Þórdís Kolbrún leiðir eftir fyrstu tölur í Norðvesturkjördæmi – Haraldur þriðji

Kjör­stöðum hefur nú verið lokað í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Talin hafa verið 798 atkvæði úr flestum en ekki öllum kjör­deildum af um 2200 greiddum atkvæðum Teitur Björn Ein­ars­son er sem stendur í öðru sæti.

Þórdís Kolbrún tilkynnti það síðasta haust að hún myndi fara fram í Norðvesturkjördæmi og sækjast eftir oddvitasætinu.
Þórdís Kolbrún til­kynnti það síð­asta haust að hún myndi fara fram í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og var­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins leiðir í próf­kjöri flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eftir fyrstu tölur með 532 atkvæði. Í öðru sæti er Teitur Björn Ein­ars­son með 359 atkvæði í 1.-2. sæti. Haraldur Bene­dikts­son sem hefur sóst eftir áfram­hald­andi for­ystu fyrir flokk­inn í kjör­dæm­inu er í þriðja sæti með sam­tals 389 atkvæði í 1.-3. sæti. Í fjórða sæti er Sigríður Elín Sig­urð­ar­dóttir með 306 atkvæði sam­tals í 1.-4. sæti.

Fram kom í beinni útsend­ingu á Facebook-síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins að talin hefðu verið 798 akt­væði úr flestum en ekki öllum kjör­deildum. Alls greiddu um 2200 atkvæði í próf­kjör­inu sem fór fram dag­ana 16. júní og 19. júní, í dag, en kjör­stöðum lok­aði nú klukkan 21.

Fyrsta sæti eða ekkert fyrir Harald

Fyrr í vik­unni greindi Haraldur frá því í við­tali við Bæjarins besta að hann hygð­ist ekki þiggja annað sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu fari það svo að hann tapi í bar­átt­unni um odd­vita­sætið. Í við­tal­inu sagði Haraldur að ef flokks­menn kysu ein­hvern annan í odd­vita­sætið þá væri það skýr nið­ur­staða. „Það getur ekki verið gott fyrir nýjan odd­vita að hafa þann gamla í aft­ur­sæt­inu.“

Í síð­ustu kosn­ingum leiddi Haraldur lista flokks­ins í kjör­dæm­inu en Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir var í öðru sæti list­ans. Frá kosn­ing­unum 2017 hefur Þórdís Kolbrún orðið ráð­herra auk þess sem hún var kjörin vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún gaf það út síð­asta haust að hún ætl­aði ekki að skipta um kjör­dæmi og að hún myndi sækj­ast eftir efsta sæti list­ans.

Sam­flokks­konur þeirra Haraldar og Þórdísar lýstu yfir óánægju með yfir­lýs­ingu Haraldar. Líkt og fjallað er um í umfjöllun Vísis var ákvörð­un­inni líkt við hót­anir í garð sam­flokks­fólks í kjör­dæm­inu og Haraldur sagður frekur. Rósa Guð­munds­dóttir, for­maður bæj­ar­ráðs Grund­ar­fjarðar og bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði Harald hafa beitt svip­uðum brögðum í próf­kjöri flokks­ins í kjör­dæm­inu árið 2013 þegar Haraldur barð­ist um annað sætið við Eyrúnu Ingi­björgu Sig­þórs­dóttur. Í færslu sinni á Facebook spyr Rósa: „Getur Haraldur Bene­dikts­son ekki keppt við konu án hótana?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár