Katrín Jakobsdóttir segir ummæli Trump dæma sig sjálf

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir ummæli Donalds Trump, Banda­ríkja­for­seta, um þing­konur Demókra­ta­flokks­ins óboð­leg og segir ummælin dæma sig sjálf.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir ummæli Donalds Trump, Banda­ríkja­for­seta, um þing­konur Demókra­ta­flokks­ins óboð­leg og ummæli for­set­ans dæma sig sjálf, í sam­tali við frétta­stofu RÚV. Katrín bæt­ist þar með í hóp þjóð­ar­leið­toga sem gagn­rýnt hafa fram­göngu Trumps, þar á meðal Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Justin Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada.

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti að fordæma ummælin

Í Twitter-færslu sagði Donald Trump að fjórar þing­konur Demókra­ta­flok­ins ættu að fara aftur til „heima­landa“ sinna, sem hann sagði vera „alger­lega nið­ur­brotna og glæpa­lagða staði.“ Ljóst þykir að hann hafi átt við þing­kon­urnar Alex­andriu Ocasio-Cortez, Rashidu Tlaib, Ilhan Omar og Ayönnu Pressley. Þær eru allar fæddar í Banda­ríkj­unum fyrir utan Ihan Omar, sem fædd­ist í Sómalíu en flutti til Banda­ríkj­anna sem barn. [adspot]

Ummælin hafa vakið hörð við­brögð og full­trúa­deild Banda­ríkja­þings for­dæmdi færsl­una í nótt. Þings­á­lykt­unin var sam­þykkt með 240 atkvæðum gegn 187 en í álykt­un­inni segir að ummælin séu rasísk og hafi rétt­lætt ótta og hatur gegn aðfluttum Banda­ríkja­mönnum og lit­uðu fólki.

Katrín Jak­obs­dóttir segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV í dag að hún taki undir álit full­trúa­deild­ar­innar. Hún segir jafn­framt að ummæli for­set­ans séu óboð­leg og dæmi sig sjálf.

Fleiri þjóð­ar­leið­togar hafa gagn­rýnt ummælin en þar á meðal er Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, en hún sagði að ummæli Trumps væru „alger­lega óásætt­an­leg“. Þá hafa Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands, Justin Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada og Nicola Sturgeon, odd­viti skosku heima­stjórn­ar­innar einnig for­dæmt ummælin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár