Hægist á fjölgun innflytjenda

Færri erlendir rík­is­borg­arar flutt­ust til lands­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs en fyrsta árs­fjórð­ungi 2018.

Alls voru erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi 45.518 við lok fyrsta árs­fjórð­ungs og hafði þá fjölgað um 1.208 frá fyrsta jan­úar. Það er minni fjölgun en á fyrsta árs­fjórð­ungi síð­asta árs þegar 1.620 erlendir rík­is­borg­arar fluttu til lands­ins. Þetta kemur fram í nýjum tölum Þjóð­skrár.

Það hefur því hægt á fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi frá árunum 2017 og 2018 þegar met­fjölgun var á erlendum rík­is­borg­urum búsettum á Íslandi. Á þeim tíma fjölg­aði erlent rík­is­fang um 46 pró­sent og voru þeir 44.310 við lok árs 2018. Pól­verjar eru fjöl­menn­astir erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi eða 19.564, næst fjöl­menn­asti hóp­ur­inn er frá Litháen og fylgja Lettland, Rúmenía og Portúgal þar á eftir. Erlendir rík­is­borg­arar eru nú 12,7 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda lands­ins.

Erlendum starfsmönnum fjölgar

Hægari fjölgun erlendra íbúa á land­inu helst í hendur við kólnun í hag­kerf­inu og færri lausum störfum en sam­kvæmt tölum Vinnu­mála­stofn­unar hefur atvinnu­leysi farið vax­andi á sein­ustu mán­uðum. Hag­stofan hefur fram­kvæmt vinnu­mark­aðs­rann­sóknir um langt skeið, en hún hóf þó ein­ungis nýverið að gefa út tölur um laus störf. Samkvæmt fyrstu tölum hennar, sem náðu yfir fyrsta árs­fjórð­ung þessa árs voru 3500 laus störf á land­inu.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru við lok árs 2018 tæp­lega 34 þús­und erlendir rík­is­borgar starf­andi hér á landi og hafði þá fjölgað um 9500 frá árs­byrjun 2017 eða um rúm­lega þrjú þús­und færri en fluttu til lands­ins á sama tíma­bili. Meðal ástæðna fyrir þessum mun á fjölda búsettra og starf­andi erlendra rík­is­borg­ara eru að inni í tölum yfir búsetta eru börn og ein­stak­lingar sem eru komnir hingað til að stunda nám eða eru komnir á eft­ir­laun.

Flestir nýir skattgreiðendur erlendir

Kjarninn hefur bent á að með­al­tal félags­legra greiðslna til inn­flytj­enda hefur lækkað á und­an­förnum árum, á sama tíma og erlendum rík­is­borg­urum búsettum á Íslandi hefur fjölgað. Til félags­legra greiðslna telj­ast meðal ann­ars greiðslur frá Trygg­inga­stofnun, atvinnu­leys­is­bætur, barna­bætur og líf­eyr­is­greiðslur. Erlendir rík­is­borg­arar virð­ast því ekki sækja meiri greiðslur í félags­lega kerfið þrátt fyrir fjölgun.

Á sama tíma þiggja inn­lendir að með­al­tali mun hærri greiðslur úr félags­lega kerf­inu. Flestir nýir skatt­greið­endur á Íslandi eru aftur á móti inn­flytj­endur en þeim fjölg­aði til að mynda um 28 pró­sent á milli áranna 2016 og 2017 og árið 2017 borg­uðu 44.850 erlendir rík­is­borg­arar skatta á Íslandi en það voru á þeim tíma rúm fimmtán pró­sent skatt­greið­enda á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár