Sprengjur lýstu upp morgunhimininn í Kænugarði

Forseti Úkraínu seg­ist vera helsta skot­mark Rússa sem sækja nú að höf­uð­borg­inni Kænu­garði. „Við stöndum ein í því að verja land okkar. Hver mun berj­ast við hlið okkar? Ég verð að vera hrein­skil­inn, ég sé engan gera það.“

Sprengjuregn yfir úthverfi Kænugarðs.
Sprengjuregn yfir úthverfi Kænu­garðs. Mynd: Skjáskot/Twitter

Miklar sprengjur mátti sjá springa í útjaðri Kænu­garðs, höfð­uð­borgar Úkraínu í morgun. Brak, glæður og ryk féllu til jarðar í nágrenn­inu. Annað myndefni, sem m.a. New York Times hefur birt, virð­ist sýna tveimur loft­skeytum skotið á loft rétt utan við höf­uð­borg­ina. Sprengju­brot hæfði bygg­ingu almennra borg­ara. Borg­ar­stjór­inn skrif­aði á Twitter að þrír hefðu særst þar af einn lífs­hættu­lega. Húsið stendur í björtu báli og hætta er á að það hrynji.

[links]„Hræðileg eld­flauga­árás Rússa á Kænugarð,“ skrif­aði úkra­ínski utan­rík­is­ráð­herr­ann, Dmytro Kuleba, á Twitter í morgun. Borg­ar­búar hefðu ekki upp­lifað neitt sam­bæri­legt síðan í seinna stríði árið 1941 er nas­istar Þýska­lands gerðu árás. „Úkraína sigr­aði þá hið illa og mun gera slíkt hið sama núna. Stöðvum Pútín.“

Forseti Úkraínu, Volody­myr Zelensky, tal­aði hins vegar um að „hermd­ar­verka­hópar“ væru komnir inn í Kænugarð í ávarpi snemma í morgun sem bendir til að háska­leg staða hafi þegar skap­ast. Herir Rússa eru hins vegar sagðir nálg­ast borg­ina.

[adspot]

Zelensky segir að 130 Úkra­ínu­menn hefðu fallið í gær, á fyrsta degi inn­rás­ar­innar. Einnig hefur nú komið fram að Rússar hafi her­tekið hið yfir­gefna kjarn­orku­ver í Chernobyl og eyju í Svarta­hafi. Full­orðnir karl­menn hafa undir her­lögum í Úkraínu verið kvaddir til þjón­ustu við her­inn og hefur að því er fram kemur í Washington Post verið bannað að yfir­gefa landið.

Árás Rússa hefur nú staðið í sól­ar­hring. Sótt var að Úkraínu úr þremur áttum, m.a. yfir landa­mæri Hvíta-Rúss­lands og frá Krím­skaga.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti segir árás­ina við­bragð við hjálp­ar­beiðni frá hópum aðskiln­að­ar­sinna í aust­ur­hér­uðum Úkraínu. Rússar hafa stutt hópana með ráðum og dáð und­an­farin ár og segir Pútín stjórn­völd í Úkraínu hafa farið fram með offorsi og þjóð­ern­is­hreins­unum gegn íbúum hér­að­anna. Í frétt New York Times kemur fram að ekk­ert bendi til þess að þessar alvar­legu ásak­anir Pútíns eigi við rök að styðj­ast. Í ávarpi í gær, um það leyti sem árás­irnar hófust, tal­aði hann um „afnas­ista­væð­ingu“. Hann hefur líka sagt að hug­myndin um ríkið Úkraínu sé skáld­skapur.

Úkraína er hvorki í Evr­ópu­sam­band­inu né NATO en hefur sóst eftir því og hefur notið stuðn­ings vest­ur­veld­anna, bæði fjár­hags­legs og hern­að­ar­legs, í deilum við rúss­nesk stjórn­völd und­an­farin ár. Pútín lítur á þessa þróun hins póli­tíska lands­lags í næsta nágrenni Rúss­lands sem ógn.

Fjand­skapur milli stjórn­valda í ríkj­unum tveimur hefur farið vax­andi frá árinu 2014 er rúss­neskir her­menn fóru yfir landa­mæri Úkraínu. Þá hafði upp­reisn átt sér stað í Úkraínu og for­seti vin­veittur Rússum var far­inn frá völdum og í stað hans kom­inn for­seti sem hall­aði sér til vest­ur­veld­anna. Krím­skagi, sem til­heyrt hafði Úkraínu, var inn­limaður í sam­bands­ríkið Rússland, og hreyf­ing aðskiln­að­ar­sinna í aust­ur­hluta Úkraínu tví­efldist með stuðn­ingi Rússa.

Samið var um vopna­hlé árið 2015 en ólga hefur allan tím­ann verið til staðar. Síðustu mán­uði hefur hún stig­magn­ast og miklir her­flutn­ingar átt sér stað að landa­mær­unum. Er Pútín við­ur­kenndi sjálf­stæði tveggja aust­ur­hér­aða Úkraínu sem sjálf­stæð alþýðu­lýð­veldi 21. febr­úar, var flestum farið að verða ljóst í hvað stefndi. „Sérstök hern­að­ar­að­gerð“, líkt og Pútín kallar inn­rás­ina, hófst í gær­morgun með árás á mörg svæði í Úkraínu. „Alls­herj­ar­inn­rás“ sagði utan­rík­is­ráð­herra lands­ins.

[adspot]

Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin og miklu fleiri hafa for­dæmt árás­irnar og hafa hert við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum, m.a. á banka- og olíu­geir­ann. Kínversk stjórn­völd hafa hins vegar neitað að kalla það sem á gengur „inn­rás“.

Forseti Úkraínu sagði í ávarpi í morgun að landið væri eitt á báti í orr­ust­unum við Rússa. „Við stöndum ein í því að verja land okkar. Hver mun berj­ast við hlið okkar? Ég verð að vera hrein­skil­inn, ég sé engan gera það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár