Karl Wernersson í þriggja og hálfs árs fangelsi - Steingrímur fékk tvö ár

Karl og Steingrímur Wernerssynir.
Karl og Stein­grímur Wernerssynir.

Bræð­urnir Karl og Stein­grímur Wernerssynir voru í Hæsta­rétti í dag dæmdir til fang­els­is­vistar. Karl fékk þriggja og hálfs árs dóm en Stein­grímur tveggja ára dóm. Mála­rekstur hér­aðs­sak­sókn­ara snérist um að greiðslur upp á 4,8 millj­arða króna sem runnu út úr félag­inu Milestone, sem bræð­urnir áttu og stýrðu, til Ing­unnar Wern­ers­dótt­ur, systur þeirra, á árunum 2006 og 2007, hefðu verið umboðs­svik. Karl, Stein­grímur og Guð­mundur Óla­son, fyrrum for­stjóri Milesto­ne, voru ákærðir fyrir að hafa tekið sam­eig­in­lega ákvörðun um að greiða Ing­unni þessa upp­hæð út úr Milestone til að losa hana undan eign sinni í félag­inu. Auk þeirra voru þrír end­ur­skoð­endur hjá KPMG ákærðir í mál­inu vegna ætl­aðra bók­halds­brota.

Hæsti­réttur dæmdi Guðmund í þriggja ára fang­els­is­dóm. Þá hlutu Margrét Guð­jóns­dóttir og Sigurþór C. Guð­munds­son, end­ur­skoð­endur hjá KPMG, bæði 9 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. Hrafn­hildur Fann­geirs­dóttir end­ur­skoð­andi var sýknuð. hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði í des­em­ber 2014 sýknað alla sex­menn­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár