Khedr-fjölskyldan hefur fengið dvalarleyfi

Egypska fjöl­skyldan sem hefur verið í felum í rúma viku fær dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. „Rétt­lætið sigrar stundum,“ segir lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar.

Egypska Khedr-fjöl­skyldan fékk rétt í þessu dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Kæru­nefnd útlend­inga­mála féllst á sjón­ar­mið fjöl­skyld­unnar um end­ur­upp­töku. Þetta stað­festir Magnús D. Norðdahl, lög­maður fjöl­skyld­unnar, í sam­tali við Kjarnann.

„Þetta er sigur fyrir íslenskt sam­fé­lag enda hefði fyr­ir­huguð brott­vísun orðið ævar­andi svartur blettur í sögu þjóð­ar­innar. Mæli­kvarði á gildi hvers sam­fé­lags er hvernig það kemur fram við sína við­kvæm­ustu hópa og þar eru börn fremst í flokki,“ segir hann.

Þá kemur fram í máli hans að almenn­ingur allur og félaga­sam­tök á borð við Solaris og No Borders hafi tekið afstöðu með fjöl­skyld­unni og sýnt það í verki. Fjöl­skyldan kunni öllum þeim sem studdu hana miklar þakkir.

Óskandi að Útlendingastofnun breyti verklagi sínu í kjölfarið

Magnús segir það vera ósk­andi að málið verði til þess að ryðja braut­ina fyrir önnur börn á flótta og að Útlend­inga­stofnun breyti verk­lagi sínu með til­liti til mats á hags­munum barna.

„Slíkt mat á ávallt að vera sjálf­stætt og heild­stætt og þannig úr garði gerð að hægt sé að taka ákvörðun í hverju máli sem er við­kom­andi barni fyrir bestu. Rétt­lætið sigrar stundum,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár