Vilja funda vegna dóms Mannréttindadómstólsins

Full­trúar minni­hlut­ans vilja halda fund í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd til að fara yfir nýjan dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu gegn íslenska rík­inu.

Minni­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis hefur óskað eftir sér­stökum fundi nefnd­ar­innar vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli Stein­gríms Sævarrs Ólafs­sonar.

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær komst dóm­stóll­inn að því að Hæsti­réttur hefði brotið gegn tíundu grein Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans og tján­ing­ar­frelsi Stein­gríms Sævarrs með því að dæma hann fyrir meið­yrði. Hann var dæmdur vegna greina sem birt­ust um Ægi Geirdal, þar sem tvær systur sök­uðu hann um barn­a­níð.

Minni­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis telur dóm­inn vekja upp spurn­ingar um núver­andi lagaum­gjörð tján­ing­ar­frelsis á Íslandi, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá full­trúum minni­hlut­ans.

„Að mati minni­hlut­ans þarfn­ast mál­efnið frek­ari skoð­unar og óskaði hann því eftir að nefndin haldi sér­stakan fund og boði til sín álits­gjafa og sér­fræð­inga til þess að ræða málið sem allra fyrst. Efni fund­ar­ins mun varða hvernig bæta mætti íslenska lagaum­gjörð til þess að tryggja betur vernd tján­ing­ar­frelsis á Íslandi sem og kom­ast að því hvernig best verði tryggt að Ísland upp­fylli kröfur Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um vernd tján­ing­ar­frelsis, sem og sam­bæri­legra ákvæða í öðrum mann­rétt­inda­sátt­málum sem ríkið hefur geng­ist við.“ 

[links]Full­trúar minni­hlut­ans, þau Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Gunnar Hrafn Jónsson frá Pírötum, Eygló Harð­ar­dóttir frá Framsókn og Andrés Ingi Jónsson frá VG, óska eftir því að full­trúar frá Hæsta­rétti, dóms­mála­ráðu­neyt­inu, mennta­mála­ráðu­neyt­inu, Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands eða mann­rétt­inda­skrif­stofu Háskóla Íslands og full­trúar fjöl­miðla verði meðal þeirra sem verði boð­aðir á fund­inn. Meðal ann­ars vilja þau fá blaða­mann, sem hefur unnið mál gegn íslenska rík­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, fyrir nefnd­ina.

Þá óska þau eftir því að fund­ur­inn verði hald­inn sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár