Færri vilja fjölga innflytjendum nú en áður

Tæplega þriðj­ungur lands­manna vill fjölga komum inn­flytj­enda til lands­ins en nán­ast sama hlut­fall vilja draga úr fjöld­anum. Meiri­hluti lands­manna telur þó að inn­flytj­endur hafi góð áhrif á efna­hag lands­ins og auðgi menn­ingu.

Lands­menn eru almennt frekar jákvæðir í garð inn­flytj­enda og fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lags­ins, sam­kvæmt könn­unum Félags­vís­inda­stofn­unar Íslands. Tölu­verður munur er þó í við­horfum gagn­vart inn­flytj­endum eftir bak­grunni og stjórn­mála­skoð­unum lands­manna.

Þá vilja færri lands­menn fjölga komum inn­flytj­enda til lands­ins nú en árið 2017 og fleiri vilja halda fjöld­anum óbreyttum. Meiri­hluti lands­manna telur þó að inn­flytj­endur hafi góð áhrif á efna­hag lands­ins og auðgi menn­ingu Íslands.

Nærri 50 þúsund erlendir ríkisborgarar

[links]Komum inn­flytj­endum til Íslands hefur fjölgað mjög hratt á síð­ustu árum og á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­­fjölgun erlendra rík­­is­­borg­­ara. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­­sent.

Þessa miklu fjölgun má rekja til þess að á Íslandi var mik­ill efna­hags­­upp­­­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­­­gangi, sér­­stak­­lega í þjón­ust­u­­störfum tengdum ferða­­þjón­­ustu og í bygg­inga­iðn­­aði.

Alls eru nú 49.344 erlendir rík­is­borg­arar hér á landi, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Þjóð­skrár, og hefur þeim fjölgað um 11,7 pró­sent á einu ári.[adspot]

Félags­vís­inda­stofnun Íslands fram­kvæmdi könnun á við­horfum almenn­ings til inn­flytj­enda og fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lags­ins síð­asta haust en sam­bæri­leg könnun var fram­kvæmd árið 2017. Könnunin var gerð að beiðni félags­mála­ráðu­neyt­is­ins en hún er liður í mæl­ingum á við­horfum sam­fé­lags­ins til inn­flytj­enda á gild­is­tíma fram­kvæmda­á­ætl­unar í mál­efnum inn­flytj­enda fyrir árin 2016 til 2019.

Fleiri vilja halda fjöldanum óbreyttum

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins um könn­un­ina segir að lands­menn séu og hafi verið almennt frekar jákvæðir gagn­vart inn­flytj­endum á þessu tíma­bili og að lítil breyt­ing orðið á við­horfum lands­manna.

Við­horfið gagn­vart fjölda inn­flytj­enda sem koma til lands­ins breytt­ist þó tölu­vert á milli áranna 2017 og 2019. Samkvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar frá því í haust vilja nú færri fjölga komum inn­flytj­enda til lands­ins en í sömu könnun fyrir tveimur árum.

Alls vilja 31 pró­sent svar­enda auka fjöld­ann nokkuð eða mikið sam­an­borið við 36 pró­sent árið 2017. Þá vilja um 37 pró­sent svar­enda halda fjöld­anum óbreyttum sam­an­borið við 30 pró­sent tveimur árum áður.

Þá er lítil munur á milli ára á hlut­falli þeirra sem vilja draga nokkuð eða mikið úr fjölda inn­flytj­enda sem koma til lands­ins en alls sögð­ust 32 pró­sent svar­enda vilja draga úr fjöld­anum í fyrra en 34 pró­sent árið 2017.

Tekjulægsti hópurinn vill fleiri innflytjendur

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar í fyrra má sjá mun í við­horfi eftir kyni, búsetu aldri og menntun þegar kemur að komum inn­flytj­enda til lands­ins. Konur vilja frekar fjölga komum inn­flytj­enda til lands­ins en karlar. Þeir sem yngri eru vilja jafn­framt frekar fjölga inn­flytj­endum heldur en þeir sem eldri eru.

Þá vilja þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur frek­ari fjölgun en þeir sem búa á lands­byggð­inni. Jafn­framt eru þeir sem eru með háskóla­menntun fremur fylgj­andi fjölgun inn­flytj­enda en þeir sem eru með minni menntun.

Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að þeir sem eru með lægstu heim­il­is­tekj­urnar vilja frekar fjölga komum inn­flytj­enda til lands­ins en þeir sem eru með hærri tekjur. Alls vilja 42 pró­sent þeirra sem eru sem eru með 400 þús­und krónur eða lægri í heim­il­is­tekjur auka fjölda þeirra inn­flytj­enda sem koma til lands­ins.

Stuðningsmenn Miðflokksins vilja draga úr komum innflytjenda

Ef litið er til afstöðu til fjölda inn­flytj­enda eftir stjórn­mála­flokkum má sjá að stuðn­ings­menn Mið­flokks­ins vilja mun frekar draga úr fjölda inn­flytj­enda en að fjölga þeim.

Alls vilja 72,5 pró­sent stuðn­ings­manna flokks­ins draga nokkuð eða mikið úr fjölda þeirra inn­flytj­enda sem koma til lands­ins. Einungis 5 pró­sent þeirra vilja fjölga komum.

Þá er meiri­hluti stuðn­ings­manna Vinstri grænna, Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar fylgj­andi því að fjölga komum inn­flytj­enda til lands­ins.

Meirihluti landsmanna sammála um að innflytjendur séu góðir fyrir efnahaginn

Í könn­un­inni var jafn­framt spurt um hvort að inn­flytj­endur hafi almennt góð eða slæm áhrif á íslenskan efna­hag. Um 64 pró­sent svar­enda töldu inn­flytj­endur hafa góð áhrif á efna­hag­inn árið 2019 í sam­an­burði við tæp 60 pró­sent árið 2017.

Þá telur meiri­hluti lands­manna jafn­framt að inn­flytj­endur auðgi menn­ingu á Íslandi eða alls 64 pró­sent svar­enda.

Jafn­framt var spurt um hversu mik­il­vægt svar­endum þótti að fólk sem kemur frá löndum utan evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins fái dal­val­ar­leyfi væri kristin. Færri töldu það mik­il­vægt árið 2019 en tveimur árum áður eða alls 19 pró­sent svar­enda sam­an­borið við 25 pró­sent svar­enda tveimur árum áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár