Hvernig ógna loftslagsbreytingar friði og öryggi í heiminum?

Halda má fram að lofts­lags­breyt­ingar ógni friði og öryggi í heim­inum. Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefur sagt að ógnir vegna lofts­lags­breyt­inga séu að minnsta kosti jafn­miklar og ógnir vegna stríðs­á­taka. Þarna er vit­an­lega sam­hengi á milli eins og hér verður fjallað um. Breyt­ingar á veð­ur­fari og vist­kerfi með hækk­andi hita­stigi og yfir­borði sjávar, munu leiða af sér ógn af völdum fólks­flótta og átaka vegna auð­linda, sem rekja má til lofts­lags­breyt­inga.

Ætla mætti að þessar ógnir sem steðja að jarð­ar­búum þjöpp­uðu fólki saman en það er samt ekki svo ein­falt. Skipta má umræð­unni í tvennt. Annars vegar kalli lofts­lags­breyt­ingar á aukið sam­starf ríkja og auki þannig sam­vinnu og gagn­kvæman skiln­ing, hins vegar geti þær haft „geópóli­tísk“ áhrif þegar tek­ist er á um hags­muni sem kunna að raskast í kjöl­farið.

Bráðnun íss á norð­ur­skaut­inu hefur verið nefnt sem dæmi um slíkt. Á norð­ur­skaut­inu, þar sem áður var ísbreiða og lítið til að takast á um, er nú útlit fyrir að breyt­ingar verði á með hugs­an­legri opnun sigl­inga­leiða og mögu­leikum á jarð­efna­vinnslu á hafs­botni.

Einnig hefur verið bent á þá ógn við öryggi sem hlýst af ófyr­ir­séðum afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga, svo sem ef fjöldi fólks þarf að flytj­ast búferlum vegna nátt­úru­ham­fara, vegna auk­innar sam­keppni um auð­lindir sem spill­ast eða verða óað­gengi­legar með yfir­vof­andi skorti. Slík sam­keppni kann að kalla á átök milli fólks og hern­að­ar­um­svif til að verja þessa hags­muni - sem aftur eykur hættu á stríðs­á­tökum sem sann­ar­lega ógnar öryggi fólks.

Þau svæði sem helst munu verða fyrir barð­inu á þess­ari þróun eru Afríka og Mið-Aust­ur­lönd. Þó er vara­samst að líta á vanda­málið stað­bundið því flótta­fólk vill kom­ast þangað sem vænta má betra lífs og þá eru mörk á milli heims­álfa engin fyr­ir­staða.

[caption id="attachment_38406" align="alignnone" width="1024"] Þurr árfar­vegur í Kenya.[/caption]

Nærtækt er að nefna hörm­ung­arnar í Sýrlandi og flótta­manna­straum­inn þaðan, en rekja má hann að hluta til verstu þurrka í manna minnum á árunum 2007–2010. Þá leiddi vatns­skortur til upp­skeru­brests og þess að búpen­ingur féll. Ein og hálf milljón manna flosn­aði upp af jörðum sínum, flykkt­ist til borg­anna og bætt­ist við þann flótta­manna­vanda sem Íraks­stríðið hafði þegar skapað.

Við sjáum einnig afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga í Banda­ríkj­unum þar sem gríð­ar­legir þurrkar ógna vatns­bú­skap Kali­forn­íu­ríkis. Þarna skiptir meg­in­máli hvort um þróað sam­fé­lag sem hefur burði til að takast á við hætt­una sé að ræða. Innviðir séu traustir og ein­stak­lingar hafi mögu­leika á úrræðum til bóta, geti fluttst búferlum, séu tryggðir og svo fram­vegis. Sé hins vegar um að ræða van­þróað sam­fé­lag, sem ekki hefur nein úrræði gagn­vart slíkum áföllum og íbú­arnir fátækir, er mikil hætta á áhrifin stig­magn­ist yfir í stór­felldan fólks­flótta, átök og jafn­vel stríð.

Hinn óþægilegi sannleikur - er hægt að snúa við blaðinu?


Segja má að við stöndum frammi fyrir þeirri þver­sögn að um leið og hættan er yfir­vof­andi og ógnar allri til­vist jarð­ar­búa, virð­ist fólk ekki vera til­búið að bregð­ast við henni - fyrr en það finnur afleið­ing­arnar á eigin skinni.

Til eru þeir sem halda því fram að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu upp­spuni, í besta falli stór­lega ýktar. Þarna er þó mik­il­vægt að hafa í huga að þrátt fyrir að vís­inda­menn séu ekki sam­mála í einu og öllu þá telur yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu stað­reynd.

Ástæða þess hversu lífseig skoðun margra efa­semda­manna er gæti verið hversu mikið pláss raddir þeirra hafa fengið í fjöl­miðlum, t.d. í Banda­ríkj­unum. Vís­inda­leg rann­sókn sem gerð var árið 2004 leiddi í ljós að af 934 rit­rýndum greinum um lofts­lags­breyt­ingar studdu 75 pró­sent þeirra þær skoð­anir að þær væru af manna völdum en engin hið gagn­stæða. Á sama tíma fá bæði sjón­ar­mið álíka mikla umfjöllun í fjöl­miðlum sem hlýtur að gefa tals­vert skakka mynd af ástand­inu.

Af þessum sökum er gjarnan gripið til rót­tækra aðgerða þar sem reynt er að höfða til til­finn­inga fólks og birtar ógn­væn­legar myndir af bráðn­andi jöklum og umflotnu fólki í neyð. Það getur hins vegar verið tví­eggja sverð því hugs­an­legt er að of mikil til­finn­inga­semi kalli á þver­öfug við­brögð við það sem til var ætl­ast.

Þannig er að þegar tekst að sýna fram á hversu alvar­legt ástandið er þá er vit­neskjan um það svo óþægi­leg að hugs­an­lega er auð­veld­ara fyrir fólk að vísa henni á bug og grípa á lofti mál­flutn­ing þeirra sem hafna þessum hug­myndum.

[caption id="attachment_38405" align="alignnone" width="800"] Lækkandi vatns­borð í uppi­stöðu­lóni í Kali­forníu.[/caption]

Úrslitastundin framundan


Nú stendur fyrir dyrum lofts­lags­ráð­stefna í París sem af mörgum er talin mjög mik­il­væg - þar geti ráð­ist hvort mann­kyni tak­ist að sam­ein­ast um aðgerðir til að bregð­ast við lofts­lags­breyt­ing­unum sem ógna vist­kerfi jarðar og afleið­ingum þeirra, sem þegar eru byrj­aðar að koma í ljós.

Til að ein­falda málið má segja að við færumst sífellt nær þeim mörkum að of seint verði að snúa þró­un­inni við og jafn­vel að lofts­lags­breyt­ing­arnar kom­ist á það stig að keðju­verkun fari í gang sem stig­magni þró­un­ina.

Þeir sem vara við umræddri hættu hafa stundum verið gagn­rýndir fyrir of mikla örygg­i­s­væð­ingu, en með örygg­i­s­væð­ingu er átt við að þær hug­myndir um ógn sem verið er að kynna séu teknar á dag­skrá og nái fót­festu - að hug­takið öryggi verði þar með þynnt út og missi jafn­vel marks fyrir vikið.

Þó er ákveðin örygg­i­s­væð­ing hugs­an­lega nauð­syn­leg til að skapa nægan slag­þunga í aðgerðum gagn­vart lofts­lags­breyt­ingum. Til dæmis er hægt full­yrða að eftir að Al Gore fékk Nóbels­verð­launin fyrir starf sitt í þágu mál­efn­is­ins hafi orðið ákveð­inn við­snún­ingur og lofts­lags­breyt­ingar öðl­ast ákveðna „lög­gild­ingu“ - hafi hætt að vera eitt­hvert bar­áttu­mál sér­vit­urra hippa heldur orðið alvöru­mál sem vert sé að gefa gaum.

[caption id="attachment_38404" align="alignnone" width="1024"] Umflotin stræti eftir felli­byl­inn Sandy árið 2012.[/caption]

Hafa margir sér­fræð­ingar og stjórn­mála­menn bent á að nú sé komið að skulda­dögum og síð­ustu for­vöð fyrir mann­kynið að bregð­ast við. Þó gagn­rýna megi Banda­ríkin fyrir seina­gang í lofts­lags­málum má samt segja að tals­verð hreyf­ing hafi kom­ast á málin þar að und­an­förnu. M.a. hefur Barack Obama Banda­ríkja­for­seti lagt áherslu á að nú verði þjóðir heims að taka höndum saman og að Par­ís­ar­fund­ur­inn ætti að marka þessi þátta­skil.

Það má lengi deila um hver sé söku­dólg­ur­inn en þó ætti öllum að vera ljóst að lofts­lags­breyt­ingar eru stað­reynd sem bregð­ast verður við. Næðu verstu afleið­ingar þeirra fram að ganga er á end­anum öllum íbúum jarðar ógnað.

Mik­il­vægt er í því sam­hengi að áhrifin eru ekki ein­ungis bundin við veð­ur­far og líf­ríki, heldur geta þau á auga­bragði snúið við þeirri þróun í heim­inum sem verið hefur í átt til friðar og stöð­ug­leika á und­an­förnum ára­tugum. Þá kann ástandið að verða svo slæmt að sterkir inn­viðir þró­aðra lýð­ræð­is­sam­fé­laga dugi ekki til að bregð­ast við og hver verði sjálfum sér næstur í bar­átt­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár