Sigurður Ingi: Ekkert að því að geyma fé á lágskattasvæðum

Sigurður Ingi Jóhanns­son, verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir það ekk­ert að því að eiga eignir á lág­skatta­svæðum ef þeir sem slíkar eigi greiði skatta af þeim eignum. Það væri lög­legt á Íslandi og alþjóð­lega. Það sé hins vegar veru­lega mikið að því þegar menn noti slík félög til að kom­ast hjá greiðslu skatta og til að fela fé. Verðandi for­sæt­is­ráð­herra hvatti alla þá sem „orðið hafa fyrir því“ að fela pen­inga eða svíkja undan sköttum að gera hreint fyrir sínum dyrum. Þetta kom fram í svari hans við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna.

Áður en að Sigurður Ingi svar­aði sinni fyr­ir­spurn þá hafði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagt Árna Pál Árnason, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, ekki vera trú­verð­ugan í gagn­rýn­inni sinni á sig. Árni Páll hafði spurt Bjarna út í aflands­fé­laga­eign hans.

Augljóst væri að Árni Páll væri að nota umræð­una sem nú sé uppi til að reyna að bjarga eigin skinni í stjórn­málum. Bjarni segir Árna Pál vera að reyna að per­sónu­gera vand­ann í sér. Það væri ekki góð leið að fara í gegnum þá umræðu sem nú sé framundan með þeim hætti. Grein­ar­mun þyrfti að gera á þeim sem væru með allt sitt á hreinu gagn­vart lögum og reglum, þótt þeir hefðu átt aflands­fé­lög, og þeim sem not­uðu þau til að kom­ast hjá því að greiða sitt til sam­fé­lags­ins. Þetta kom fram í svari Bjarna við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Árna Páls á Alþingi í dag.

Hægt er að fylgj­ast með atburðum dags­ins hér í beinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár