Harma að fjáraukalög innihaldi ekki framlög til þjónustu við fatlaða né reksturs Strætó

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru skúffuð yfir því að í fjár­auka­laga­frum­varpi fjár­mála­ráð­herra sé hvorki að finna aukið fé til lög­bund­innar þjón­ustu við fatlað fólk, né aukin fram­lög til Strætó bs. vegna tekju­taps í gegnum veiru­far­ald­ur­inn.

Innstigum í strætisvagna fækkaði verulega í kórónuveirufaraldrinum. Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins biðla á ný til þingsins um að bæta tekjutap Strætó bs. vegna faraldursins.
Inn­stigum í stræt­is­vagna fækk­aði veru­lega í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins biðla á ný til þings­ins um að bæta tekju­tap Strætó bs. vegna far­ald­urs­ins. Mynd: Arnar Þór

Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) lýsa yfir von­brigðum með það, í umsögn um frum­varp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til fjár­auka­laga, að þar sé ekki að finna til­lögur um frek­ari fram­lög úr rík­is­sjóði til mála­flokks fatl­aðs fólks né aukin rekstr­ar­fram­lög til Strætó.

Í umsögn­inni segir að nýfram­lögð fjár­auka­lög beri það ekki með sér að tekið hafi verið mark á sjón­ar­miðum sveit­ar­fé­laga lands­ins um fjár­hags­lega leið­rétt­ingu vegna mála­flokks­ins, eins og gerð var krafa um í ályktun Lands­þings Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga í lok sept­em­ber.

„Mik­il­vægt er og enn hægt, að taka á þessu máli, þ.e. í fjár­auka­lögum árs­ins 2022 og síðan til fram­tíðar í fjár­lögum rík­is­ins árið 2023. Lögð er þung áhersla á að sveit­ar­fé­lögin fái fjár­hag­lega leið­rétt­ingu frá rík­inu til að standa undir útgjöldum vegna þjón­ustu við fatlað fólk eins og farið hefur verið yfír m.a. á fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­lag­anna í byrjun októ­ber þar sem full­trúar rík­is­ins tóku þátt. Eins og komið hefur fram er þetta mikið hags­muna­mál fyrir sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en áætlað er að um 87% hall­ans falli til hjá sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í umsögn SSH.

Þar er vísað til þess að halli af mála­flokknum árið 2020 hafi verið um 8,9 millj­arðar króna, eins og fram kom í skýrslu starfs­hóps sem greindi kostn­að­ar­þróun í þjón­ustu við fatlað fólk. Nú sé svo unnið að sam­bæri­legri grein­ingu fyrir árið 2021 og ætla megi að nið­ur­staðan hafi versnað um allt að 3 millj­arða króna, sem setur heild­ar­hall­ann upp í 12-13 millj­arða króna.

„Van­fjár­mögnun mála­flokks­ins er ein meg­in­or­sök þess rekstr­ar­halla sem hefur birst í árs­hluta­upp­gjörum sveit­ar­fé­lag­anna 2022, en þau hafa með ábyrgum hætti brugð­ist við lögum sem sett hafa verið um þjón­ustu við fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarfir, án þess að vera­fjár­mögnuð með eðli­legum hætti,“ segir í umsögn SSH.

Ítreka beiðni um aukin framlög til rekstur Strætó

Í umsögn SSH er svo „ítrekuð beiðni um að rík­is­sjóður komi með fram­lag til rekst­urs Strætó bs. til að létta sveit­ar­fé­lög­unum það fjár­hags­lega tap sem orðið hefur vegna far­ald­urs­ins“ og sett fram mynd sem sýnir hvernig inn­stig í stræt­is­vagna þró­uð­ust í far­aldr­inum.

Á það er bent að ef tekju­streymi Strætó hefði verið sam­bæri­leg og fyrir heims­far­ald­ur­inn væru upp­safn­aðar tekjur á árunum 2020-2022 um 1,7-2 millj­örðum hærri en reyndin er.

[adspot]

„Sveit­ar­fé­lögin hafa þegar brugð­ist við þess­ari stöðu með því að leggja Strætó bs. til fjár­magn, hækka gjald­skrár og hag­ræða í rekstr­inum. Samkvæmt skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um mat á árangri aðgerða til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru kemur fram að um 17,5 millj­arðar kr. voru greiddir úr rík­is­sjóði til rekstr­ar­að­ila vegna nei­kvæðra áhrifa af Covid-19. Strætó bs. fékk á árinu 2021 fram­lag að upp­hæð 120 millj­ónir kr og Ijóst er að sú upp­hæð dugar hvergi upp í þann mikla halla sem varð á rekstr­inum vegna Covid-19,“ segja sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þau segja að rök­styðja megi beiðn­ina „með því að sveit­ar­fé­lögin gerðu það sem þau gátu til að halda upp sem mestri þjón­ustu á tímum Covid m.a. til að mik­il­vægir fram­línu­starfs­menn ættu þess kost að kom­ast til vinnu og sinna þeim mik­il­vægu störfum sem þurfti á Covid tím­anum“, auk þess sem UITP, alþjóða­sam­tök um almenn­ings­sam­göngur, hafi lagt áherslu á mik­il­vægi þess að rík­is­stjórnir haldi áfram að styðja við almenn­ings­sam­göngur á meðan þær séu að „ná sér uppúr þeim öldu­dal sem þær lentu í við Covid-19 far­ald­ur­inn.“

Fjárlagahalli minni en áætlað var þrátt fyrir 75 milljarða útgjaldaaukningu

Í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til fjár­auka­laga, sem lagt var fram 9. nóv­em­ber, kom fram að útlit væri fyrir að afkoma rík­is­sjóðs á næsta ári yrði 60 millj­örðum króna betri en útlit var fyrir þegar fjár­lög voru lögð fram fyrr í haust.[links]

Helsta ástæðan fyrir því er sú að ein­sýnt þykir að tekjur rík­is­ins af skatt­heimtu og trygg­inga­gjöldum verði yfir 100 millj­örðum meiri en áætlað var er fjár­laga­frum­varpið var lagt fram. Rík­is­fjár­laga­hall­inn stefnir því í að verða 126 millj­arðar á næsta ári, í stað 186 millj­arða króna.

Alls eru vænt útgjöld rík­is­ins árið 2023 að aukast um tæpa 75 millj­arða króna frá því sem áður var áætlað sam­kvæmt fjár­auka­laga­frum­varp­inu. Þar munar lang­mestu um 37 millj­arða króna aukin útgjöld vegna end­ur­met­innar þarfar um vaxta­gjöld rík­is­sjóðs, vegna áhrifa verð­bólgu á verð­tryggðar skuldir rík­is­ins. Einnig er gert ráð fyrir 16,6 millj­arða króna útgjalda­heim­ildum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, að uppi­stöðu til heil­brigð­is­stofn­ana.

En ekk­ert bæt­ist við fram­lög til Strætó, né til mála­flokks fatl­aðs fólks. Og það harma sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár