Fjör í Frans

François Hollande, tilkynnti að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri sem var óvænt og sögulegt því aldrei áður hefur forseti setið eitt kjötímabil og ekki sóst eftir endurkjöri.
François Hollande, til­kynnti að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem var óvænt og sögu­legt því aldrei áður hefur for­seti setið eitt kjö­t­íma­bil og ekki sóst eftir end­ur­kjöri. Mynd: EPA

Ársins sem er að líða verður lík­lega minnst í stjórn­málum fyrir óvænt úrslit. Hvort sem um er að ræða kosn­ingar á Íslandi, Brexit eða Trump. Á margan hátt er hægt að segja það sama um und­ir­bún­ing for­seta­kosn­ing­anna hér í Frakk­landi sem fram fara í apríl og maí á næsta ári í tveimur umferðum. Mánuðum saman hefur sama stefið hljó­mað í fjöl­miðlum. Fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Jacques Chiracs for­seta frá 1995, Alain Juppé átti að mæta Nicolas Sarkozy fyrrum for­seta í seinni umferð for­kosn­inga Lýð­veld­is­flokks­ins. Juppé myndi svo vinna og sigra með glæsi­brag seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna í maí. En margt fer öðru­vísi en ætlað er. Sarkozy komst ekki einu sinni í aðra umferð og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra hans frá 2007 – 2012, François Fillon vann for­kosn­ing­arnar með 66 pró­senta atkvæða. Þarna voru því tveir jaxlar í póli­tík úr leik og næsta öruggt sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum að sig­ur­veg­ar­inn myndi mæta Marine Le Pen úr Þjóð­ern­is­fylk­ing­unni í maí þar sem að vinstri­vængur stjórn­mál­anna er í molum. For­set­inn með 7,5 pró­senta stuðn­ing í skoð­ana­könn­unum og Sós­í­alista­flokk­ur­inn klof­inn í herðar niður. Margir hér í landi eru reyndar log­andi hræddir um að Le Pen vinni kosn­ing­arnar eftir að hafa séð Trump sigra í Banda­ríkj­unum. 

En þetta var áður en for­set­inn, François Hollande, til­kynnti að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem var óvænt og sögu­legt því aldrei áður hefur for­seti setið eitt kjö­t­íma­bil og ekki sóst eftir end­ur­kjöri. Og nú þarf að stokka upp á nýtt. Marine Le Pen taldi leið­ina að Elysée-höll greið­færa en hefur nú fengið Fillon sem keppi­naut en hann hefur fært Lýð­veld­is­flokk­inn langt til hægri og hræðir jafn­vel suma af sínum eigin flokks­mönnum sem telja sig vera svo­kall­aða sós­íal-Gaullista í ætt við Chirac. Fillon hefur talað um að lækka end­ur­greiðslur á lyfjum, einka­væða að hluta sjúkra­trygg­ingar og vill fækka opin­berum starfs­mönnum um fimm­hund­ruð­þús­und sem sér­fræð­ingar telja óger­legt. Fillon er nú kall­aður „anti-social“ og er á harða­hlaupum undan eigin stefnu úr for­kosn­ing­unum. Því hefur nú opn­ast pláss á miðj­unni og farið að hitna í kol­unum á vinstri vængnum.

Eftir að for­set­inn hætti við þurfa Sós­í­alistar nýjan fram­bjóð­enda og ekk­ert sjálf­gefið hver hann verður. For­sæt­is­ráð­herr­ann Manuel Valls sagði af sér á dög­unum til þess að ein­beita sér að for­kosn­ingum Sós­í­alista. Hann er reyndar sak­aður um að hafa ýtt Hollande út til þess að taka sæti hans og jafn­vel kall­aður Brútus. Vandamál Valls er hins vegar að hann hefur borið ábyrgð eins og for­set­inn á þeirri pól­tík sem rekin hefur verið und­an­farin ár. Hann hefur til dæmis sex sinnum notað grein 49.3 í stjórn­ar­skránni sem gefur for­sæt­is­ráð­herra leyfi þegar um mik­il­væg mál er að ræða sem varða hags­muni lands og þjóðar að sam­þykkja lög án umræðu og atkvæða­greiðslu. Þetta gerð­ist í þrí­gang þegar mjög umdeild vinnu­lög­gjöf var sam­þykkt í sumar. Á mið­viku­dag lýsti fram­bjóð­and­inn Valls því yfir að ef hann verði kos­inn for­seti þá muni hann fella þess grein úr stjórn­ar­skránni. Óhætt að segja að við­brögðin hafi verið blendin, milli hlát­urs og gráts. Valls kynnir sig nú sem mann sam­ein­ingar á vinstri vængnum. Sá sem er sak­aður um að hafa verið óvæg­inn og harður við and­stæð­inga sína og því ábyrgur á klofn­ingi eigin flokks. Helsti keppi­nautur hans Arnaud Montbourg fyrrum við­skipta­ráð­herra sem Valls einmitt rak úr rík­is­stjórn­inni er lík­legur til að verða í annarri umferð for­kosn­ing­anna á móti Valls. Svo er sá þriðji Benoît Hamon sem er enn lengra til vinstri og hefur verið að sækja í sig veðrið. Sá eini sem hefur nýjar og ferskar hug­myndir og gæti blandað sér í topp­bar­átt­una.

Ekki má svo gleyma tveimur fram­bjóð­endum sem eru nú þegar fram­bjóð­endur í for­seta­kosn­ing­unum og neita að taka þátt í for­kosn­ingum Sós­í­alista, Jean Luc Mélenchon og Emmanuel Macron. Mélenchon er sá sem er lengst til vinstri en hefur hægt og být­andi verið að hækka í könn­unum og eins og Macron langt fyrir framan alla hugs­an­lega fram­bjóð­endur Sós­í­alista. Hann vill öllu breyta og stofna hið svo­kalla sjötta lýð­veldi en eftir stjórn­ar­skrár­breyt­ingar De Gaulle 1958 er núver­andi lýð­veldi það fimmta í röð­inni frá bylt­ing­unni 1789. Emmanuel Macron er hins vegar kannski sá sem vert er að fylgj­ast náið með í fram­tíð­inni. Hann var ráð­gjafi for­set­ans, síðan við­skipta­ráð­herra og hefur ýmsar nýj­ungar í fram­an­greindum, þykir nokkuð frjáls­lyndur en neitar að láta stimpla sig til hægri og hefur engan flokk að baki sér sem gæti hjálpað á tímum þegar almenn­ingur treystir ekki stjórn­mála­flokkum. Macron er í dag þriðji fram­bjóð­and­inn í skoð­an­ankönnum á lands­vísu, á eftir Fillon og Le Pen. Hann ætlar sér að fylla tóma­rúmið á miðj­unni vegna þess hversu hægrisinnuð þessi tvö fyrr­nefnu eru. Einmitt á meðan að blóðug átök eiga sér stað í Sós­í­alista­flokknum. Sagan er því ekki skrifuð fyrir fram.

Skýr­ingin birt­ist einnig á vef Bergþórs Bjarna­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár