Kostir og gallar sæstrengs metnir: Kallað eftir „alvöru viðræðum“ við Breta

Grein­ing­ar­deild Arion banka fer í dag yfir helstu álita­mál lagn­ingu sæstrengs frá Íslandi til Bret­lands. Að mati deild­ar­innar þarf að nást sátt um hvort og hvernig Íslend­ingar hygg­ist nýta orku­auð­lindir lands­ins. Nútíma­tækni muni gera það kleift að flytja út raf­orku, sem áður var ekki hægt. „Við gætum lagt enn eitt matið á áhrif sæstrengs en hætt er við að slík athugun skili litlu umfram það sem aðrir hafa gert nú þegar vegna þess að grund­vall­ar­for­sendur liggja ekki enn fyrir: Hver fjár­magnar streng­inn? Hver verður áhætta íslenskra skatt­greið­enda, ef ein­hver? Á hvaða verði væri unnt að selja ork­una og er hægt að tryggja ásætt­an­legt verð til lengri tíma? Hvernig munu tekjur af orku­sölu um sæstreng skipt­ast milli orku­fram­leið­enda og eig­enda strengs­ins?“ Að þessu er spurt í nið­ur­lagi grein­ing­ar­innar og kallað eftir að við­ræður hefj­ist um málið milli íslenskra og breskra yfir­valda auk hugs­an­legra fjár­festa. „Flest rök hníga að því að það sé vel þess virði að kanna málið til hlítar á næstu mán­uðum og miss­erum.“

Bent er á að í nýlegri skoð­ana­könnun hafi 67 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu verið á móti lagn­ingu raf­orku­sæ­strengs til Bret­lands. Nið­ur­stöð­urnar end­ur­spegla tor­tryggni og efa­semdir gagn­vart lagn­ingu sæstrengs, segir grein­ing­ar­deildin, og metur áhyggjur og gagn­rýni eftir fjórum flokkum: Orku­verði til heim­ila, áhættu, atvinnu­sköpun og áhrifa á umhverfið. „Við í Grein­ing­ar­deild Arion banka veltum þessum áhyggjum fyrir okkur og spyrjum hvort þær gefi til­efni til að leggja hug­mynd um sæstreng til hliðar, eða halda áfram með hana.“

Orkuverð til almennings gæti hækkað


„Áætlanir gera ráð fyrir að í gegnum sæstreng yrðu flutt út um 5 TWst á ári. Það er ríf­lega fimm­falt meiri orka en nemur notkun íslenskra heim­ila í dag. Líklegt er að beint orku­verð til almenn­ings hækk­aði ef Ísland tengd­ist evr­ópskum orku­mark­aði,“ segir í grein­ing­unni.


Heild­sölu­verð raf­orku myndi að öllu óbreyttu hækka við lagn­ingu sæstrengs og Lands­virkjun gæti fengið um 80 doll­ara fyrir MW-stund, tæpar 11 þús­und krónur. Það er um tvö­falt hærra en heild­sölu­verðið sem íslenskum heim­ilum býðst í dag. „Slík hækkun myndi þó hækka raf­magns­reikn­ing heim­ila tals­vert minna eða um 40%, ef við gerum ráð fyrir óbreyttum dref­ing­ar­kostn­aði. Ef heild­sölu­verð myndi svo þre­fald­ast næmi hækk­unin 78% og verð á MWst með flutn­ingi og sköttum væri um 30 þús­und krónur, sem er svipað og að með­al­tali í evr­ópskum höf­uð­borgum. Skatt­arnir eru stór hluti af orku­verð­inu í þessu dæmi eins og sjá má. Ef verðið hækkar upp í svipað og Lands­virkjun hefur nefnt að gæti feng­ist fyrir raf­orku um sæstreng og skattar væru afnumdir, myndi raf­orku­verðið í dæm­inu ein­ungis hækka um 12%.“


Aukinn arður fyr­ir­tækja í eigu almenn­ings gæti þó vegið að hluta eða öllu leyti á móti mögu­legum orku­verðs­hækk­unum til almenn­ings, að mati grein­ing­ar­deild­ar­innar. „Stór hluti hækk­unar raf­orku­verðs, bæði vegna orku um sæstreng og inn­an­lands­mark­aðar, ætti að skila sér beint í betri afkomu orku­fyr­ir­tækja sem geta þá skilað meiri arði til eig­enda sinna, almenn­ings. Ef þessi óbeini arður til almenn­ings er tek­inn inn í mynd­ina gæti hækkun beins raf­orku­verðs til heim­ila gert þau mun betur sett en ella. Verk­efnið gæti skilað miklum arði til rík­is­sjóðs og ann­arra opin­berra aðila, sem nota mætti til að styrkja heil­brigðis- og mennta­kerfið, lækka skatta og/eða greiða niður skuldir. Allt þetta gagn­ast íslenskum heim­ilum.


Einnig er mögu­legt að nýta eitt­hvað af arð­inum til að lækka beinan orku­kostnað heim­ila. Til þess eru helst þrjár leiðir: Í fyrsta lagi gætu fram­leið­endur og veitur inn­an­lands gert lang­tíma­samn­inga um raf­orku áður en kemur til lagn­ingar sæstrengs. Í öðru lagi er hægt að lækka eða afnema 24% virð­is­auka­skatt á raf­orku og í þriðja lagi er hrein­lega hægt að nið­ur­greiða raf­orku með hluta af þeim ágóða sem sæstrengur skilar rík­inu.“

Áhættan gríðarleg - Kostnaðurinn gæti verið tvær Kárahnjúkavirkjanir

Í grein­inni segir það ljóst mega vera að umfang fram­kvæmda vegna sæstrengs yrði gríð­ar­legt í hlut­falli við stærð íslenska hag­kerf­is­ins. Vegna þessa hafi margir skilj­an­legar áhyggjur af verk­efn­inu sem geti verið þenslu­hvetj­andi. Vísað er í útreikn­inga Bloomberg New Energy Finance sem telur að kostn­að­ur­inn við lagn­ingu sæstrengs­ins yrði tæp­lega 1,9 millj­arðar punda, eða tæp­lega 400 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar var heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu Kára­hnjúka um 206 millj­arðar á verð­lagi dags­ins í dag. Um áhættu verk­efn­is­ins segir grein­ing­ar­deild bank­ans:

„Ljóst er að umfang fram­kvæmda vegna sæstrengs væri gríð­ar­legt í hlut­falli við stærð íslenska hag­kerf­is­ins. Vegna þessa hafa margir skilj­an­lega áhyggjur af því að verk­efni á borð við sæstreng sé of áhættu­samt. Talið er að vegna þess hve lokað íslenska raf­orku­kerfið er séu um 2 TWst árlega ónýttar, svo það þyrfti að auka raf­orku­fram­leiðslu um 3 TWst á ári, eða um ríf­lega 15%, ef flytja á út 5 TWst um sæstreng. Hægt er að ganga út fá því að ekki væri ráð­ist í slíkar fram­kvæmdir nema nán­ari athug­anir gefi til kynna að þær séu arð­bærar og trygg­ing verði fyrir því að nægi­lega hátt orku­verð fáist.

Þó er alltaf hætta á að fram­kvæmdir af slíkri stærð­argráðu hafi þenslu­hvetj­andi áhrif, sér­stak­lega ef ráð­ist er í þær á sama tíma og aðrir þenslu­hvetj­andi þættir eru að verkum á fram­kvæmda­tíma. Þetta er ekki óyf­ir­stíg­an­legt vanda­mál og ekki rök fyrir því að ráð­ast ekki í fram­kvæmd­irnar séu þær taldar arð­bærar, heldur ein­ungis að yfir­völd þyrftu að gefa tíma­setn­ingu verk­efn­is­ins gaum í sam­hengi við stöðu hag­kerf­is­ins. Einnig þyrfti að leggj­ast í tals­verðar end­ur­bætur á dreifi­kerfi raf­orku á Íslandi. Þær end­ur­bætur eru að öllum lík­indum nauð­syn­legar, hvort sem sæstrengur verður lagður eða ekki.


Stóra málið er sæstreng­ur­inn sjálfur, sem Bloomberg New Energy Finance reiknar með að muni kosta tæpa 1,9 millj­arða punda, eða tæp­lega 400 millj­arða íslenskra króna auk 2 ma.kr. rekstr­ar­kostn­aðar á ári. Mat Bloomberg er umtals­vert yfir kostn­að­ar­mati Hag­fræði­stofn­unar og ann­arra sem hafa skoðað málið. Til sam­an­burðar var heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu Kára­hnjúka­virkj­unar 206 ma.kr. á verð­lagi dags­ins í dag.


Hægt er að draga veru­lega og jafn­vel algjör­lega úr fjár­hags­legri áhættu hins opin­bera á Íslandi og líkum á greiðslu­jafn­að­ar­vanda ef sæstreng­ur­inn verður að hluta til eða öllu leyti í erlendri eigu. Hvernig samið yrði um skipt­ingu ágóð­ans milli inn­lends orku­iðn­aðar og eig­enda sæstrengs er algjört lyk­il­at­riði þegar kemur að því að ákveða hvort af verk­efn­inu verður. Það þarf þó ekki að skapa mikla fjár­hags­lega áhættu fyrir íslenska skatt­greið­endur ef rétt er haldið á spil­unum.“

Sköpun verðmæta stendur undir hagsæld en ekki atvinnusköpun

„Á Íslandi hefur oft verið lögð á það rík áhersla við hvers­konar iðn­að­ar­upp­bygg­ingu að skapa störf og stundum hefur sú hug­sjón verið á kostnað þess að hámarka verð­mæta­sköpun. Hagsagan sýnir hins vegar að sköpun verð­mæta er það sem stendur undir hag­sæld, ekki atvinnu­sköpun í sjálfri sér. Leiði athug­anir til þess að sæstrengur skapar meiri verð­mæti heldur en núver­andi nýt­ing orku, með til­liti til áhættu, ætti það að skila rík­ara sam­fé­lagi til lengri tíma litið,“ segir í kafla grein­ing­ar­innar um atvinnu­sköpun. Bent er á mögu­leika til stofn­unar sér­staks auð­linda­sjóðs.

„Áður­nefndur arður til rík­is­sjóðs og nýt­ing hans gæti ýtt veru­lega undir verð­mæta­sköpun í hag­kerf­inu, auk þess sem aðrir inn­lendir aðilar gætu notið beins ábata af verk­efn­inu. Þannig væri lagður grunnur að sköpun enn verð­mæt­ari starfa í íslensku sam­fé­lagi þegar til lengdar lætur. Einnig væri ein­fald­lega hægt að borga hverjum Íslend­ingi arð árlega. Þessi leið hefur verið farin í Alaska þar sem stofn­aður var auð­linda­sjóður (Alaska Permanent Fund) og úr honum voru greiddar sem sam­svarar um 250 þús­und kr. á hvert manns­barn í fyrra. Slíkt myndi auka ráð­stöf­un­ar­tekjur og þannig eft­ir­spurn í hag­kerf­inu sem myndi styðja vel við atvinnu­lífið.

Vissu­lega getur hærra raf­orku­verð komið íslenskum fyr­ir­tækjum illa og getur til lengdar lætur haft áhrif á sam­setn­ingu íslensks atvinnu­lífs. Hins vegar má leiða líkum að því að aukið sölu­verð­mæti íslenskrar orku geti skilað lægri opin­berum álögum á atvinnu­lífið, sterk­ari innviðum og betur mennt­uðu vinnu­afli. Þar með yrði heildar ábati atvinnu­lífs­ins til lang­frama meiri. Þá er einnig mögu­legt að halda raf­orku­kostn­aði fyr­ir­tækja á Íslandi niðri með svip­uðum aðgerðum og gagn­vart heim­ilum, þó svo að hag­fræði­leg rök fyrir því séu væg­ast sagt umdeild. Um þetta verður hins vegar ekki hægt að full­yrða fyrr en skýr­ari mynd fæst á arð­semi og áhættu sæstrengs. “

Nauðsynlegt að fara varlega í virkjanir

Í síð­asta efn­iskafla grein­ing­ar­innar er fjallað um áhrif á umhverfið og talað um nauð­syn þess að fara var­lega. Ekki sé víst að sæstrengur kalli á nýjar virkj­anir. „Flestar áætl­anir gera ráð fyrir því að það þyrfti að byggja nýjar virkj­anir með a.m.k. 400 MW upp­settu afli sam­tals (upp­sett afl Kára­hnjúka­virkj­unar er 690 MW), sem myndi óhjá­kvæm­lega hafa áhrif á umhverfið. Hafa ber þó í huga að sú orka gæti komið að nær öllu leyti frá virkj­unum sem eru nú þegar í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar, minni virkj­unum og vind­orku.

Að sjálf­sögðu fel­ast verð­mæti í ósnort­inni nátt­úru. Þau verð­mæti má ekki van­meta, sér­stak­lega þar sem virði þeirra mun mjög senni­lega vaxa á næstu ára­tugum með áfram­hald­andi fólks­fjölgun og ásókn í auð­lindir í heim­inum. Vandinn er að mun erf­ið­ara er að meta slíkt verð­mæti nátt­úru­auð­linda heldur en verð­mæti þess að virkja þær. Þetta þýðir þó að okkar mati ekki að það megi ekki að virkja, ein­ungis að það verði að fara var­lega, kanna umhverf­is­mál til hlítar og ná sem mestri sátt um fjár­fest­ingar í orku­iðn­að­inum, hversu miklar sem þær kunna að verða. Það ætti í það minnsta að vera algjör grunn­for­senda að umhverf­is­rask­andi fram­kvæmdir skili sem mestum ábata.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár