Stjórnarandstaðan boðar tillögu um þingrof og kosningar

Stjórn­ar­and­staðan ætlar að leggja fram sam­eig­in­lega til­lögu um þing­rof og að það verði boðað til kosn­inga í kjöl­farið. For­ystu­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna vilja að fundað verði sem fyrst með umboðs­manni Alþingis í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins til að fara yfir málið.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, segir við RÚV að þjóðin hafi verið „leynd upp­lýs­ingum fyrir síð­ustu kosn­ingar og það er eðli­legt að spilin séu stokkuð og gefið upp á nýtt.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri-grænna, segir á Facebook-síðu sinni að það sé trún­að­ar­brestur milli almenn­ings í land­inu og ráða­manna, „sem hafa valið að deila ekki kjörum með þjóð­inni heldur auð­mönnum sem geyma eignir sínar í skatta­skjólum á sama tíma og Ísland hefur und­ir­geng­ist alþjóð­legar skuld­bind­ingar um að útrýma skatta­skjólum.“ Ráð­leg­ast væri því að rjúfa þing og efna til kosn­inga.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagði fyrst frá þing­rof­s­til­lög­unni í Síð­deg­is­út­varp­inu á Rás 2 um klukkan hálf sex í kvöld.

Formenn allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fund­uðu í Alþing­is­hús­inu í dag klukkan 15. Þeim fundi lauk klukku­tíma síðar og nú standa yfir fundir hjá þing­flokkum Pírata, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar og Bjartrar fram­tíðar. Von er á sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum þegar þeim fundum lýkur.

Þingrof hefur fyrst og fremst þau áhrif að boðað er til kosn­inga og þing­störfum lýkur fljót­lega eftir að til­kynn­ingin hefur verið lesin upp eða gefin út. Það er því ein­ungis við sér­stakar aðstæður sem þing er rofið, það er ef boða á kosn­ingar á öðrum tíma en í lok hefð­bund­ins kjör­tíma­bils. Þannig var til að mynda farið að á vor­þingi 2009 en auk þess eru tíu dæmi í sögu þings­ins um að þing­rofi hafi verið beitt. Það er for­sæt­is­ráð­herra sem rýfur þing.

Birgitta sagði í sam­tali við Síð­deg­is­út­varpið að krafa um þing­rof væri lík­leg. Það gengur lengra en að leggja ein­ungis fram van­traust­til­lögu á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra likt og rætt hefur verið um meðal stjórn­ar­and­stöð­unnar til þessa. Ástæða þess­arra aðgerða er opin­berun á eign­ar­haldi eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar á eign­ar­halds­fé­lag­inu Wintris, sem er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Félagið er auk þess kröfu­hafi í slitabú allra þriggja föllnu bank­anna. Samtals nema kröfur þess 523 millj­ónum króna.

Til við­bótar var upp­lýst í gær að bæði for­maður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son og Ólöf Nordal, tengd­ust aflands­fé­lögum. Þau eiga þó engar eignir í slíkum í dag en eignir eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra í Wintris nema um 1,2 millj­arði króna sam­kvæmt opin­berum skatta­gögnum.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár