Málefni VG nú hluti af „meginstraumi stjórnmálanna“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna ávarp­aði flokks­ráðs­fund flokks­ins í dag, í til­efni af 20 ára afmæli flokks­ins.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, segir mál­efni sem Vinstri græn kom með að borði íslenskra stjórn­mála, þegar flokk­ur­inn var stofn­aður fyrir 20 árum, nú vera hluti af meg­in­straumi stjórn­mál­anna.

Þetta kom fram í ræðu sem hún hélt á flokks­ráðs­fundi flokks­ins í dag, í til­efni af 20 ára afmæli flokks­ins.

„Og það sem við höfum séð á þessum tíma er ger­breyt­ing á okkar mál­efna­legu stöðu. Þegar við Vinstri-græn töl­uðum um nýsköpun og að hverfa frá stór­iðju­stefn­unni, eitt­hvað annað, þóttum við hlægi­leg og eitt­hvað annað var skil­greint sem fjalla­grös og sauð­skinns­skór. Þegar Vinstri-græn vildu gera kaup á vændi refsi­verð vorum við púrit­anar sem höt­uðu karl­menn og voru á móti kyn­lífi. Þegar við vildum fella niður leik­skóla­gjöld vorum við óraun­sætt draum­óra­fólk. Og þegar við sögðum að kannski væru bank­arnir of aðsóps­miklir vorum við sögð standa gegn fram­förum og jafn­vel sjálfum nútím­anum. En sagan sýnir að öll þessi mál eru nú hluti af meg­in­straumi stjórn­mál­anna,“ sagði Katrín.

Hún minnt­ist tím­ans þegar Vinstri græn fengu góða kosn­ingu árið 2009, og hvernig það hefði gengið að takast á við erf­iðar aðstæður sem blöstu við eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins.

„Fyrstu tíu ár VG stóðum við utan rík­is­stjórnar. Eftir góða kosn­ingu árið 2009 blasti hins vegar beint við að halda áfram stjórn­ar­sam­starfi við Sam­fylk­ingu en eins og við munum mynd­uðum við minni­hluta­stjórn með henni þann 1. febr­úar 2009. Sú rík­is­stjórn vann ótrú­legt starf á tímum sem lík­lega voru mestu umbrota­tímar í íslensku sam­fé­lagi frá lýð­veld­is­stofnun. Það tókst að ná ótrú­legum árangri við að rétta af stöðu rík­is­sjóðs með bland­aðri leið skatta­hækk­ana og nið­ur­skurðar sem var í and­stöðu við meg­in­straum hag­fræði­kenn­inga þess tíma.

Mörg lönd fóru þá leið að bregð­ast ein­göngu við alþjóð­legu fjár­málakrepp­unni með nið­ur­skurði, sem hefur haft alvar­legar afleið­ingar fyrir almenn­ing. Nýlega fór sér­stakur erind­reki Sam­ein­uðu þjóð­anna gegn fátækt í heim­sókn til Bret­lands og sagði í skýrslu sinni að lok­inni ferð að nið­ur­skurð­ar­stefna breskra stjórn­valda hefði skilið borg­ara lands­ins eftir í eymd og vesæld. Hann tók harðar til orða en við eigum að venj­ast um nágranna­lönd okkar, sagði fimmta hvern lands­mann búa við fátækt. Hann dró fram hversu kynjuð nið­ur­skurð­ar­stefnan er þegar hann sagði að þótt hópur af karl­rembum hefði verið kall­aður saman til að hanna kerfi sem íviln­aði körlum á kostnað kvenna, þá hefði sá hópur ekki getað lagt til margt sem var ekki þegar í fram­kvæmd,“ sagði Katrín.

Hún sagði sögu flokks­ins sína, að hann hefði haft mikil og jákvæð áhrif á stjórn­málin. „Ég lít á það sem for­rétt­indi að fá að starfa með ykkur og trúi því að nú sem áður gerum við gagn í því verk­efni að gera sam­fé­lagið betra og rétt­lát­ara fyrir okkur öll,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár