Ófriður í Kólumbíu

Kól­umbíska þjóðin hefur kosið gegn sögu­legum frið­ar­samn­ingi á milli rík­is­stjórnar lands­ins og FARC. Mikil óvissa ríkir og hefur for­seti lands­ins, Juan Manuel Santos látið þau orð falla að hann „hafi ekk­ert plan B því plan B er að fara aftur í stríð“.

Skrifað var undir sögulegt friðarsamkomulag 26. september. Það átti að binda enda á yfir 50 ára ófrið. Nú hefur því verið hafnað í þjóðaratkvæði.
Skrifað var undir sögu­legt frið­ar­sam­komu­lag 26. sept­em­ber. Það átti að binda enda á yfir 50 ára ófrið. Nú hefur því verið hafnað í þjóð­ar­at­kvæði. Mynd: EPA

Þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn und­ir­rit­uðu for­seti Kólumbíu, Juan Manuel Santos, og leið­togi marxísku skæru­liða­sam­tak­anna Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia (FARC), Rodrigo Londoño (sem einnig er kall­aður Timochenko í höf­uðið á sov­éska her­for­ingj­anum Semyon Timochenko), frið­ar­sátt­mála til að binda enda á fimm­tíu og tveggja ára löng átök í land­inu. Landið var því ein­ungis einu skrefi frá því að frið­ar­sátt­mál­inn myndi taka gildi en varð svo óvænt felldur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í dag, sunnu­dag­inn, 2. októ­ber. Hver er aðdrag­andi þess­ara átaka?

„Ef Jesús væri á lífi þá væri hann skæruliði“

Átökin milli FARC og rík­is­stjórnar Kólumbíu eiga rætur sínar að rekja til stofn­unar FARC í kjöl­far árásar kól­umbíska hers­ins á land­svæði stjórnað af komm­ún­ista­skæru­liða­hreyf­ingum bænda í Marquetalia-lýð­veld­inu svo­kall­aða sunnan við Bogotá, höf­uð­borg lands­ins, þann 27. maí 1964. Þeir Pedro Antonio Marín (þekktur sem Manuel Maru­landa), reynslu­bolti úr borg­ara­styrj­öld­inni á milli íhalds­flokks og frjáls­lynda flokks Kólumbíu 1948-1958, og Luís Morantes (þekktur sem Jacobo Arenas), marxískur kenn­inga­smiður, verka­lýðs­fé­lags­leið­togi, og leið­togi innan hins bann­aða komm­ún­ista­flokks Kólumbíu, urðu leið­togar FARC og gerðu sam­tökin að hinum vopn­aða væng komm­ún­ista­flokks­ins. Morantes - hug­mynda­fræði­legur leið­togi flokks­ins - taldi sig feta í fót­spor Che Guevara og yfirsá hægan en stöðugan vöxt sam­tak­anna á 7. og 8. ára­tugnum. Þrátt fyrir að sam­tökin voru að mestu leyti fjár­mögnuð með gísla­tökum og fjár­kúgun á þeim tíma nutu þau ímyndar sem róm­an­tískir upp­reisn­ar­menn sem veittu hlið­hollum þorpum mennta- og heil­brigð­is­þjón­ustu og mót­stöðu við rík­is­stjórn sem beitti sér af mik­illi hörku gegn vinstriöflum innan lands­ins.

Á þessum tíma mynd­uð­ust einnig fjöl­mörg önnur svipuð upp­reisn­ar­sam­tök og ber þar helst að nefna Ejército de Liberación Nacional (ELN) sem átti rætur sínar í borgum lands­ins og sam­an­stóð af háskóla­nemum, rót­tækum kaþ­ólikkum, og vinstrisinn­uðu mennta­fólki, and­stætt við FARC sem hefur ávallt verið kennt við lands­byggð­ina. Camilo Torres Restrepo, kaþ­ólskur prestur og einn af leið­togum ELN sem reyndi að sam­rýma hug­mynda­fræði kaþ­ólisma og marx­isma, lét fræg tit­il­orð þessa und­ir­kafla falla en ELN hafa reynst jafn lang­líf og FARC og gegna lyk­il­hlut­verki á bak­við tjöld frið­ar­samn­inga­ferl­is­ins í dag.

Horfið frá byltingu

Þrátt fyrir að fíkni­efna­smygl hafi almennt verið álitið „and­bylt­ing­ar­kennt“ og ekki bylt­ing­ar­sinnum boð­legt sem tekju­lind þá byrj­aði FARC að skatt­leggja cocalaufs bændur undir lok 8. ára­tug­ar­ins. Tekjur sam­tak­anna juk­ust í kjöl­farið til muna og fjöldi skæru­liða einnig, eða úr nokkur hund­ruðum og í um þrjú þús­und. Þar af leið­andi hófust fyrstu frið­ar­samn­inga­við­ræður þar sem FARC fékk sæti við samn­inga­borðið hófust í for­seta­tíð Belis­ario Betancur árið 1982 en óhætt er að segja að þær leiddu ekki til við­var­andi friðar.

Viðræður rík­is­stjórn­ar­innar við FARC urðu væg­ast sagt erf­iðar, en stofnun flokks­ins Union Patriótica (UP) árið 1985 sem eins konar þing­flokks FARC var von­ast til þess að sam­tökin myndi að lokum leggja niður vopnin og verða stofn­ana­bundið stjórn­mála­afl í land­inu. Jacobo Arenas, og yfir­stjórn FARC, var þó á öðru máli; vopnuð upp­reisn bylt­ing­ar­innar, og fjár­öfl­un­ar­leiðir hennar, áttu að halda ótrauðar áfram sam­hliða afskiptum af stjórn­málum. Afleið­ing­arnar urðu þær að vopna­hlé rík­is­stjórn­ar­innar við FARC end­aði loks­ins árið 1987. UP hafði á skömmum tíma áunnið sér fylgi á vinstri væng stjórn­mála í Kólumbíu. Í kjöl­far áfram­hald­andi vopn­aðra aðgerða og gísla­tökum FARC höfðu hins vegar sprottið upp fjöl­margar vopn­aðar sveitir fjár­magn­aðar af hópum and­vígum FARC á borð við stóra land­eig­endur og fíkni­efna­smygl­ara en þessar sveitir álitu UP vera lýð­ræð­is­legt atgervi hryðju­verka­sam­taka og auð­velt skot­mark. Ríflega þrjú þús­und með­limir UP létu lífið næstu ár sem varð til þess að flokk­ur­inn varð lagður niður og eftir að Arenas lést úr hjarta­á­falli árið 1990 dróg mikið úr hug­mynda­fræði­legu vægi í starf­semi FARC.

Samtökin höfðu eflst á 9. ára­tugnum og héldu áfram að vaxa allan þann 10. í skjóli þess að sið­ferð­is­leg val­kreppa tengd afskiptum af fíkni­efna­smygli var að mestu leyti horfin. Um þús­ald­ar­mótin var því spáð af leyni­þjón­ustu varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna að landið ætti í hættu að verða að „narco-state“ stjórnað af FARC innan fimm ára; sam­tökin töldu um 20 þús­und skæru­liða, stóðu fyrir um þrjú þús­und gísla­tökum á ári, og stjórn­uðu lands­svæðum sem námu um einn þriðja hluta Kólumbíu - land sem á þeim tíma fram­leiddi um 90% af öllu kóka­íni í heim­inum.

Engir sigurvegarar

Áralöng þreyta á átökum og von­brigði almenn­ings yfir mis­heppn­uðum frið­ar­samn­inga­við­ræðum í for­es­eta­tíð Andrés Pastrana (1998-2002) sýndu sig í kjöri hins stríðs­glaða Álvaro Uribe árið 2002 í kosn­ing­ar­bar­áttu þar sem einn mót­fram­bjóð­andi Uribe, Íngrid Betancourt, var tekin sem gísl af FARC. Með yfir níu millj­arða Banda­ríkja­dali í hern­að­ar­að­stoð frá Banda­ríkj­unum - hið Plan Colombia svo­kall­aða - ásamt beit­ingu hinna vopn­aða sveita sem áttu sitt upp­haf á níunda ára­tugnum, náði Uribe að snúa vörn í sókn og á næstu átta árum fækk­aði skæru­liðum FARC niður í átta þús­und, fjöl­margir leið­togar sam­tak­anna lét­ust - þar á meðal hinn upp­hafs­mað­ur­inn, Manuel Maru­landa - og þau neydd til að draga vopn­aða skæru­liða sína til baka í strjál­býl landamæra­héruð lands­ins. Þó svo að FARC hefði veikst til muna varð þó einnig ljóst að ómögu­legt væri að vinna end­an­legan hern­að­ar­sigur; rík­is­stjórn lands­ins hefur lagt allt í söl­urnar í að berj­ast gegn sam­tök­unum frá árinu 2002 en þrátt fyrir það eru þau enn talin hafa um 40 þús­und með­limi og vera með til­vist í 28 af 32 sýslum lands­ins.

Ekkert plan B

Eftir að fjög­urra ára frið­ar­samn­inga­við­ræðum á milli Juan Manuel Santos og Timochenko lauk með drögum að samn­ingi síð­sum­ars í ár var útlit fyrir að væri hægt að binda enda á, eða að minnsta kosti loka löngum kafla í, átaka­sögu Kólumbíu eftir að rúm­lega tvö hund­ruð og tutt­ugu þús­und manns hafa látið lífið og yfir fimm millj­ónir misst heim­ili sín í fimm­tíu og tveggja ára löngum átökum. Skamm­sýnt væri að halda að far­sæl nið­ur­staða frið­ar­samn­ing­ana myndi binda enda á fíkni­efna­smygl­starf­semi og gísla­tökur upp­reisn­ar­sam­taka í land­inu - það er ýmis­legt sem bendir til þess að ELN hafa tekið við kefl­inu af FARC á ákveðnum svæðum - en þó kemur það á óvart að kól­umbíska þjóðin hafi kosið gegn samn­ingnum. Santos og Timochenko hafa báðir tjáð að samn­ing­ur­inn sé sá besti sem báðir aðilar gætu orðið sam­mála um, og Santos héfur látið þau orð falla að hann „hafi ekk­ert plan B því plan B er að fara aftur í stríð“. Vonandi er hægt að kom­ast hjá plani B.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár