Einar K. verður stjórnarformaður Landssambands fiskeldisstöðva

Einar K. Guð­finns­son, fyrr­ver­andi alþing­is­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og for­seti Alþingis á síð­asta kjör­tíma­bili, verður for­maður stjórnar Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva. Þetta ákvað stjórn lands­sam­bands­ins á fundi sínum í gær, og málið verður lagt fyrir aðal­fund sam­bands­ins í næstu viku.

Einar K. hefur setið á þingi í rúm­lega 25 ár. Hann gegndi emb­ætti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra árin 2005 til 2009. Hann lét af störfum nú í októ­ber eftir að hafa verið for­seti Alþingis frá árinu 2013.

Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi fisk­eld­is­stöðva kemur fram að ákveðið hafi verið að leita til Einars um þátt­töku í stjórn vegna þess að fengur yrði af því fyrir atvinnu­grein­ina. Hann hafi lengi bundið vonir við að fisk­eldi geti svarað ákalli byggð­ar­laga sem hafi átt undir högg að sækja í atvinnu­málu og hafi sýnt fisk­eldi áhuga og skiln­ing sem þing­maður.

„Ég hef ávallt litið á mig sem erind­reka fjöl­þættra atvinnu­tæki­færa í lands­byggð­unum og sem stjórn­ar­for­maður LF fæ ég kær­komið tæki­færi til þess að halda þeirri veg­ferð áfram. Ég er sann­færður um að hægt sé að vinna að upp­bygg­ingu fisk­eldis í sátt við umhverfi og líf­ríki nátt­úr­unnar og hef skynjað mik­inn metnað hjá fisk­eld­is­fólki á því sviði. Fiskeldi á Íslandi er á ákveðnum tíma­mótum,“ er haft eftir Einari í til­kynn­ing­unni. Það sé ekki síður brýnt að eiga „náið og gott sam­starf við stjórn­völd og eft­ir­lits­stofn­anir um þróun grein­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár