Brynjari snýst hugur – og býður fram krafta sína fyrir næstu kosningar

„Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kóf­sveittur og illa lykt­andi hef ég ákveðið að þiggja sæti á list­anum, ef það stendur þá enn til boða,“ segir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur tekið þá ákvörðun að þiggja sæti á lista flokks­ins en hann hafði áður gefið það út að hann væri hættur. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í dag.

Lenti hann í fimmta sæti í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík 5. júní síð­ast­lið­inn en stefndi á annað sætið.

„Eftir próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík taldi ég rétt að kveðja stjórn­málin. Nið­ur­staðan var von­brigði fyrir mig enda tals­vert frá mark­miðum mínum. Þessi ákvörðun féll í grýttan jarð­veg hjá mörgum flokks­mönnum og var lagt nokkuð hart að mér að end­ur­skoða þessa ákvörðun. Ég féllst á að íhuga það,“ skrifar hann á Facebook.

„Þurfum kjark og þor í stað þess að berast með straumnum“

„Mér var bent á af sér­fræð­ingum í eðli próf­kjara og Kreml­ar­lógíu flokks­ins að nið­ur­staða próf­kjörs­ins hafi verið í raun verið góð fyrir mig. Að lokum náð­ist að sann­færa mig um að ég hafi verið sig­ur­veg­ari próf­kjörs­ins, eig­in­lega stór­sigur

Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kóf­sveittur og illa lykt­andi hef ég ákveðið að þiggja sæti á list­anum, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sann­færður um að stefna flokks­ins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í kom­andi kosn­inga­bar­áttu og er sann­færður um að sterkur og breiður Sjálf­stæð­is­flokkur er mik­il­vægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.

Í Sjálf­stæð­is­flokknum eru margar vist­ar­verur og við erum ólík. En við eigum sam­eig­in­legar hug­sjónir sem birt­ast í grunn­stefnu flokks­ins. Við þurfum hins vegar að berj­ast fyrir stefn­unni og hug­sjón­unum. Þurfum kjark og þor í stað þess að ber­ast með straumnum, sem á það til að fara í mis­góðan far­veg, öllum til tjóns,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár