Vandi Evrópu er líka vandamál fyrir Ísland

Sér­fræð­ingar spá því að pundið haldi áfram að veikj­ast gagn­vart helstu við­skipta­myntum, og að helstu banka­stofn­anir Evrópu þurfi á stórri end­ur­fjár­mögnun að halda.

Efna­hags­leg staða Evrópu hefur versnað und­an­farin miss­eri. Gengi evr­unnar hefur veikst tölu­vert gagn­vart Banda­ríkja­dal, einkum og sér í lagi eftir Brexit nið­ur­stöð­una í Bret­landi. Þó evran hafi ekki veikst eins mikið og pundið gagn­vart Banda­ríkja­dal, þá er veik­ingin samt umtals­verð, eða um tíu pró­sent.

Nýlega birt­ist grein­ing frá sér­fræð­ingum Deutsche Bank og Goldman Sachs, sem sögðu að veik­ing punds­ins að und­an­förnu væri bara upp­hafið af erf­ið­leikum. Frekari veik­ing gagn­vart Banda­ríkja­dal sér­stak­lega væri lík­leg, og aðlögun breska hag­kerf­is­ins að breyttum veru­leika gæti orðið sárs­auka­full. Þá væri aug­ljóst að evru­svæðið og mark­aðs­svæði Evr­ópu­sam­bands­ríkja myndi skað­ast. Sér­stak­lega væri staða banka­kerf­is­ins í Evrópu við­kvæm, eins og var raunar til umfjöll­unar á vef Kjarnans fyrr í dag. Spjótin bein­ast ekki síst að Deutsche Bank í þeim efnum.

Miklir hagsmunir

Sé litið á stöðu mála út frá hags­munum Íslands, þá hefur sam­keppn­is­staða útflutn­ings­fyr­ir­tækja versnað vegna þess­ara hreyf­inga á gjald­eyr­is­mark­aði. Ísland á mik­illa hags­muna að gæta gagn­vart Bret­landi og Evrópu, en um 50 til 70 pró­sent af útflutn­ingi á vörum og þjón­ustu er innan álf­unnar.

Íslensk fyr­ir­tæki seldu vörur fyrir 120 millj­arða til Bret­lands í fyrra, og þá hefur ferða­þjón­ustan notið góðs af mik­illi fjölgun ferða­manna sem koma til Íslands frá Bret­landi. Þeir voru um 19 pró­sent af heild­inni í fyrra.

Á skömmum tíma hefur staðan versnað til muna, fyrir útflutn­ings­fyr­ir­tækin. Þau hagn­ast á því að fá sem flestar krónur fyrir hverja evru, pund eða Banda­ríkja­dal.

Fyrir tveimur vikum kost­aði pundið 180 krónur en það kostar nú 156 krónur. Seðla­banki Íslands hefur beitt sér þannig að á gjald­eyr­is­mark­aði, und­an­farna mán­uði, að evran hefur verið í kringum 140 til 145 krónur. Hún kostar nú 136 krónur. Banda­ríkja­dalur kostar 123 krónur.

Breyt­ingin gagn­vart Bret­landi er mikil sé horft yfir enn lengra tíma­bil. Fyrir ári síðan kost­aði pundið 212 krónur en er nú 156 krónur, eins og áður segir.

Vöxtur í ferðaþjónustu en minna fyrir pundið

Þegar horft er til vöru- og þjón­ustu­við­skipta frá Íslandi til Bret­lands, á nema þau um 250 millj­örðum á ári, miðað við stöðu mála í fyrra. Veiking punds­ins gagn­vart krón­unni gæti dregið úr þessum við­skiptum, í krónum talið, á þessu ári en erfitt er þó að segja til um hversu mikið. Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni hefur haldið áfram á þessu ári, og er gert ráð fyrir um 30 pró­sent vexti miðað við árið í fyrra, sem þýðir að heildar gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­búss­ins verði yfir 400 millj­arðar króna.

Íslenskra stjórn­valda bíður nokkur flókið og krefj­andi verk­efni, við að verja íslenska hags­muni í ljósi breytts veru­leika í kjöl­far Brexit-kosn­ing­anna og áhrifa í kjöl­farið á gjald­eyr­is­markað. Í þess­ari stöðu gætu falist tæki­færi, en líka miklar ógn­anir. Lilja Alfreðs­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, hefur lagt áherslu á að stjórn­völd séu til­búin til sam­starfs við Breta og einnig EFTA-ríkin, til að tryggja að við­skipta­sam­bandið sé traust til fram­tíðar litið. Þessi vinna er nú í gangi, en ekk­ert liggur enn fyrir um hvernig Bretland muni standa að því að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár