Reyna að þrengja að skattaskjólum en afhjúpa sig í leiðinni

Alþjóð­leg hneykslis bylgja, með Sigmund Davíð í kast­ljósi, fer nú um alla stærstu fjöl­miðla heims­ins. David Cameron hefur nú verið afhjúp­aður en hann átti um tíma í félagi í skatta­skjóli.

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.
David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: Birgir Þór

Allir stærstu fjöl­miðlar Banda­ríkj­anna og Evrópu hafa fjallað um Panama­skjölin og upp­lýs­ingar sem í þeim er að finna um fólk sem geymir pen­inga í félögum á skil­greindum lág­skatta- og skatta­skjólum.

Á meðal svæða sem sér­stak­lega eru skil­greind með þessum hætti eru Bresku jóm­frúa­eyj­arnar, þar sem Tortóla er á meðal. Nú hefur David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, við­ur­kennt að hafa átt hlut í einu slíku félagi, Bla­ir­more Invest­ment Fund, sem faðir hans var skráður fyrir. Hann seldi hlut­inn fyrir 31.500 pund, eða sem jafn­gildir 5,5 millj­ónum króna, fjórum mán­uðum áður en hann varð for­sæt­is­ráð­herra. Augljóst er strax, að málið verður erfitt fyrir hann.

Í morgun var mál Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem nú er nýbú­inn að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra, á for­síðu New York Times, og frá því greint að hann hefði látið undan þrýst­ingi um að segja af sér, eftir að hafa verið afhjúp­aður sem eig­andi Wintris Inc., til árs­loka 2009, en eig­in­kona hans hefur átt síðan í sér­eign. Málið var líka til umfjöll­unar í gær.

Eins og kunn­ugt er, var farið yfir þessi mál í Kast­ljósi í sam­starfi við Reykja­vík Media, síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Lítið hefur verið rætt um það í erlendum fjöl­miðlum að félagið hafi lýst 500 millj­óna króna kröfu í slitabú bank­anna, á meðan stjórn­völd unnu lausn á vand­anum sem þau sköp­uðu fyrir þjóð­ar­búið, í tengslum við áætlun um afnám hafta. Tilvist þess, og að það hafi verið skráð í aflands­fé­lag (offs­hore company) þykir vera frétt­næmt eitt og sér.

Ekki er ólík­legt að fleiri stór­tíð­indi muni ber­ast vegna þess­ara gagna, sem svipta hul­unni af því hvernig auð­ugt fólk og fyr­ir­tæki geymi auð­ævi sín með leynd.

Pólitískt átak á heimsvísu

Sam­hengið sem umfjöll­unin birt­ist í tekur mið af því póli­tíska átaki sem hefur verið í gangi á heims­vísu, meðal ann­ars undir for­ystu rík­is­stjórnar Baracks Obama Band­ríkja­for­seta, um að þrengja að þessum svæðum sér­stak­lega og upp­ræta starf­sem­ina. Á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu 5. apríl síð­ast­lið­inn,sem hann hélt meðal ann­ars til að ræða lek­ann á Panama­skjöl­unum, sagði hann að þegar allt kæmi til alls þá væri það milli­stétt­ar­fólkið sem þyrfti að borga fyrir það, að ríkt fólk og fyr­ir­tæki, nýttu sér skatta­skjól og lág­skatta­svæði. Þau væru að nýta sér glufur (loopholes) í lög­unum og það þyrfti að gera allt sem mögu­legt væri, til að loka á þennan mögu­leika. Allir þyrftu að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins.

Snýst um slæma bankastarfsemi og svik

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Obama gerir skatta­skjól að umstals­efni, því hann hefur opin­ber­lega verið með bar­áttu gegn þeim sem hluta af stefnu rík­is­stjórnar sinnar frá því árið 2010, þegar hann hrinti úr vör átaki til að upp­ræta skatt­svik sem bankar á Wall Street aðstoð­uðu við. Frá þeim tíma hafa margir bankar þurftu að greiða sektir til rík­is­sjóðs Banda­ríkj­anna, þar á meðal margir evr­ópskir bankar. Bank­arnir HSBC og Credit Suisse hafa báðir þurft að greiða sektir í rík­is­sjóð, en HSBC þeim mun meira, og eru öll kurl ekki komin til grafar enn hvað hann varðar. Samtals nema sekir ríf­lega fimm millj­örðum Banda­ríkja­dala, sem sem nemur meira en 600 millj­örðum króna.

Í Panama­skjöl­unum kemur meðal ann­ars fram, að fyrr­ver­andi banka­stjóri HSBC, Michael Geog­hegan, hafi nýtt sér aflands­þjón­ustu, til að vista eignir sínar í Bret­landi, meðal ann­ars átta milljón punda fast­eign í Kens­ington. Talið er að hann hafi kom­ist hjá skatt­greiðslum með þessum hætti. Málið er áfall fyrir þá sem berj­ast nú fyrir því að Bretland fari úr Evr­ópu­sam­band­inu, en Geog­hegan hefur verið áber­andi í hópi þeirra.

Girða fyrir möguleikann.

Meg­in­sjón­ar­miðin sem stjórn­völd í Banda­ríkj­unum, og víða um heim, horfa til í rann­sóknum sínum á starf­semi sem þess­ari, er að afla upp­lýs­inga um hvernig staðið er að málum, svo það sé hægt að girða fyrir það í lögum að skattaund­anskotin end­ur­taki sig. Áhersl­urnar eru á að breyta kerf­inu, og reyna að end­ur­heimta pen­inga sem rík­is­sjóður ann­ars ætti rétt á.

En eins og með margt sem snýr að lögum um skatta­mál, þá eru þetta ekki ein­föld mál. Þannig eru mörg skatta­skjól í Banda­ríkj­unum sjálfum, svo sem í Nevada og Delaware, þar sem fjöl­mörg skúffu­fyr­ir­tæki eru skráð til að lág­marka umsýslu­kostnað og skatta. Umræða um þetta hefur verið lif­andi í Banda­ríkj­unum, en þar er mikil hefð fyrir inn­byrð­is­sam­keppni ríkja um reglu­verk fyrir fyr­ir­æki.

Það sem Banda­ríkin, og önnur ríki heims­ins sem styðja sam­starf um að girða fyrir skatta­skjól, þar á meðal Íslands, vilja helst taka á eru aflands­fé­laga­starf­semi hjá ýmsum sér­fræð­ingum þar sem eigna­fólk og fyr­ir­tæki nýta sér ríka leynd til að gefa eignir ekki upp til skatts af fullu.

Líklegt er að þetta muni taka tölu­verðan tíma, enda er leyndin óvinur númer eitt í þessu. Rann­sókn­ar­blaða­mennskan virð­ist hafa opnað á mikið magn gagna um leyni­lega starf­semi, og má telja lík­legt að mik­ils titr­ings muni gæta vegna þeirra næstu vikur og mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár