Gögnum frá opinberum aðilum verði miðlað til einstaklinga með stafrænum hætti

Bréf­póstur verður enn í boði fyrir þá sem það kjósa en að meg­in­reglu verða gögn frá hinu opin­bera send ein­stak­lingum og lög­að­ilum með staf­rænum hætti í kjöl­far nýrra laga. Breyt­ingin er talin spara rík­is­sjóði 300-700 millj­ónir króna á ári.

Fjöldi skjala sem send eru rafrænt hefur vaxiið hratt á nýliðnum árum.
Fjöldi skjala sem send eru raf­rænt hefur vax­iið hratt á nýliðnum árum. Mynd: Pexels

Gert er ráð fyrir að um 12 millj­ónir raf­rænna skjala verði send í gegnum staf­rænt póst­hólf á Ísland.is á árinu en í fyrra voru um 8 milljón skjöl send með þeim hætti. Fjöldinn hefur vaxið hratt á nýliðnum árum, til að mynda voru rétt rúm­lega milljón skjöl send í staf­rænt póst­hólf á Ísland.is árið 2017. Meðal þeirra gagna sem send eru í staf­ræn póst­hólf eru upp­lýs­ingar um fast­eigna­gjöld, launa­seðlar og álagn­ing­ar­seðlar frá stofn­unum og sveit­ar­fé­lögum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt er á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna nýsam­þykktra laga um staf­rænt póst­hólf. Lögin fela í sér að allir með íslenska kenni­tölu fá slíkt póst­hólf sem hið opin­bera nýtir til að koma gögnum til fólks. Með lög­unum verður það að meg­in­reglu að þegar gögnum sé miðlað til ein­stak­linga og lög­að­ila verði það gert með staf­rænum hætti. Áfram verður þó hægt að óska eftir því að fá bréf­póst, kjósi fólk heldur þann send­ing­ar­máta.

Þrátt fyrir að mikil aukn­ing hafi orðið í birt­ingu gagna á Ísland.is er ekki þar með sagt að allt fær­ist af pappír og á netið strax. Lögin tóku gildi um leið og þau voru sam­þykkt en fjár­mála­ráð­herra hefur nú verið falið að gefa út áætlun um star­fræna birt­ingu af hálfu rík­is­að­ila og sveit­ar­fé­laga eigi síðar en fyrir lok árs. Áætlunin skal svo að fullu inn­leidd í síð­asta lagi 1. jan­úar 2025.

Ríkið muni spara 300 til 700 milljónir á ári

Í áður­nefndri til­kynn­ingu segir að nýju lögin hafi í för með sér aukið öryggi gagna og hag­ræði á mörgum sviðum sam­fé­lags­ins, auk þess sem þau styðji við frek­ari fram­þróun á staf­rænni þjón­ustu við almenn­ing og þar með betri opin­berri þjón­ustu og sam­skiptum við hið opin­bera.

Sparn­aður rík­is­sjóðs sem hlýst af því að senda skjöl raf­rænt var tal­inn nema á bil­inu 300 til 700 millj­ónum króna á ári sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins en einnig segir að með breyt­ing­unni felist hag­ræð­ing fyrir sveit­ar­fé­lög. Þar kemur meðal ann­ars fram að póst­burð­ar­gjöld rík­is­ins séu um 439 millj­ónir króna á ári en sparn­að­ur­inn er sagður ná til fleiri atriða en burð­ar­gjalda. „Sparn­aður við póst­send­ingar er aðeins hluti af jákvæðum áhrifum á rík­is­sjóð því auk póst­burð­ar­gjalda verður sparn­aður við umsýslu starfs­manna, prentun og fleira.“

Breyt­ingin er einnig sögð tryggja upp­lýs­inga­gjöf og minnka papp­írs­notkun. „Þá mun frum­varpið jafn­framt hafa jákvæð áhrif á umferð, kolefn­islosun og tíma­notkun almenn­ings. Minni papp­írs­notkun minnkar magn papp­írs í úrgangs­þjón­ustu sem og afleiddan hús­næð­is­kostnað vegna papp­írs­skjala­vist­unar og tryggir einnig betri rekj­an­leika í upp­lýs­inga­gjöf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár