fólk eftir í miklum vanda. Umfang þeirrar útborg­unar sem það þarf að verða sér út um til að kom­ast inn á eign­ar­markað hækkað stans­laust sam­hliða hækk­unum á hús­næð­is­mark­aði og geta þeirra til að leggja þá útborgun fyrir verður sífellt minni vegna þess að leigu­verð hefur líka hækkað mikið. Vegna þess býr fjórði hver Íslend­ingur á þrí­tugs­aldri enn í for­eldra­húsum.

Á sama tíma og yngsti hóp­ur­inn, sem er að drag­ast hratt aftur úr í ráð­stöf­un­ar­tekjum, glímir við ofan­greinda erf­ið­leika, er eign­ar­myndun ann­arra ald­urs­hópa að verða meiri og meiri. Frá árinu 2011 og út árið 2014 jókst eigið fé þess 1 pró­sents Íslend­inga sem átti þegar mest um 64 millj­arða króna. Það átti 507 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Þessi hópur á 21 pró­sent af öllum eignum lands­manna. Þessar tölur eru reyndar van­metnar þar sem virði verð­bréfa, t.d. hluta­bréfa, er fært inn á nafn­virði. Mark­aðsvirði þeirra er marg­falt hærra.

Sam­an­lagðar eignir ald­urs­hóps­ins 25-40 ára í lok árs 2014 voru um 583 millj­arðar króna, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Ald­urs­hóp­ur­inn 40-55 ára átti 1.306 millj­arða króna og þeir sem eru eldri en það 2.467 millj­arða króna. Samtals átti hóp­ur­inn 25-40 ára 13,1 pró­sent allra eigna.

Tíu árum áður, í lok árs 2004, hafði hóp­ur­inn átt 22 pró­sent allra eigna. Hópurinn hefur því dreg­ist hratt aftur úr í eign­ar­myndun á þessum ára­tug á meðan að eldri ald­urs­hópar hafa efn­ast mun meira. Á sama tíma og eignir ein­stak­linga hér­lendis hafa nær þre­fald­ast hafa eignir þessa hóps auk­ist um 56 pró­sent.

Þegar horft er á eigið fé ald­urs­hópa, þ.e. mis­mun eigna og skulda, er staðan en skakk­ari. Árið 2004 átti ald­urs­hóp­ur­inn 25-40 ára sam­tals 67,6 millj­arða króna og sex pró­sent alls eig­in­fjár. Tíu árum síðar átti ald­urs­hóp­ur­inn 57,6 millj­arða króna í eigið fé, eða minna en árið 2004, og sam­tals 2,2 pró­sent alls eig­in­fjár Íslend­inga. Í milli­tíð­inni hafði heildar eigið fé farið úr 1.142 millj­örðum króna í 2.510 millj­arða króna, eða auk­ist um 120 pró­sent.

Sú eign­ar­myndun sem er að eiga sér stað á Íslandi er því alfarið hjá þeim sem eru eldri en 40 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár