3500 laus störf á fyrsta ársfjórðungi 2019

Hag­stofan hefur nú hafið mæl­ingar á fjölda lausra starfa hér á landi. Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019 voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnu­mark­aði. Á sama tíma voru um 228.300 störf mönnuð og hlut­fall lausra starfa því rétt um 1,5 pró­sent.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnumarkaði. Á sama tíma voru um 228.300 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því rétt um 1,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2019. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar er hluti af samstarfi ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu um vinnumarkaðstölfræði. Hagstofan hefur nú rannsakað vinnumarkaðinn hér á landi með ársfjórðungslega niðurstöðum samfellt frá ársbyrjun 2003. Aftur á móti er þetta í fyrsta skipti sem Hagstofan birtir tölur um fjölda og hlutfall lausra starfa á íslenskum vinnumarkaði en þessar tölur eru birtar til að bera saman fjölda lausra starfa innan Evrópu. Til að mynda var á fjórða ársfjórðungi 2018 hlutfall lausra starfa 2,3 prósent í Evrópusambandinu en þá var hlutfallið hæst í Tékklandi eða alls 6 prósent.

Mun færri konur en karlar í fullu starfi

Ef vinnumarkaðurinn hér á landi á fjórði ársfjórðungur 2018 er skoðaður þá má sjá að jafnaði voru 203.700 manns á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 198.900 starfandi og 4.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var því 80 prósent, hlutfall starfandi 78,6 prósent en atvinnuleysi 2,4 prósent á fjórða ársfjórðungi 2018. Starfandi fólki fjölgaði um 4500 á milli ára en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði þó um hálft prósentustig.

Af starfandi fólki á fjórða ársfjórðungi 2018 voru 148.500 í fullu starfi, eða 74,7 prósent og 50.400 í hlutastarfi eða 25,3 prósent. Fólki í fullu starfi fjölgaði um 4.800 frá fjórða ársfjórðungi 2017 en fjöldi fólks í hlutastörfum stendur í stað. Talsverður munur er á kynjunum þegar að kemur að starfshlutfalli en starfandi konum voru 62,3 prósent í fullu starfi á fjórða ársfjórðungi 2018 og 88,6 prósent af starfandi körlum

Atvinnuleysi eigi eflaust eftir að taka stökk upp á við

Á fjórða ársfjórðungi mældist atvinnuleysi 2,4 prósent, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Atvinnuleysi mældist hæst líkt og vanalega hjá aldurshópnum 16 til 24 ára eða 5,3 prósent. Ef litið er til menntunar var atvinnuleysi hjá þeim sem hafa aðeins lokið grunnmenntun 4,3 prósent. Hjá þeim sem lokið hafa starfs- eða framhaldsmenntun mældist atvinnuleysi 2,1 prósent og 1,3 prósent meðal þeirra sem lokið hafa háskólamenntun. Enginn munur var á atvinnuleysi milli höfuðborgarsvæðisins og utan þess.

Vinnumálastofnun mælir einnig atvinnuleysi en tölur Vinnumálastofnunar sýna hversu margir eru skráðir atvinnulausir og njóta atvinnuleysis bóta. Á meðan niðurstöður Hagstofunnar byggja á mánaðarlegri úrtakskönnun þar sem fólk er spurt um stöðu sína.

Í nýrri Hagsjá Landsbankans má sjá að ef litið er til 12 mánaða hlaupandi meðaltals hefur atvinnuleysi samkvæmt mælingum Hagstofunnar verið nokkuð stöðugt í næstum tvö ár. Tölur Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi hafa hins vegar hækkað nokkuð á síðustu mánuðum.

Í febrúar var skráð atvinnuleysi 3,1 prósent samanborið við 2,1 prósent í febrúar árið 2018. Í kjölfar gjaldþrot WOW air í lok mars er búist við fjölda uppsagna og samkvæmt Vinnumálastofnun er talið að alls hafi um 1.600 manns fengið uppsagnarbréf í marsmánuði. Færu þeir allir á atvinnuleysisskrá myndi skráð atvinnuleysi strax fara upp í kringum 4 prósent. Í hagsjá Landsbankans segir að ekki verði útséð hver þróunin verður á næstu vikum og mánuðum en að atvinnuleysi eigi eflaust eftir að taka stökk upp á við. 

Farið að hægja á fjölgun erlendra rík­is­borg­ara

Hlut­­fall inn­­flytj­enda á Íslandi hefur aldrei verið hærra en árið 2018 en þá voru inn­­flytj­endur 12,6 pró­­sent mann­­fjöld­ans. Á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem koma hingað til lands til að búa hér. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­sent. Ástæðan er sú að á Íslandi var mik­ill efna­hags­upp­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­gangi, sér­stak­lega í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu og í bygg­inga­iðn­aði.

Nú hins vegar þegar hag­kerfið er farið að kólna og spenna að losna þá virð­ist erlendum rík­is­borg­urum sem sækja hingað til lands fækka sam­hliða. Samkvæmt tölum hag­stof­unnar fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búsettir eru á Íslandi um 820 á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2019. Til sam­an­burðar þá fjölgað erlendum rík­is­borg­urum með búsetu á Íslandi um 1.620 á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018. Því virð­ist allt stefna í að mun færri erlendir rík­is­borg­arar muni flytja til lands­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár