Ísland neðst Norðurlandanna hvað varðar velferð

Ísland er í tíunda sæti í nýrri vel­ferð­ar­vísi­tölu The Social Progress Imper­ative (SPI) sem horfir til ann­arra þátta en lands­fram­leiðslu til að mæla vel­ferð í þjóð­fé­lögum. Ísland lækkar um sex sæti milli ára og eru nú neðstir allra Norð­ur­landa. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. 

Vísi­talan sem um ræðir raðar ríkjum á lista eftir frammi­stöðu þeirra í 53 mis­mun­andi þáttum. Á meðal þeirra þátta sem litið er til eru gæði mennt­unar, heil­brigð­is­þjón­usta, umburð­ar­lyndi og tæki­færi í sam­fé­lögum.

Í Frétta­blað­inu er rætt við Michael Green, fram­kvæmda­stjóra sam­tak­ana sem standa að gerð vel­ferð­ar­vísi­töl­unnar. Þar kemur fram að tvær ástæður séu aðal­lega fyrir því að Ísland lækki. Önnur lönd séu nú að bæta sig hvað varðar öryggi ein­stak­linga og aðgengi að upp­lýs­ingum umfram það sem Íslend­ingar gera auk þess sem aðferð­ar­fræði hafi verið breytt sem breyti stöðu lands­ins til hins verra.

Finnland og Kanada eru í tveimur efstu sæt­unum á list­anum. Í frétt sam­tak­ana vegna birt­ingu vísi­töl­unnar segir að há lands­fram­leiðsla sé engin trygg­ing fyrir lífs­gæðum. Banda­ríkin falla til að mynda niður í 19. sæti list­ans í ár og eru að fær­ast nær Kína, Rússland og Íran en þeim löndum sem eru í efstu sætum list­ans. Öll Norð­ur­löndin fimm eru á meðal þeirra tólf landa sem fá mjög háa ein­kunn sam­kvæmt vísi­töl­unni. Ísland er, líkt og áður sagði, neðst þeirra í tíunda sæti. Öll Evr­ópu­sam­bands­löndin, og þau sem til­heyra EFTA, standa sig vel í sam­an­burði við önnur lönd sem mæl­ingin nær til. Samtökin segja að sterk frammi­staða fyrstu bylgju ríkja frá Austur-Evrópu sem gengu í Evr­ópu­sam­bandið sýni að sú aðild hafi haft mjög jákvæð áhrif á lífs­gæði og vel­ferð í þeim löndum.

SPI segir að lífs­gæði yngra fólks í heim­inum, þess sem sé undir 25 ára, séu umtals­vert lak­ari en þeirra sem séu í ald­urs­hópnum 55 ára og eldri. Helsta ástæða þess er sú að stór hluti ungs fólks býr í löndum sem eru eftir á á nær öllum mæli­kvörðum sem hægt sé að leggja á lífs­gæði. Sér­stak­leg er nefnt að aðgengi yngsta hóps­ins að vatni og hrein­læti og að æðri menntun sé lak­ari en ann­arra ald­urs­hópa.

Hægt er að lesa um stöðu Íslands sam­kvæmt vísi­töl­unni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár