Slakað á sóttkvínni

Rík­is­stjórnin hefur tekið ákvörðun um að slaka á reglum um sótt­kví. Hvernig nákvæm­lega útfærslan verður hefur þó ekki verið kynnt, en til stendur að beita hrað­prófum í auknum mæli til að greina þá sem verið hafa í tak­mörk­uðum tengslum við smit­aða.

Yfir 2.500 manns eru í sóttkví á Íslandi í dag og skólar að hefjast um allt land.
Yfir 2.500 manns eru í sótt­kví á Íslandi í dag og skólar að hefj­ast um allt land. Mynd: EPA

Rík­is­stjórnin hefur tekið ákvörðun um að slakað verði á þeim reglum sem nú gilda varð­andi sótt­kví þeirra sem verða útsettir fyrir COVID-19 smiti. Töluvert ákall hefur verið um að regl­urnar verði teknar til end­ur­skoð­unar nú þegar skólar eru að hefj­ast og útlit er fyrir að mörg þús­und ein­stak­lingar verði í sótt­kví á sama tíma, með til­heyr­andi raski á þjóð­líf­inu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á töl­fræði­vef yfir­valda eru í dag 2.529 manns í sótt­kví, til við­bótar við þá 1.137 sem eru í ein­angrun vegna stað­fests smits af kór­ónu­veirunni. Það er um 1 pró­sent þjóð­ar­innar.

Í máli ráð­herra eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag kom fram að til standi að breyta regl­unum, með það að mark­miði að draga úr fjölda þeirra sem þurfa að fara í sótt­kví vegna hvers ein­stak­lings sem smit­ast.

Svandís Svav­ars­dóttir sagði við Rík­is­út­varpið að fólki sem væri í „beinni snert­ingu“ við þann smit­aða yrði beint í sótt­kví, en hrað­próf kæmu til sög­unnar fyrir þá sem stæðu þeim smit­aða fjær og hefðu verið í minni tengslum við hann.

Einnig hefði verið tekin ákvörðun um að fjöl­skyldur barna sem skikkuð væru í sótt­kví þyrftu ekki að fara sjálfar í sótt­kví með barn­inu.

[adspot]

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði, sömu­leiðis við RÚV, að hrað­próf gætu hjálpað til við að draga úr sótt­kví­ar­kröfum, sem reynst hefðu mjög íþyngj­andi. Á rík­is­stjórn­ar­fundi morg­uns­ins fóru heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra sam­eig­in­lega yfir fýsi­leika þess að nota hrað­próf og sjálfs­próf við grein­ingar vegna COVID-19.

„Þegar allar deildir á leik­skóla og allir for­eldra allra barna eru komnir í sótt­kví út af smiti á einni deild, þetta finnst mér allt of langt gengið,“ sagði Bjarni.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við Vísi eftir fund­inn að Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir væri að leggja loka­hönd á til­lögur sínar um sótt­kvína, sem von­andi yrðu kynntar með ítar­legri hætti síðar í dag.

Stjórnvöld geti ekki lagt línur til langs tíma

Ráð­herrar voru spurðir út í þá fram­tíð­ar­sýn sem sótt­varn­ar­læknir lagði fram til heil­brigð­is­ráð­herra þann 11. ágúst eftir fund­inn, en engar ákvarð­anir hafa verið teknar á grund­velli þeirra ráð­legg­inga. For­sæt­is­ráð­herra sagði að Þórólfur væri að horfa til tölu­verðs langs tíma og stjórn­völd gætu ekki lagt lín­urnar langt inn í fram­tíð­ina í þessum efnum.

Svandís Svav­ars­dóttir tók í sama streng í sam­tali við RÚV. „Við getum ekki tekið ákvörðun um það nákvæm­lega hvernig hlut­irnir verða eftir 6 mán­uði eða ár en við getum sagt að við viljum draga úr tak­mörk­unum eins og nokkur er kostur, þó án þess að það setji heil­brigð­is­kerfið okkar á hlið­ina.“

Hún sagði stjórn­völd vera í miðri umræðu um fram­haldið og einnig þyrfti að taka afstöðu til þess hvað ætti að gera núver­andi reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir og hin ýmsu boð og bönn sem eru í gildi rennur út, en það er þann 27. ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár