Flaug 6.000 kílómetra yfir hafið og heim

Sástu spóa suð‘r í flóa í sumar? Ef hann er ekki þegar floginn til vetrar­stöðvanna eru allar líkur á því að hann sé að undirbúa brottför. Spóinn Ékéké kom hingað í vor. Flakkaði um landið áður en hún flaug beinustu leið til Vestur-Afríku.

Hún ákvað að fljúga til Íslands í vor. Farsóttin breyttu engu þar um. Hún milli­lenti í Skotlandi, rétt tyllti þar niður fæti, áður en hún hélt ferðinni áfram. Eftir að hafa jafnað sig á flug­þreytunni flakkaði hún lands­hluta á milli í sumar en flaug svo héðan á dögunum. Búin að skoða hvert náttúru­undrið á fætur öðru – tína upp í sig ber og safna kröftum.

Flugið suður á bóginn tók fjóra daga og fjórar nætur. Henni kom líklegast ekki dúr á auga en ákvað að sleppa öllum milli­lendingum og halda beinustu leið til Vestur-Afríku. Þegar þangað var komið hafði hún lagt að baki um 5.000 kílómetra leið yfir úthafið og átti enn um þúsund kílómetra eftir til áfanga­staðar: Hinnar sólríku Gíneu-Bissau. Þar sem Atlantshafið er mun hlýrra en við strendur Íslands. Þar sem er fullkomið að dvelja yfir veturinn. Langt frá frosti og snjó.

Hún heitir Ékéké. Og er spói.

Ékéké þýðir einmitt spói á tungu heima­manna, fólksins sem hún deilir hinum frjósömu leirum Bijagós-eyja­klasans í Gineu-Bissau með á veturna, líkt og þúsundir annarra spóa. Þetta er þeirra staður að vetri. Að vori breiða þeir út vængina og fljúga í norðurátt.

„Megnið af spóum á Íslandi, sem eru talið er að séu um 40 prósent af öllum spóum heimsins, hafa vetur­setur í Vestur-Afríku,“ segir Tómas Grétar Gunnarsson fugla­fræðingur sem hefur tekið að sér það hlutverk að fræða lesendur Kjarnans um hið merka langflug Ékéké og félaga hennar. Sumir þeirra hafa flogið um 19 þúsund kílómetra fram og til baka frá vori og þar til nú.

Ékéké er meðal þeirra spóa sem hafa verið merktir með nýjustu og tæknilegustu gerð af sendi­búnaði á vetrar­stöðvunum í Gínea-Bissau. Hún varð þar með hluti af alþjóð­lega verk­efninu Global Flyway Network (GFN) sem styrkt meðal annars er af hollensku samtökunum BirdLife Nether­lands. Tilgangur verk­efnisins er að fylgjast með farfuglum „í heimi sem er stöðugt að taka breytingum“ eins og það er orðað á heimasíðu GFN. Verkefnið er hins vegar ekki á ábyrgð íslenskra fugla­fræðinga en Tómas, líkt og sjálfsagt fleiri kollegar hans hér á landi, fylgist spenntur með og deilir reglulega fréttum á Facebook af ferðum „íslensku“ spóanna sem sjá má í nánast í rauntíma á netinu. Í verk­efninu er ýmsum gögnum safnað en aðeins hluta þeirra er deilt með almenningi – að minnsta kosti fyrst um sinn.

Tómas Grétar Gunnarsson fræðir börn um fugla. Hann er forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi.
Tómas Grétar Gunn­ars­son fræðir börn um fugla. Hann er for­stöðu­maður Rann­sókn­ar­set­urs Háskóla Íslands á Suð­ur­landi.

Meistara­verkefni Tómasar í háskólanum á sínum tíma fjallaði einmitt um spóa. Síðan eru liðin mörg ár en rann­sóknir hans á þessum fugli, sem hefur orðið fjölmörgum skáldum að yrkisefni í gegnum tíðina, hafa þó haldið áfram. Í einu þeirra verkefna voru einmitt merktir spóar á Markar­fljótsaurum. Þeir flugu á sínar vetrar­stöðvar að hausti en komu, eins og spóa er siður, aftur til Íslands vorið eftir. Þá voru þeir handsamaðir og sendirinn, sem var langt í frá jafn tækni­legur og notaður er í GFN-verk­efninu, tekinn og gögnin lesin.

Því vissi Tómas vel að íslensku spóarnir fljúga alla leið til Vestur-Afríku. Hann hafði meira að segja komist að því að spóar fljúga eitt lengsta samfellda flug allra fugla milli varp- og vetrar­stöðva. Þeir stoppa yfirleitt ekki á leiðinni heldur halda sínu striki, jafnvel um 24 metra á sekúndu. Meðal­hraðinn er um 16-18 m/s. Tómas skrifaði grein í vísinda­tímaritið Scientific Report ásamt fleirum árið 2016 þar sem niður­stöður rann­sóknarinnar eru raktar.

Sendarnir sem Ékéké og félagar bera eru um 5 grömm að þyngd og eru rándýrir. Hver og einn kostar um hálfa milljón króna. En þeir hafa þegar sannað gildi sitt. Enn er sendir Ékéké að senda gögn, tæpum tveimur árum eftir að hann var festur á hana.

Þegar spóarnir voru merktir á Bijagós-eyjum var auðvitað ekki fyrirfram vitað hvert þeir myndu svo halda til að verpa. Þar sem margir kjósa að verpa hér á landi, líklega að jafnaði um 250 þúsund pör á ári, mátti þó gera ráð fyrir að einhverjir þeirra tækju flugið til Íslands.

Og sú varð raunin.

Þeir merktu spóar sem hingað komu í vor voru að sögn Tómasar „skemmtilega dreifðir um alla lands­hluta“. Einn hélt til fyrir austan, annar á Suður­landi og einn á Snæfellsnesi. „En svo var það einn sem flakkaði um landið, miklu meira en við hefðum getað ímynda okkur.“

Flakk­arinn ferða­glaði er hún Ékéke. Líklega er hún ungur kvenfugl sem var hér „í sínum fyrsta rúnti,“ eins og Tómas orðar það. Ékeke hefur að öllum líkindum ekki verpt. Miðað við ferða­lagið sem hún var á í allt sumar hefur hún einfald­lega vart haft tíma til að liggja á eggjum, sem tekur um mánuð og að sinna svo unga­uppeldi sem tekur annan til viðbótar.

Ékéké lenti á Vestfjörðum 11. maí. „Spóarnir vinna eftir strangri tíma­áætlun,“ segir Tómas. „Þeir fara að hellast inn yfir Ísland fyrri hluta maí og verpa langflestir um mánaða­mótin maí-júní. Ef varpið heppnast ekki þá eru mjög fáir sem reyna við það aftur. Þeir stoppa nefnilega í raun og veru stutt á Íslandi. Hefja sig flestir til flugs til vetrar­stöðvanna í lok júlí eða byrjun ágúst.“

Ékéké fór hins vegar enn fyrr. Kannski af því að hún hafði ekkert meira hér að gera – ungalaus. Frjáls eins og ... já, fuglinn.

Tómas hefur rannsakað spóa í um aldarfjórðung.
Tómas hefur rann­sakað spóa í um ald­ar­fjórð­ung.

Þá hafði hún farið víða um land. Frá Vestfjörðum til Vopna­fjarðar. Frá Vopna­firði að Skjálfanda­flóa. Þaðan inn í Svarfaðardal. Og svo aftur að Skjálfanda­flóa.

Þetta flakk á henni, var hún í sífelldri makaleit í sumar?

„Það er erfitt að segja,“ svarar Tómas. „Sennilega var hún bara að skoða heiminn. Kannski að athuga hvar gott væri að verpa síðar. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig þetta verður hjá henni á næsta ári. Þá ætti hún að setjast einhvers staðar að. Hvort það verður staður sem hún skoðaði í sumar eða einhver allt annar á eftir að koma í ljós.“

Spóar sækja alltaf í sömu vetrar- og varp­stöðvar. Að vetri halda þeir flestir til í löndum Vestur-Afríku; Máritaníu, Senegal, Gambíu og Gínea-Bissau. Sumir fara alla leið til Fílabeins­strandarinnar. „En í Gínea-Bissau kunna þeir greini­lega mjög vel við sig,“ segir Tómas.

Á farflugi sínu lenda þeir stundum „í slagtogi“ með fuglum sem hafa aðrar vetrar­stöðvar. En þeir eru átthaga­bundnir og þó að Ékéké hafi fyrst lent í Máritaníu er hún snerti jörð í Afríku fikraði hún sig fljótlega sunnar. Núna er hún í Gambíu, örlitla landinu milli Senegal og Gíneu-Bissau. Þar er fugla­lífið einnig sérlega auðugt en átthagarnir kalla – vella jafnvel – og því eru allar líkur á því að Ékéké færi sig á leirurnar við Bijagós-eyjur fljótlega.

Spóinn hefur orðið mörgum að yrkisefni hér á landi. Eflaust er sömu sögu að segja um skáldin í Vestur-Afríku.
Spóinn hefur orðið mörgum að yrk­is­efni hér á landi. Eflaust er sömu sögu að segja um skáldin í Vestur-Afríku.

Tómas segir að ýmsar upplýsingar hafi þegar komið í ljós í tengslum við hollenska verkefnið. Flakk Ékéké um Ísland í sumar sé til dæmis meira en fræðingar áttu von á. „Hún var stöðugt á ferðinni og það kom okkur á óvart. Hún var að vísu ein á ferð og því lausari við. Við höfðum fyrirfram búist við að spóar væru almennt stað­bundnari.“

Hann bendir þó á að kven­fuglarnir séu almennt mun hreyfanlegri en karl­fuglarnir. Þar sem Ékéké sé ung skýri það líklega hversu leitandi hún var í sumar.

Fyrir brottför héðan frá Íslandi þyngja spóar sig um þriðjung. Troða sig út af berjum til að fá orku fyrir ferða­lagið. „Í berjum eru fitusýrur sem hægt er að nota til að búa til fituforða,“ útskýrir Tómas. Svo er lagt í hann. Flogið beinustu leið yfir úthafið.

Ékéké flaug í fjóra daga og fjórar nætur. Í heild verður ferða­lagið fram og til baka um 11 þúsund kíló­metrar.

Fjölmargir vaðfuglar, meðal annars spóar, halda til á frjósömum eyrum Bijagós-eyja.
Fjöl­margir vað­fuglar, meðal ann­ars spóar, halda til á frjósömum eyrum Bijagós-eyja.

Tómas segir ósennilegt að spóar leggi sig á þessu langflugi. Líklega taki þeir ekki „kríu“ eins og sumar aðrar fugla­tegundir geri. „Þeir fljúga „aktívu“ flugi, þurfa að blaka vængjunum allan tímann. Það eru aðrar tegundir, þær sem geta svifið á fluginu, sem geta tekið smá dúr.“

Hvernig heilsast spóum eftir þetta langflug?

„Þeir eru oft mjög þreyttir, rétt blaka vængjunum þegar þeir lenda og eru mjög horaðir,“ segir Tómas. „Þeir ganga talsvert nærri sér. En ekki meira en svo að þeir taka áhættuna.“

Spóar eru klókir að velja flugveður, fara yfirleitt af stað í meðvindi og geta valið flug­hæðina líka. Ef það er vont veður í 100 metra hæð hækka þeir sig jafnvel um hálfan kílómetra. Langflestir lifa lang­flugið af. Lífslíkur spóa eru háar milli ára, jafnvel um 90 prósent. „Þannig að þó að ferða­lagið sé hættulegt og að það gangi nærri þeim þá er þetta eins og fyrir þjálfaðan maraþon­hlaupara að hlaupa maraþon. Honum tekst að klára hlaupið, verður þreyttur á eftir en er fljótur að ná sér.“

En para spóar sig fyrir lífstíð?

„Það er líklega ofsögum sagt að fuglar pari sig almennt fyrir lífstíð,“ svarar fugla­fræðingurinn. Þeir halda vissulega oft tryggð við maka sinn þó að þeir séu aðskildir yfir vetrar­tímann. En það er lífs­björgin sem drífur þá áfram. Það þýðir að ef annar fuglinn kemur fyrr til varp­stöðva bíður hann ekki endilega eftir hinum. Hann kann að telja það vænlegra að velja sér nýjan. Tómas reynir að setja sig inn í hugsunar­gang fuglanna: „Ef þú kemur á undan maka síðasta árs þá veistu ekki hvort hann er dauður eða bara seinn á ferð. Þannig að þú hugsar: Á ég að taka sjensinn eða para mig við þennan sem virðist til í tuskið?“

Ýmsar sögur eru til af fuglum sem sagðir eru hafa bundist tryggða­böndum í fleiri ár.

„Bóndi sagði að hjá sér hefði alltaf verpt sama álftaparið. Það var í sjálfu sér rétt en á ákveðnu tímabili hafði verið skipt út öðrum makanum fjórum sinnum og hinum fimm sinnum,“ tekur Tómas sem dæmi. En alltaf verpti „parið“ á sama stað þó að einstaklingar sem parið stóð saman af hafi ekki ætíð verið hinir sömu. „Stundum verða skilnaðir jafnvel þótt báðir fuglarnir séu á lífi,“ bendir hann á. „Það gerist frekar þegar það er ófrjósemi. Ef illa gengur að koma upp ungum, líkt og gerist hjá svona langlífum fuglum, þá eru meiri líkur á skilnaði.“

En að öllu þessu sögðu bætir Tómas við: „Ef báðir fuglar snúa aftur til varp­stöðvanna, alveg burtséð frá því hvenær þeir koma, þá eru um að bil 80 prósent líkur á því hjá spóum að þeir haldi sig við sama maka og árið áður.“

Spóinn kann vel við sig í íslenskri náttúru á sumrin. Hann vill hins vegar njóta hlýrra veðurs í Vestur-Afríku á meðan íslenski veturinn gengur yfir.
Spóinn kann vel við sig í íslenskri nátt­úru á sumrin. Hann vill hins vegar njóta hlýrra veð­urs í Vestur-Afríku á meðan íslenski vet­ur­inn gengur yfir.

Það vill svo til að spóinn er uppáhalds­fugl Tómasar. „Ég á kannski ekki að eiga uppáhalds­fugl, verandi fugla­fræðingur, en spóinn var fyrsta ástin, sá fyrsti sem ég fór að rannsaka að ráði og á því sérstakan stað í hjartanu.“

Þannig að það er ekki skrítið að þú fylgist spenntur með ferðalagi Ékéké og hinna spóanna?

„Ég er búinn að vera á refresh-takkanum í tölvunni til að uppfæra kortið sem sýnir ferðalag þeirra í allt sumar,“ segir Tómas og hlær létt að sjálfum sér þó að hér sé um blákalda staðreynd að ræða. „Ég er mjög spenntur að fylgjast með þessu.“

Og það eru fleiri. Íslendingar eru almennt margir áhuga­samir um fugla og kunna vel að meta að sjá fréttir um þá fjöl­miðlum. „Helst er það á vorin sem fjöl­miðlar hringja og vilja heyra hvaða fuglar eru komnir og hvernig varpið gangi,“ segir Tómas. „Það eru færri sem eru uppveðraðir þegar langt er liðið á sumar og farfuglarnir okkar á förum. En það er ágætt að minna á að þeir bæði koma og fara. Og að ferða­lagið getur verið langt.“

Fyrir áhugasama þá er hægt að fylgjast með ferðum spóanna hér. Athugið að til dæmis er hægt að velja ákveðinn spóa og sjá ferðir hans á ákveðnu tímabili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár