Segir umfjöllun Stundarinnar „óvægna“ og „ómálefnalega“

Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður seg­ist hreyk­inn af sínu starfs­fólki.

Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður er óánægður með umfjöllun Stund­ar­innar um rétt­ar­fram­kvæmd í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær.

Í til­kynn­ing­unni eru engar efn­is­legar athuga­semdir gerðar við frétta­flutn­ing Stund­ar­innar, en sýslu­maður tekur fram að honum finn­ist umfjöll­unin óvægin, ógætin og ómál­efna­leg.

„Það er umhugs­un­ar­vert að fjöl­mið­ill skuli fjalla á jafn ógæt­inn hátt um per­sónu­leg mál­efni ein­stak­linga og Stundin gerir í þessu máli m.a. með til­liti til per­sónu­vernd­ar­lög­gjaf­ar­innar og 3. grein siða­reglna Blaða­manna­fé­lags Íslands,“ segir í til­kynn­ing­unni sem er und­ir­rituð af Þórólfi sjálfum og birt undir yfir­skrift­inni „Um Stundar sakir.“ 

Sýslu­maður segir að „und­an­farnar vikur“ hafi Stundin fjallað um „til­tekið umgengn­is­mál með þátt­töku ann­ars máls­að­ila þess“. Vísar hann þá vænt­an­lega ann­ars vegar til pistils um „órétt­látt við­horf til þolenda ofbeldis“ sem Sigrún Sif Jóels­dóttir fékk birtan á Stund­inni þann 3. maí og hins vegar til umfjöll­unar sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. Þar er fjallað með almennum hætti um rétt­ar­fram­kvæmd í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum og greint frá til­vikum þar sem börn voru þvinguð til umgengni við grun­aða eða dæmda ofbeld­is­menn á fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Í sömu umfjöllun er vikið sér­stak­lega að máli Sigrúnar Sifjar og rætt við hana, en hinn máls­að­il­inn hafði áður tjáð sig um málið í fjöl­miðlum.

„Eins og gefur að skilja getur sýslu­maður ekki fjallað opin­ber­lega um til­tekin mál, sem eru eða hafa verið til umfjöll­unar á emb­ætt­inu,“ segir í til­kynn­ingu sýslu­manns. Bent er á að árið 2017 voru sam­tals 585 umgengnis- og dag­sekta­mál til með­ferðar hjá emb­ætt­inu. „Flestum málum lauk með samn­ingi milli aðila, m.a. að und­an­geng­inni sátta­með­ferð hjá sér­fræð­ingum emb­ætt­is­ins í mál­efnum barna. Einungis þurfti að úrskurða í 56 ágrein­ings­málum og þar af voru aðeins 15 úrskurðir kærðir til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.“ 

Þá bregst sýslu­maður við umfjöllun Stund­ar­innar um til­tek­inn sýslu­manns­full­trú (sjá frétt hér til hliðar) og máls­með­ferð­ina að baki tveimur úrskurðum sem hún kvað upp.

„Samkvæmt venju skrifar einn lög­lærður full­trúi undir hvern úrskurð. Máls­með­ferð og úrskurðir eru hins vegar afrakstur sam­vinnu starfs­manna,“ segir sýslu­maður. „Sýslu­maður er hreyk­inn af sínu starfs­fólki og ber fullt traust til þess. Það býr yfir mik­illi þekk­ingu á þessum erf­iða mála­flokki og vandar máls­með­ferð í sam­ræmi við lög og reglur sem um mála­flokk­inn gilda og leggur sig allt fram við að vanda máls­með­ferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár