Hyggjast friðlýsa svæði í Þjórsárdal og Reykjatorfuna í Ölfusi

Umhverfis­stofnun hefur kynnt áform um frið­lýsingu tveggja svæða; í Þjórs­árdal og Reykja­torfu í Ölfusi. Um er að ræða fyrstu frið­lýsingar sem falla undir viðkvæm svæði undir álagi ferða­manna í sérstöku átaki í frið­lýsingum.

Háifoss
Háifoss Mynd: Wiki Commons

Umhverfis­stofnun hefur kynnt áform um frið­lýsingu tveggja svæða. Annað er í Þjórs­árdal og hitt er Reykja­torfan í Ölfusi. Áformin eru annars vegar kynnt í samstarfi við Skeiða- og Gnúp­verjahrepp og forsætis­ráðuneytið og hins vegar í samstarfi við sveitar­félagið Ölfus, Hvera­gerðisbæ og umráðendur ríkis­jarða. Um er að ræða fyrstu frið­lýsingar sem falla undir viðkvæm svæði undir álagi ferða­manna í sérstöku átaki í frið­lýsingum.

Þetta kemur fram í frétt umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins.

Frið­lýsingunni er ætlað að varðveita sérkenni og einkenni lands­lagsins, fagur­fræðilegt og menningarlegt gildi þess. Tekið er fram að ef um sé að ræða svæði þar sem hefð­bundnar nytjar eru forsenda fyrir því að varðveita einkenni lands­lagsins skuli frið­lýsingin jafnframt miða að því að tryggja að þeim verði haldið við.

Svæðið í Þjórs­árdal nær til meðal annars Gjárinnar, Háafoss og nágrennis. „Gjáin hefur verið vinsæll ferðamanna­staður og er helsta aðdráttar­aflið óröskuð náttúra og friðsæld. Háifoss, Glanni og Stöng eru einnig fjöl­sóttir ferðamanna­staðir í Þjórs­árdal,“ segir í frétt ráðuneytisins.

Reykja­torfan liggur upp af Hvera­gerði innan marka sveitar­félagsins Ölfus. Landslag svæðisins einkennist af jarðhita og er þar fjöldi hvera og lauga, bergganga, brota og fram­hlaupa. Innan marka svæðisins eru tveir dalir, Reykja­dalur og Grænsdalur.

Enn fremur kemur fram í fréttinni að mikill fjöldi ferða­manna heimsæki Reykjadal á hverju ári en svæðið er meðal vinsælustu útivistar­svæða í Ölfusi og er undir miklu álagi. „Grænsdalur liggur samsíða Reykjadal. Hann er vel gróinn og þar er að finna grósku­mikið votlendi og jarð­hitasvæði. Er þar meðal annars að finna mýrar­hveravist, móahvera­vist og hvera­leirsvist auk jarðhita­lækja. Svæðið er að mestu óraskað og ekkert stíga­kerfi er til staðar til að stýra umferð gesta frá viðkvæmum svæðum og þeim sem beinlínis er hættulegt að fara um vegna jarðhita.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, segir að með vaxandi fjölda ferða­manna hér á landi hafi ákveðnir staðir óhjá­kvæmilega orðið fyrir meira álagi en aðrir. Uppbygging innviða og stýring ferða­manna sé afar brýn á slíkum svæðum og um leið að stutt sé við svæðin með land­vörslu. Frið­lýsing sé þar lykil­atriði því þannig sé hægt að takast á við þessi krefjandi verkefni með heild­stæðum hætti. „Það er því ánægjulegt að sjá framsýni Skeiða- og Gnúp­verjahrepps, Sveitar­félagsins Ölfuss, Hvera­gerðisbæjar og heima­fólks í málefnum þessara mikilvægu náttúru­perla í Þjórsársdal og í Reykjadal,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár