„Á meðan helvítis eftirspurnin er þá er framboð“

Vændi venst ekki og verður bara verra með tím­anum, segir við­mæl­andi í nýrri bók þar sem rætt er við sex venju­legar konur sem hafa verið í vændi. Þær lýsa m.a. ástæðum þess af hverju þær fóru út í vændi og þeim skelfi­legu afleið­ingum sem það hafði á þær.

„Ég dæmi ekki konur sem selja sig en ég dæmi karl­ana sem kaupa kon­urnar; á meðan hel­vítis eft­ir­spurnin er þá er fram­boð. Mér finnst að það þurfi að fræða karl­menn um vændi, hvað það er og hvaða áhrif það hefur.“

Þetta segir ein konan sem deilir reynslu sinni af því að hafa verið í vændi í nýrri bók Bryn­hildar Björns­dóttur Venju­legar konur – Vændi á Íslandi sem kom út í dag.

Í bók­inni ræðir Bryn­hildur við sex íslenskar konur sem hafa verið í vændi, venju­legar konur sem bera reynslu sína ekki utan á sér en lýsa hræði­lega erf­iðum aðstæðum í vænd­inu. Jafn­framt fjallar höf­undur um fyr­ir­bærið vændi í sögu og menn­ingu, lítur yfir íslenska fjöl­miðlaum­fjöllun um vændi og lýsir hug­mynda­fræði­legum átökum í tengslum við laga­setn­ingu.

Venjulegar konur sem eiga skilið að njóta virðingar

Þá ræðir Bryn­hildur við fag­fólk sem vinnur með þolendum vændis – full­trúa Stíga­móta og Bjark­ar­hlíðar, auk lög­regl­unnar, og birtir ný talna­gögn um afleið­ingar vændis. Loks er kast­ljós­inu varpað á kaup­endur og ræðir hún við einn slíkan. Bókin er rituð að frum­kvæði og í sam­vinnu við Evu Dís Þórð­ar­dóttur, brota­þola vændis og bar­áttu­konu.

Í bók­inni kemur fram að engin þess­ara kvenna beri for­tíð sína utan á sér. „Þetta eru allt venju­legar konur sem falla inn í fjöld­ann. Sumar hafa náð að byggja upp líf eftir vændið, sem þær eru sáttar við, aðrar eru enn í því ferli.“ Höfundur bendir á að konur sem verða fyrir vændi séu ekki frá­brugðnar öðrum konum hvað varðar þrá, drauma, vonir og lang­anir. „Þetta eru venju­legar konur sem eiga skilið að njóta jafn mik­illar virð­ingar og við­ur­kenn­ingar á mennsku sinni hjá sam­ferða­fólki sínu og allar aðrar konur.“

„Ógeðslega erfitt ferli“ að vinna úr svona reynslu

Ein konan segir að oft reyni á mörkin í þessum aðstæðum. „Ég er mjög með­virk og rosa­lega léleg í að standa með sjálfri mér, sér­stak­lega þegar ég er augliti til auglitis við ein­hvern, ég á auð­veld­ara með það gegnum tölvu eða síma.“ Seinna í frá­sögn­inni greinir hún frá því að hennar lang­anir og vilji hafi ekki verið til umræðu við vændis­kaupin, hún hafi verið ein­hverra þús­und­kalla virði og það „var allt og sumt“.

[links]Önnur segir að svona sam­skipti snú­ist ekki um kyn­líf. „Þau snú­ast um stjórn. Þetta líður kannski út eins og kyn­líf og virkar eins og kyn­líf en er svo langt frá því að vera það. Kynlíf er í grunn­inn nánd og traust og ánægja, en vændi er ekk­ert af þessu, alla­vega ekki frá mínum sjón­ar­hóli.“ Þetta snú­ist um stjórn og við­skipti sem báðir tapa á.

Hún seg­ist jafn­framt ekki eiga nógu mörg orð yfir hvað það „er ógeðs­lega erfitt ferli að vinna úr svona reynslu“.

„Ég hélt að í vænd­inu væri ég í mik­illi sjálfs­styrk­ingu en í stað­inn fór ég í þver­öf­uga átt, yfir í mis­notkun og valda­leysi. Ég barð­ist mjög lengi við þetta, þessa ógeðis­til­finn­ingu á sjálfri mér, sem ég veit núna að á engan rétt á sér. Ég hataði þennan hluta af lífi mínu en ég hata ekki sjálfa mig.“

Alveg á hreinu hver ræður – Hvenær sem var gat „eitthvað hræðilegt“ komið fyrir

Margar kon­urnar tala um hug­takið „stjórn“. Ein segir að alveg sama hvernig hún ætl­aði að telja sér trú um að hún gæti bara valið sér kúnna og þá væri allt æðis­legt þá hafi það þó aldrei verið raun­veru­leik­inn. „Svo var það líka þannig að um leið og ég hitti menn­ina var ég búin að missa stjórn­ina. Þarna var ég búin að semja við ein­hverja mann­eskju um að sofa hjá fyrir pen­ing og mér fannst ég aldrei geta hætt við. Ég veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði ein­hvern tíma sagt að ég treysti mér bara ekki í þetta, ég þorði aldrei að láta á það reyna.“

Hún segir enn fremur að eng­inn stundi vændi af áhuga á kyn­lífi. Með því að taka pen­ing­ana „ertu búin að sam­þykkja ein­hvers konar sam­skipti sem eiga ekk­ert skylt við kyn­líf“.

Hún segir að menn­irnir hafi ekki verið ógn­andi en þó hafi ekk­ert farið milli mála hver réði. „Þeir voru ekki endi­lega eitt­hvað með kass­ann frammi, þessir menn, eða að sýna ein­hverja valda­til­burði. En það var alveg á hreinu hver réði. Þeir borg­uðu mér og þar af leið­andi stjórn­uðu þeir ferl­inu, og hvenær sem var gat eitt­hvað hræði­legt komið fyrir og ég hafði enga stjórn á því.“

Aðeins síðar í frá­sögn­inni segir hún að henni hafi liðið svo illa á þessu tíma­bili að hún sá sér ekki fært að halda áfram að lifa, „það var bara spurn­ing um hvenær ég ætl­aði að drepa mig“.

Hún segir að ekki sé hægt að afmá fót­spor vænd­is­ins og að það geti haft gríð­ar­legar afleið­ingar á lífið seinna meir. „Þegar ég byrj­aði í vænd­inu sá ég ekki fyrir mér að það hefði afleið­ingar á líf mitt fimmtán árum seinna.“

Hrædd við karlmenn eftir alla þessa reynslu

Önnur kona lýsir einnig þessum afleið­ingum. Hún segir að vændið venj­ist ekki og verði bara verra með tím­anum. „Ég man ekki eftir fyrsta skipt­inu, og þetta urðu að lokum svo ógeðs­lega margir karl­menn að þetta rennur allt saman í eitt.“

Hún seg­ist aldrei hafa haft neitt vald inni í aðstæð­unum til að segja nei eða skoðun á því sem menn­irnir gerðu. „Ég átti bara að upp­fylla óskir þeirra. Einstaka maður vildi reyndar fá að vita hvað ég vildi gera og þá fékk ég bara sjokk og sagði: „Ertu að spyrja mig?““

Þá greinir hún frá því að vændið hafi gert það að verkum að hún er hrædd við karl­menn. „Ég er aldrei með karl­kyns lækna og á vinnu­stöðum þarf ég alltaf að venj­ast karl­mönnum í kringum mig og sann­færa sjálfa mig um að þeir séu ekki að fara að gera mér neitt. Og ég get ekki hugsað mér að eign­ast karl­kyns maka.“

„Mér fannst hreinlega eins og ég væri að nauðga“

Í bók­inni segir frá því að erfitt sé að fá vændis­kaup­endur til að tjá sig um reynslu sína en einn karl­maður tjáir sig þó. Hann hafi keypt vændi erlendis þegar hann var um þrí­tugt. Hann hafi í fyrstu litið á þetta sem ævin­týri sem hann lang­aði til að prófa en fljót­lega hafi upp­lifunin snú­ist upp í and­hverfu sína.

„Ég sé sjálfan mig við það sem ég er að gera og ég bara ein­hvern veg­inn missti allt og hugs­aði með mér: Nei, þetta gengur ekki! Mér fannst hrein­lega eins og ég væri að nauðga, og ekki bara henni, líka sjálfum mér! Og vildi bara kom­ast út eins fljótt og hægt væri.“

Hann segir að þessi upp­lifun sitji mjög djúpt í honum. Hann hafi verið kom­inn í aðstæður sem hann ætl­aði sér ekki að vera í og að hann hafi upp­lifað að hann væri að gera eitt­hvað sem ætti að vera heil­agt á milli fólks sem er ást­fangið, eða alla­vega gott fyrir alla. „En í stað­inn var þetta allt saman afskap­lega sorg­legt og ég hef ekki enn þann dag í dag getað skilið til­finn­ing­una almenni­lega. En ég veit að stór hluti var upp­götv­unin á neyð hennar sem ég var að mis­nota og að fatta að ég var ein­hver sem gat gert það. Og það var mikil sjálfs­fyr­ir­litn­ing sem fylgdi þeirri upp­götvun, eins og ég hafi verið mis­not­aður af sjálfum mér og ger­sam­lega gengið yfir mín eigin mörk.“ Hann segir að þetta sé ein af hans verstu upp­lif­unum.

Maðurinn telur að í grunn­inn séu margir karl­menn sama sinnis og hann – hafi fundið fyrir þess­ari vondu til­finn­ingu í slíkum sam­skiptum en hafi kannski bægt henni frá sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár